Valsblaðið - 11.05.1973, Side 35

Valsblaðið - 11.05.1973, Side 35
VALSBLAÐIÐ 33 Reidar Sorensen. skólanum, var ég ráðinn sem barna- skólakennari í Stött. Þetta var ekki svo slæmt miðað við að ég var aðeins 16 ára gamall! Það voru mikil vand- ræði með kennara á þeim árum. Þá er það að skólastjórnin kemur til mín og spyr mig hátíðlega hvort ég vilji ekki taka að mér stjórn og fyrir- lestra í skólanum! Þegar ég hugsa um þetta, verður mér á að brosa að þeim tíma þegar ég var „prófessor“. Sitthvað skemmtilegt kom fyrir í skólanum, meðan ég var „prófessor“ þar. Einn nemendanna var sonur bónda nokkurs í nágrenni Stött. Drengurinn fékk slakt uppeldi, og foreldrar hans voru honum ekki góð. A bænum gekk heyskapurinn illa, svo heyið komst ekki í hús fyrr en seint í nóvember. Eitt sinn spurði ég drenginn hvort hann gæti sagt mér hvað við væri átt með orðinu: Jólahátíð? Hann hugs- aði sig um vel og lengi og sagði svo: „Jú, þá er hann pabbi búinn að heyja!“ Hvað gat ég sagt! Ég var undir eftirliti eins af feðr- um drengjanna, sem var mjög trú- aður maður. Hann var eitt sinn spurður hvað honum fyndist um mig. Jú, svaraði hann, hann getur kennt, en hann getur ekki sungið, og það var orð að sönnu, því að ég hef aldrei á minni ævi getað tekið réttan tón! Æska mín heima var í stórum dráttum sambland af gleði og alvöru lífsins. Alvöru sem æska okkar nú kemst lítið í kynni við í öllum þeim velferðarreifum, sem hún er vafin í. Kaldrifjuð og harðsnúin æska sem stendur stíf í eigingirni og sjálfsgleði án skilnings á því viðkvæma sem í sér- hverjum manni býr og gerir manninn að manni, verður meira og minna ut- anveltu þegar til lífsreynslunnar og umhyggjunnar fyrir öðrum kemur. Síðar fór ég svo í Verzlunarskól- ann í Þrándheimi og var þar eitt ár. Þá drukknuðu faðir minn og elzti bróð- ir minn, svo að ég varð að hætta námi um skeið. Fleiri ættingjar mínir féllu frá, m. a. þriggja ára systursonur minn drukknaði. Ég fann hann látinn í sjónum, og bar þennan unga dreng, sem var að byrja lífið, heim til sín. Þetta hafði ákaflega djúpstæð áhrif á mig, sem ég hef aldrei losnað við síð- an. Alla tíð síðan hef ég alltaf haft samúð með litlum börnum, og meira að segja á efri árum mínum. Skólaganga mín hélt svo áfram í Bergen, og þar lágu leiðir okkar Bernhards Petersen saman, en hann hafði lokazt inni í Noregi í fyrra stríði, en þetta var árið 1918. Tal- aðist þannig til að ég færi á hans veg- um til íslands, en þó ekki fyrr en ég hefði lokið námi. Fyrsti kappleikurinn. Ég var svo um skeið í Harstad, og má segja að þar hafi ég byrjað minn íþróttaferil, sem var nú ekki mikill samanborið við það sem gerist í dag. Þetta byrjaði með því að ég keppti í hlaupum við nokkra íþróttamenn, klæddur venjulegum fötum og setti sokkana utanyfir skálmarnar. Svo tók ég þátt í frjálsíþróttamóti, sem mun hafa verið hið fyrsta í Norður- Noregi. Þar urðu mér ljósir vissir möguleikar sem ég hafði. Ég setti Norður-norskt met í þrístökki og langstökki, og var árangurinn 13,83 og 6,74, sem var undralangt miðað við aðstöðu í þá daga, og nánast án þjálfunar. Síðar tókst mér að vinna mörg verðlaun. Hér skeði líka atvik, sem varð til þess að ég fór að taka þátt í knatt- spyrnu. Ég var áhorfandi