Valsblaðið - 11.05.1973, Side 34

Valsblaðið - 11.05.1973, Side 34
32 VALS BLAÐIÐ Frhnann Helgason: Reidar Sörensen sjötíu og íirnm ára Allir þeir, sem voru virkir í félags- lífi Vals á árunum milli 1930—’40, kannast við afmælisbarnið, Reidar Sörensen. Á þeim tima skrifaði hann blað í sögu Vals, sem lengi mun minnzt, og hafði mikil áhrif á knattspyrnuna í Val á þeim árum. Til óblandinnar ánægju fyrir okkur Valsmenn hafa þessi kynni endurnýjazt með sam- skiptum sem Valur og Brumunddal I. L. hafa átt í s. 1. 16 ár, og byrjaði með heimsókn Br. I. L. hingað 1956. Sör- ensen var þá þjálfari liðsins og var það fyrir hans atbeina að þessi sam- vinna byrjaði og hefur haldið áfram. Sörensen hefur verið nokkuð sér- stæður persónuleiki og á margan hátt merkilegur. Hann hefur alltaf verið mikill félagshyggjumaður, og naut þess innst inni að taka þátt í þeim störfum. Hann var alinn upp í gamla skólanum, þar sem agi og nákvæmni ríkti og strangleiki í hvívetna. Sem ungur maður varð hann að bei’jast fyrir tilveru sinni, og var trúr þeim anda sem hann ólst upp í. Það var því ekki að undra þótt stundum gæti kastazt í kekki milli hans og ungra manna, sem vildu taka lífið létt, og iétu þá ráðast hvort alvara væri bak við orð og gerðir. Slíka framkomu þoldi Sörensen ekki, til þess var hann of sannur við sjálfan sig. Hann vildi ekki beygja sig fyrir því sem hann taldi rangt, og hann var ekki til við- ræðu um að slá af kröfum sínum. Hann vissi að það var ekki mögulegt að komast áfram, hvort sem það var leikur, nám eða vinna, nema leggja sig fram. Þegar hann varð var við slæpingshátt, kæruleysi og áhugaleysi, var það honum mikill þyrnir í augum, og var þá óvæginn í orðum. Þetta áttu margir erfitt með að skilja. Þeir, sem hafa kynnzt Sörensen bezt, vita aft- ur á móti að hann er sérlega athugull maður og greindur, og þekkir út í æs- ar allt sem varðar íþróttir, enda mik- ið lesinn um þær. Hann hefur ekki að- eins lesið mikið um íþróttamál. Hann er mjög víðlesinn um mjög margt og í sannleika sagt er honum fæst óvið- komandi. Hann dáir íslenzku bókmenntirnar, og er fjölfróður um sögu Norðurland- anna. Hann er mikill íslendingur þó hann hafi aðeins dvalið hér í 15 ár, og sannarlega setti hann svip á íþróttalífið hér á þeim 15 árum sem hann var hér. Á unga aldri var hann sérlega góð- ur frjálsíþróttamaður, fimleikamaður og knattspyrnumaður, og lék um skeið í þýzka knattspyrnuliðinu Kölner Sportklub. Hér verður ekki rakinn lengur íþróttaferill Reidars eða saga. Valsblaðinu þótti við eiga að biðja okkar gamla vin að svara nokkrum spurningum varðandi feril sinn, og sendum honum þær fyrir nokkru, en hann býr á Hamar í Noregi. Hann brá fljótt við og fara svörin hér á eftir. Valsblaðið vill fyrir hönd allra Valsmanna þakka Reidar störfin og tryggðina og árna honum heilla og velfarnaðar á komandi árum. Æskuár. Ég er fæddur 20. okt. 1897 í Stött í Norður-Helgeland, sem er 7 mílum fyrir sunnan Bodö í Norðui’-Noregi. Þetta er gamalkunnur staður eða allt frá 13. öld, og elzti verzlunarstaður í Norður-Noregi. Þarna var veiðistöð fyrir fiskibáta, sem komu sunnan að og urðu að sigla eftir Vestfjorden til Lofóten. Þetta var áður en vélskipin komu til sögunnar þar norður frá, en f jörðurinn, sem var um 10 mílur, var