Valsblaðið - 11.05.1973, Page 36

Valsblaðið - 11.05.1973, Page 36
34 VALSBLAÐIÐ skólaganga í líkamsfræði og eðlis- fræði. Að mörgu má ef til vill finna varð- andi Þjóðverja, en eitt verður maður að viðurkenna, en það er nákvæmni þeirra, sem er yfirleitt meiri en maður kynnist hjá öðrum þjóðum. Mér féll þetta vel því að þegar við æfðum var þess krafizt að við gerð- um okkar bezta án þess að mögla á nokkurn hátt. Að æfingu lokinni var tónninn vinsamlegur án þess að vera þó mjög innilegur. Virðing varð þó, þrátt fyrir allt, að vera rikjandi. Þetta verður að vera fyrir hendi ef árangur á að nást. Ég vil skjóta hér inn, að það sem ég lærði varðandi aga í Þýzkalandi, er ef til vill ástæðan til þess, að þið, þegar ég byrjaði þjálfun í Val, álituð að ég væri allt of strangur og reiður í þess orðs merkingu. Það virtist al- veg óskiljanlegt að það væri nauð- synlegt að sýna svona þrælslegan aga. Ég hef spurt marga hvað agi sé í raun og veru og hvað sjálft orðið beri í sér. Enginn hefur í rauninni getað svarað mér. Eftir minni skil- greiningu á orðinu þýðir það: Agi er eiginleikinn og viljinn til að taka á sig það sem er nauðsynlegt. — Maður sem skilur þetta, og hagar sér samkvæmt því, tapar engu, en vex í augum félaga sinna. Agi og ábyrgð fylgist að. Ábyrgð og vilji til að taka á sig skyldur er undirstaðan undir sam- starfi knattspyrnuliðs. Islandsferð 1923. Til íslands kom ég svo í lok sept- ember 1923. Farkosturinn var hinn góði gamli Sirius frá Bergen, sem var lítið skip, og var naumast vel til fallið í ferðir um Atlantshafið. Ferð- in tók um fjóra sólarhringa, og ég verð að segja að farþegar voru ekki rismiklir eftir slíka ferð. Sjálfur hef ég aldrei verið sjóveikur svo að ég slapp vel frá þessu volki. Til Reykjavíkur komum við á þriðjudagsmorgun í slæmu veðri, suð- austan roki og rigningu. Allt var grátt og dapurlegt. í sannleika sagt setti að mér kulda, og ég óskaði að ég væri kominn heim aftur. Þá var Reykjavík með um 24 þúsund íbúa. Ég átti að dveljast þar í sex mánuði eða svo, en dvölin varð nú 16 ár! Nokkur tími leið áður en ég vandist aðstæðum. Veðrið var grátt og leið- inlegt að mér fannst, og fyrir mér var náttúran eins og hálfgerð eyði- mörk. En það er nú alltaf svo að aug- un sjá meira og meira því minna sem er að sjá. Ég fór að sjá gras- fláka, sem uxu hér og þar, og smátt og smátt fór ég að venjast aðstæð- um. Að ég komst inn í íþróttirnar á ís- landi, get ég þakkað ákveðnum manni, en nafni hans hef ég því miður gleymt, en hann mun hafa unnið í Rafstöðinni, var frá Kongsberg í Noregi. Hann bað mig einu sinni að koma á æfingu hjá ÍR, sem æfði þá í Menntaskólasalnum. Ég fór og var kynntur fyrir ÍR-ingunum sem þar voru. Það endaði með því að ég gekk í félagið. Ég tók þátt í fimleikaæfing- unum og gerði ,,lukku“ að mér skild- ist, og þá sérstaklega í stökkunum sem voru mín sérgrein. Sumarið 1924 fór fram Allsherjarmót í frjálsum íþróttum, og man ég að keppnin milli KR, ÍR og Ármanns o. fl. var hörð. Ég tók þátt í árlegum frjálsíþrótta- mótum, en þar sem ég var ekki ís- lenzkum ríkisborgari, var ekki hægt að staðfesta það sem íslandsmet, þótt árangurinn væri betri en íslandsmet á þeim tíma. Allsherjarmótið 1924 var ákaflega tvísýnt, ÍR vann á 44 stigum, KR fékk 43 stig og Ármann 42 stig. Ég vann að mig minnir: Langstökk, þrí- stökk, grindahlaup og samanlagt kom- um við Osvald Knudsen út með 23 stig af 44. Eitt frjálsíþróttamót er mér alltaf minnisstætt, en þó að ég segi frá atviki þaðan má það ekki skoðast