þar eins og ég var alltaf á íslandi, en þá skeður það að leikmaður verður að yfirgefa völlinn, og þar sem enginn varamaður var til, hljóp ég inn á völlinn, og var það minn fyrsti leikur. Ég hamaðist eins og ég gat, og þetta gekk allt vel, mjög vel, og var ég talinn bezti maður vallarins, en það segir raunar ekki svo ýkjamikið í þá daga. Ég varð fastur í liðinu og kom þannig í alvöru inn í íþróttirn- ar. í stuttu máli get ég nefnt: Tók þátt í frjálsum íþróttum, fimleikum, keppti í knattspyrnu, hafði umsjón með frjálsíþróttamönnum í Troms- héraði og knattspyrnunni á sama svæði. Var um skeið skátaforingi. Síðar formaður í Harstad Idrettslag, og formaður í fimleikafélaginu. Þetta var sem sagt sambland af iðkun í- þrótta og stjórnstörfum. Allur auka- tími minn fór í þetta frá morgni til kvölds. Vera má að ég hafi tapað ein- hverju á öðrum sviðum lífsins, en það getur líka verið að það hafi verið bezt eins og það var. Það er of seint að harma það nú. Vegna aðstæðna byrjaði ég seint að iðka íþróttir, og á þeim tímum var lítið um sérþjálfun, ég tók þátt í öllu sem mér þótti skemmtilegt. Þá var ekki mikið um þjálfun og leiðbeiningar, svo að það má því segja að ég hafi verið það sem kalla mætti „heimatilbúinn“. Háskólanám og íþróttaiðkanir í Köln. Eftir nokkurra ára dvöl í Harstad, fór ég til Þýzkalands og stundaði nám í verzlunarháskólanum í Köln. Þetta var á hörmungarárum Þýzka- lands rétt eftir fyrra stríðið. A háskólanum komst ég fljótt í kynni við íþróttirnar þar, og á þeim árum keppti ég fyrir skólann á frjáls- íþróttamótum. Meðal annars tók ég þátt í fyrsta stóra íþróttamótinu sem fór fram á gamla ólympíuleikvang- inum í Berlin. (Ekki Hitlers-leik- vanginum 1936). Þar tók ég þátt í langstökki, og mér til mikillar undr- unar vann ég þá ágætu langstökkvara sem þar komu fram, í stökki sem mældist 7,03. í dag er það ekkert til að gorta af, en þá var þetta mjög gott. Hitinn var um 35 gráður, svo að ekki verður sagt að aðstaða hafi vei'ið í bezta lagi. Ég man nú ekki eftir öllum þeim mótum sem ég tók þátt í, en ég missti af að komast á stúdentamótið í Wien, því að það voru aðeins Þjóðverjar sem máttu taka þátt í því, svo að ég sem útlendingur mátti ekki taka þátt í keppninni. Meðan ég var þarna í háskólanum veitti ég sérstaka athygli manni að nafni Zörner, sem síðar varð doktor. Hann var landliðsmaður og félagi í Kölner-Sportklubb. Hann bað mig eitt sinn að koma til þeirra á æfingu, sem ég og gerði, og það varð mér mikils virði. Ég gekk í félagið og lék marga leiki með því. Þar fékk ég innsæi í það, hvað raunveruleg þjálfun er. Þar ríkti regla og agi. Þetta var ekki hinn prússneski agi, en sá agi sem er nauðsynlegur og verður að vera til þess að þjappa saman leikmönnum í samstillt lið. Þar var það ekki hóp- þjálfun, eins og um kindahóp væri að ræða, en verulega einstaklings- bundin þjálfun á öllum sviðum. í stuttu máli: Leiðbeining og kennsla sem verður að koma til, en sem því miður vantar svo víða. Þar fékk ég að sjá og reyna hvað árangursrík og skipulögð kennsla er, allt frá því ein- falda til þess margþætta. Það eru ekki aðeins æfingarnar á vellinum, það er einnig fræðileg kennsla og

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.