Valsblaðið - 11.05.1973, Qupperneq 42
40
VALS BLAÐIÐ
Mánudagur 7. ágúst.
Vaknað var á öllum tímum þenn-
an dag. Flestir fóru niður í bæ í verzl-
unarferð, ef þeir nenntu.
Voru flestir í II. fl. karla á hótel-
inu um kvöldið, nema Oscar Winter-
man (undirritaður), Jón leiði, ívar
Frank Einstein og Siggi ábætir, en
þeir fóru í bíó sem hét Colosseum,
sem staðsett er rétt hjá Karl Johanns-
götu. Myndin hét Tora-Tora-Tora og
var úr heimstyrjöldinni síðari. Að
myndinni lokinni fórum við með leigu-
bíl út að Studentebyen í Sogni. Góða
nótt.
Þriðjudagur 8. ágúst.
Vaknað var frekar snemma þenn-
an morgun. Fóru flestir, sem eftir
voru af hópnum, niður í bæ í verzl-
unarferð. Birgir Titanic var fyrir
nokkru búinn að ná sér í Oppsal-
stúlkuna; einnig Gísli A. Cavaler, en
hann var eitthvað að gamna sér við
vinkonu hennar, Helgu, en svo hét
Oppsalstúlkan.
Um kvöldið fóru flestir af piltun-
um í diskótek niðri í bæ. Tókum við
svo járnbrautarlest til þess staðar.
Jóhann Ingi (sem lítið hefur kom-
ið við sögu hjá mér), nældi sér í fal-
lega norska sjónvarpsþulu, sem hann
var svo að fikta við frameftir kvöldi.
Tobbi dansaði af krafti við marg-
ar af ijótustu stúlkunum í diskótek-
inu (því miður Tobbi minn).
Eftir diskótekið tókum við svo lest-
ina aftur til baka, að nokkrum hræð-
um undanskildum.
Farið var fremur snemma að sofa
þessa síðustu nótt í Noregi, áður en
heim skyldi haldið.
Þrír af fararstjórum Handknattleiks-
deildar í utanferð unglinganna í sumar.
Frá vinstri Geirarður Geirarðsson, Berg-
steinn Magnússon og Þórður Sigurðsson
form. Handknattleiksdeildar. Staddir í
Svíþjóð á Partille Cup.
Miðvikudagur 9. ágúst.
Vaknað var snemma þennan morg-
un. Fóru flestir sína síðustu ferð nið-
ur í bæ. Teknar voru myndir í gríð
og erg eins og endranær. Nokkrir fóru
upp í Holmenkollen (skíðastökkpall-
inn fræga).
Rétt fyrir neðan Studentebyen er
Ullevál-Stadium, og þetta kvöld átti
að fara fram leikur milli Brann og
Skeid, en því miður misstum við af
honum, því að við lögðum af stað
frá Sogni um hádegisbilið í rútu til
Fornebu-flugvallar.
Kl. 3,30 lögðum við svo af stað
heimleiðis í Þorfinni karlsefni. Gekk
ferðin í alla staði vel, gott veður á
leiðinni, sérstaklega þegar við nálg-
uðumst ísland. Útsýni var mjög fag-
urt þegar flogið var yfir landið. Lent
var svo á Keflavíkurflugvelli um kl.
sex. Frekar þreyttur hópur gekk inn
í fríhöfnina og keyptu þeir sælgæti
og tóbak í gríð og erg.
Síðan skildi hópurinn, sumir fóru
með rútunni, en hinir með einkabíl-
um.
Þá var þessi mikla ferð á enda.
Skipzt var á kveðjum og kossum til
allra átta.
Að endingu vil ég fyrir hönd II.
flokks karla þakka Þórarni Eyþórs-
syni sérstaklega fyrir hans framlag
í þessa ferð, einnig þáverandi stjórn
hans. Ennfremur vil ég koma á fram-
færi þakklæti til vinar míns ívars Ey-
steinssonar fyrir að halda dagbók í
ferðinni, en hún var mér ómetanleg
aðstoð við gerð þessarar ritgerðar.
Einnig vil ég þakka krökkunum fyrir
frábæra samheldni og prúðmennsku,
innan vallar sem utan. Svo að lokum
vona ég að fljótlega verði ráðizt í
sams konar ferð aftur.
1x2
(■(‘IriiniiiiNlarfNeniin er ■
fullum gaugi. I.ii auka |iarf
vrrulr^a liluf Val.s í limiui.
Kr lirilii) á félagaua. slúlkur
«fí |iilla. ail lirrila ráilurinu.
auka sákniua og rfla fjárliag
«l<>il(lanna og |iá fálagsius
í helld.
Samlaka í sákn og sigruin.
Valsmenn.
Krisíjana IHaffnúsdóííir:
„Valsarar voru eins og
ein stór fjölskylda“
Þeir sem tóku þátt í þessari ferð,
voru 2. og 3. fl. karla, 2. fl. kvenna
og nokkrar úr m. fl. kvenna. Ferðin
hófst með íslenzkri stundvísi. Allir
voru að vísu mættir á tilteknum tíma
í Valsheimilinu, en þegar til Kefla-
víkur kom hófst hin algenga bið, sem
í þessu tilviki stóð yfir í tvo tíma.
Við lentum á Kastrup eftir þægi-
legt flug og fórum rakleiðis til
Lykkebyskole, þar sem við gistum
meðan á dvöl okkar í Kaupmanna-
höfn stóð. Þegar var hafizt handa
við að koma sér fyrir og gekk á ýmsu.
Síðan var útbýtt til okkar strætó-
kortum, matarmiðum o. fl í sam-
bandi við keppnina. Þar sem keppni
skyldi hefjast strax næsta dag var
ákveðið að allir færu saman í Tívolí.
Þar var dillandi fjör, rússíbaninn,
Parísarhjólið og fleiri leiktæki voru
vinsæl. Margir komu með náföl and-
lit og á brauðfótum úr slíkum glæfra-
ferðum og samt staðráðnir í að fara
aftur. Flestir heimsóttu einnig spegla-
salinn, þar sem hver og einn fann
sitt óskavaxtarlag.
Lykkebyskole er spölkorn frá Val-
by Idrætspark þar sem keppnin fór
fram, einnig var matsalurinn þar.
Aðstaðan á vellinum er (alveg) stór-
kostleg, í kringum 20 handboltavellir,
bæði gras og malbik, auk fjölda af
knattspyrnuvöllum. Skipulagning
mótsins, sem kallast Copenhagen Cup,
var í heild stórgóð og gekk allt hratt
og snurðulaust fyrir sig. 5000 þátt-
takendur voru í mótinu og var það
litskrúðugur hópur. Einstakur vin-
áttuandi ríkti meðal þátttakenda og
er gaman að hafa tekið þátt í slíku
móti. Valsararnir voru eins og stór
fjölskylda. Mikið var sungið af göml-