sem sjálfshól. ÍR hafði efnt til innanfélagsmóts á sunnudagsmorgni, en þar var meðal keppenda Sveinbjörn Ingimundarson. Keppnin í langstökki og þrístökki var milli okkar. Ég vann þrístökkið, en í langstökkinu hafði ég beztan árangur þegar Sveinbjörn átti eitt stökk eft- ir, en ég var búinn með mín. Sveinbjörn hafði eyðilagt annan skóinn sinn, og ætlaði að hætta í keppninni. Þá bauð ég honum mína skó, og auk þess mældi ég nákvæm- lega tilhlaupið, og lagði ríkt á við hann að einbeita sér að stökkinu eins mikið og hann gæti, sem hann og gerði. En þá kom hið erfiða uppgjör. Steindór Björnsson sá um lengdar- mælingarnar, og tók til þess góðan tíma, gaf mér auga við og við og mældi á ný, og var greinilega í erfið- leikum. Ég stóð þar rétt hjá og var ljóst að hér var um millimetrastríð að ræða, Ég sagði við Steindór: „Það mál sem þú tekur er rétt, ég mótmæli engu“. Loksins til- kynnti hann- „Sveinbjörn 6,31 og Reidar 6,30“. Ég var fyrsti maður sem óskaði Sveinbirni til hamingju, en þá sagði hann. „Þetta voru þínir skór“. „Já, en það varst þú sem stökkst en ekki skórnir!“ Mér er minnisstætt þegar ég hljóp í fyrsta sinn 110 m grindahlaup. Brautirnar voru ekki sérlega góðar en ég kom í mark um tveim grind- arbilum á undan næsta manni, sem var Osvald Knudsen. Mismunurinn lá í því að ég hljóp yfir grindurnar, en þeir hoppuðu yfir, og töpuðu tíma. Mér féll vel í ÍR. Það hvíldi menn- ingarbragur yfir félaginu. og það átti virðingarverða leiðtoga. Ég eignaðist marga góða vini á þessum tíma, og margt skeði skemmtilegt. í því sambandi vil ég segja frá móti sem gaf okkur Sveinbirni tveggja daga ökuferð. Það var 800 metra hlaupið sem því réði. Sveinbjörn var nógu sterkur til þess að sigra, og sam- an gerðum við áætlun um hlaupið, og mitt í því kom Scheving Thor- steinson til okkar og sagðL „Ef þú vinnur hlaupið, skal ég fara með ykkur í langa ökuferð. Sveinbjörn vann, og Scheving stóð við sitt. Hann fór með okkur í tveggja daga ferð austur í Fljótshlíð, með gistingu í Múlakoti. Það var í sann- leika sagt skemmtileg ferð. Annarrar ferðar minnist ég með ÍR, en það var Þingvallaferð, og átti að gista þar, en í hinni björtu sumar- nótt sofnaði enginn af þessum stóra hópi karla og kvenna, en við nutum fegurðar umhverfisins í blíðskapar- veðri. í þessu sambandi má nefna ferð L. II. Múllers yfir þvert ísland 1925, þar sem ég var meðal fjögurra þátt- takenda. (Frá þessari ferð var sagt í Valsblaðinu 1966). Eftir því sem ég hef heyrt, er frásögnin af þessari ferð tekin upp í færeyskar skóla- bækur. Knattspyrnuþjálfari í Val. Og svo er það knattspyrnan. Satt að segja var ég ekki sérlega hrifinn af því sem sýnt var hvað knattspyrnu snerti. Sérstaklega er mér minnisstæður úrslitaleikurinn 1925, að mig minnir, milli Víkings og Fram, á Gamla vell- inum. Völlurinn var steinborinn og slæmur, og leikurinn var eftir því. Fram sótti stöðugt, og leikmenn Víkings höfðu nóg að gera að sparka knettinum út og suður, án þess að hafa vald á nokkru. Skyndilega náði Helgi Eiríksson knettinum. einlék að marki Fram, lék á Tryggva Magnússon og þá var markmaðurinn einn eftir, og það varð mark. Víkingur varð íslandsmeistari. Ég verð að segja að þetta minnti mig á „sirkussýningu“ í spörkum og spennu án markmiðs og meininga. Það sama varðaði raunar aðra leiki á þessum árum, en var ef til vill ekki eins slæmt og leikur Víkings og Fram. Þegar ég var spurður um álit mitt á þessari knattspyrnu, sagði ég víst:

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.