hættulegur í vetrarveðrum. Á vetrum gat það komið fyrir að þar væru liggjandi í höfninni nokkur hundruð bátar sem biðu sjóveðurs. Við urðum að sinna verzluninni dag og nótt, og hýsa fólk ef með þurfti. Margar merk- ar ættir hafa átt þennan stað á um- liðnum öldum, og fjölskylda mín hef- ur átt það í um 100 ár. Yrði saga staðarins skráð mundi það verða mikil og merkileg menn- ingarsaga. Þegar í æsku kynntist ég alvöru lífsins á margan hátt, og sú reynsla átti þátt í að móta líf mitt. Skipstapar og sjóslys voru daglegir viðburðir, og í vondum vetrarveðrum urðum við að vera við öllu því versta búin. Ég man t. d. eftir því, að eitt sinn stóðu 17 lík uppi heima hjá okk- ur eftir að nokkrir bátar höfðu farizt á Vestfirðinum. Á æskudögum mínum urðu ungir menn að horfast meira í augu við alvöru lífsins en ungir menn nú á dögum. Við vorum 11 systkinin, og ég full- yrði að uppeldið var ,,fínpússað“ eftir beztu uppskrift, þar sem svo stór systkinahópur varð að lifa saman í ró og umburðarlyndi. En foreldrar mínir voru líka úr hinum gamla góða skóla, sem sýndi myndugleik í jákvæðum aðgerðum. Allt skemmtanalíf okkar urðum við að annast sjálf og undirbúa. T. d. stofnuðum við hljómsveit með ýmsum hljóðfærum, þar sem ég m. a. lék ein- leik á harmoniku. Ég minnist þess að harmoníkan mín var pöntuð beint frá Þýzkalandi, og kostaði þá kr. 1,60. Lítið dæmi um verðlag í þá daga. Úti- líf stunduðum við mikið, og hlupum yfir hæðir og mýrar berfættir og næstum klæðlausir. Þar fengum við mýkt og leikni í líkamann, sem ég síð- ar naut á íþróttaferli mínum. I æsku var ég mjög bókhneigður, sat og las allt sem ég náði í. Þetta varð til þess að ég var sendur í menntaskóla í Bódö, og sóttist námið vel. Fyrstu kynni mín af skipuleguin íþróttum. Á skóla þessum komst ég fyrst í kynni við skipulagðaíþróttastarfsemi, þó það væri mjög takmarkað sem maður gat stundað þar. Fyrstu verð- laun mín fyrir keppni í íþróttum fékk ég í þessum skóla, og þau einustu sem skólinn fékk í því móti. Það voru 3. verðlaun í langstökki, stökk 4,63, mjög gott stökk í þá daga, af dreng að vera, og yngstur þeirra sem kepptu. Verðlaunin voru lítil munn- harpa, sem mun hafa kostað 85 aura. Og ég minnist enn hve stoltur ég var með vinninginn, og dró ekkert úr við skólafélaga mína. Við spörkuðum knetti, í bókstaflegri meirkingu, á skólalóðinni. Þar meidd- ist ég eitt sinn á enni, og ber þess merki enn. Fimleika iðkaði ég allmikið, og þá sérstaklega stökk og mýktaræfingar, og ég naut þess að klifra í köðlum. Þar þurfti ég 4—5 tök til þess að ná til lofts, þegar aðrir þurftu 10—12. Þetta hafði ég raunar lært og æft heima, þegar ég var að klifra í reið- unum á skútunum í höfninni. Þar munaði eitt sinn litlu, ég hafði lesið mig upp í mastrið, en varð þá þreytt- ur, og rann niður og brenndi fingurna og skall niður á þilfarið. Ég fann til í fingrunum og var leiður yfir þessu, og ekki batnaði mér þegar ég fékk ákúrur og meðhöndlun föður míns. Ég náði góðum árangri í stökkum yf- ir hest og ,,bukk“, og tókst engum að sigra mig í þeirri grein. Fyrst þegar ég sýndi piltunum í ÍR í fimleikasal Menntaskólans í Reykjavík, hrifust þeir mjög af þessum stökkum. Eftir að ég kom heim frá Mennta-

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.