Valsblaðið - 11.05.1973, Page 44
42
VALS BLAÐIÐ
Frímann IJcíi/hsoíi:
Þeir ungu haia orðið
Knattspyrna
Hilmar
Harðarson
5. fl. A
Þessi ungi maður kom nokkuð við
sögu hjá okkur í blaðinu í fyrra í
sambandi við Valsfjölskylduna. Þá
sagði hann okkur frá byrjunarferli
sínum, svo hann endurtekur það ekki
hér, en ræðir um síðasta keppnistíma-
bil.
— Þetta gekk nú ekki nógu vel hjá
okkur í sumar. Ástæðan, — ja, mér
fannst samkomulagið ekki nógu gott
þegar við vorum að keppa, og það er
ekki gott. Þetta lagaðist nú, en ekki
fyrr en í haustmótinu. 1 íslandsmót-
inu unnum við aðeins einn leik í okkar
riðli.
Þó var það nú svo, að drengirnir
mættu allvel á æfingar, en við vorum
flestir mjög ungir, svo að ég held að
þeir ættu að verða mikið betri næsta
sumar, og ættu þá að ná sér upp.
Skemmtilegasti leikurinn, sem ég
hef leikið, var afmælisleikurinn við
Víking. Við höfðum alltaf tapað fyrir
þeim, en í það sinn unnum við þá með
4:1. Aftur á móti var ég óánægður
með leik okkar við Akranes í sumar,
og fór sá leikur fram þar.
Við vorum afar lélegir, þorðum ekki
að beita okkur gegn þeim, og taug-
arnar í mesta ólagi. í síðari hálfleik
vorum við harðari og hættum að
beygja okkur þegar þeir skutu. Þeir
unnu 2:1, enda voru þeir miklu betri.
Við fórum í nokkrar keppnisferðir
í sumar. Auk Akranessferðarinnar
fórum við til Vestmannaeyja og upp
í Borgarfjörð og kepptum þar gegn
liði KFUM í Vatnaskógi og töpuðum
þar, enda lékum við gegn eldri drengj-
um en við vorum, en þetta var ákaf-
lega skemmtileg ferð.
Ég leik oftast miðherja eða fram-
vörð, og í sumar tókst mér að skora
13 mörk.
Við komum saman á fund áður en
íslandsmótið byrjaði, en ég vildi hafa
fleiri fundi með drengjunum, og láta
þjálfarann okkar, hann Smára, tala
við okkur um fótbolta, og svo væri
gaman að sýna kvikmyndir af knatt-
spyrnu.
Ég geng nú upp í fjórða flokk, og
ég vona að drengirnir, sem eftir verða
í 5. fl., æfi vel og vinni mót á næsta
sumri.
Ég er ákveðinn að halda áfram
næsta tímabil og reyna að æfa svo vel
að ég komist í lið í fjórða flokki, og
þá helzt í A-liðið.
Karl
Hjálmarsson
5. fl. C
Ég var ekki nema 6 ára þegar ég
fór að fara á æfingar hjá Val. Vinur
minn, sem þá lék með B-liðinu, lofaði
mér að koma með sér. Svo gekk ég
auðvitað í Val, og fékk fyrsta skír-
teinið 1970. Ég byrjaði að keppa í
sumar og tók þátt í þremur mótum:
Reykjavíkurmótinu, Miðsumarsmót-
inu og Haustmótinu.
Ég hef leikið ýmist sem miðherji
eða innherji, og sú staða finnst mér
langskemmtilegasta staðan á vellin-
um. Ég hef skorað aðeins 4 mörk, og
mér þótti gaman að skora fyrsta
markið, það var eitthvað svo spenn-
andi.
Eftirminnilegasti leikur, sem ég hef
leikið, er leikurinn við Fylki, þegar
við unnum þá 19:0, en ég skoraði nú
ekki nema 2 mörk í þeim leik.
Ég ætla að reyna að æfa vel í vet-
ur, og reyna að komast eitthvað upp,
ég á nú þrjú ár enn í fimmta flokki.
Mér finnst afar skemmtilegt að æfa
fótbolta með góðum drengjum.
Mér þótti líka afar gaman á
skemmtifundinum sem haldinn var.
Þar voru sýndar kvikmyndir, og við
fengum kökur og gos, þetta var anzi
skemmtilegt.
Þjálfari hjá okkur var Smári Jóns-
son og fellur okkur vel við hann. Mér
finnst líka Valur vera gott félag, og
margir góðir piltar þar.
Albert
Guðinundsson
fulltrúi
4. flokks A
Ég byrjaði að æfa með Val þegar
ég var 7 ára að mig minnir, og gekk
þá í félagið. Ég var búinn að halda
með Val um nokkurt skeið og var því
ekki um annað félag að ræða.
Ég byrjaði að keppa með Val í
fimmta flokki, en ekki man ég nú eft-
ir fyrsta leiknum sem ég lék. Ég hef
yfirleitt leikið annaðhvort miðherja
eða framvörð, og finnst hvort tveggja
gaman, það er bara gaman að leika
knattspyrnu.
Ég held að ég hafi fyrst leikið í
B-liðinu í fimmta flokki, og tvö síð-
ustu árin í 5. fl. lék ég með A-liðinu.
Leiðinlegasti leikur, sem ég hef
leikið, er leikurinn við Þrótt þegar
við töpuðum 8:2, en okkur vantaði
líka 4 drengi í liðið. Aftur á móti
er úrslitaleikurinn í fyrra við Vest-
mannaeyinga einn sá skemmtilegasti,
við unnum 4:2. Þegar leikar stóðu
2:1 okkur í vil var réttilega dæmd á
okkur vítaspyrna og þá jöfnuðu þeir.
En við vorum ákveðnir og skoruðum
á 5 mínútum 2 mörk og urðum ís-
landsmeistarar.
Úrslitaleikurinn í ár í íslandsmót-
inu var líka skemmtilegur, en hann
unnum við 1:0. Við áttum þó fleiri
tækifæri, t. d. átti ég skot í stöng af
dauðafæri, markmaðurinn var kom-
inn út úr markinu, og eiginlega fannst
mér að ég væri búinn að skora áður
en ég sparkaði, en það fór nú svona.
Annars var ég mjög taugaóstyrkur í
þessum leik, og getur það haft sín
áhrif að ég á heima í Kópavogi, og
hef átt síðan ég byrjaði að æfa með
Val fyrir 7 árum.
Þetta gekk vel í sumar hjá okkur
í fjórða flokki A, og ég held að það
sé mest að þakka því hve drengirnir
mættu vel á æfingar, dvölin á Laugar-
vatni í sumar, og síðast en ekki sízt
þjálfarinn, Róbert, sem við erum
ánægðir með.
Meðan við vorum á Laugarvatni
skruppum við á Akranes og lékum
þar einn leik og unnum hann 4:0.
Þetta var skemmtileg ferð.
Flestir piltanna ganga upp í þriðja
flokk og æfa þar næsta ár, og ef þeir
æfa allir vel, og eins þeir sem voru
þar fyrir, ætti þriðji flokkur að geta
staðið sig vel á næsta sumri, með
Róbert sem þjálfara.
Ég er ánægður með aðstöðuna hjá