Valsblaðið - 11.05.1973, Side 45
VALS BLAÐIÐ
43
Val, en mér finnst að það mættu vera
fleiri fundir, þar sem rætt er um ferð-
ir, leik, þjálfun o. fl., kvikmyndir
sýndar og spjallað saman um hitt og
þetta.
Óttar Sveinsson
fyrirliði 4. fl. B
Ég man fyrst eftir mér með fótbolta
á gamla golfvellinum, þá 8—9 ára, en
í Val gekk ég þegar ég var 11 ára.
Ástæðan til þess að ég fór í Val var
sú, að þrír í mínum bekk voru í Val,
og það réði úrslitum. Fyrsti leikur-
inn, sem ég lék með Val, var í C-liði
fimmta flokks gegn Víkingi og töp-
uðum við 3:0. Daginn eftir lékum við
aftur saman og þá í afmælismóti
Víkings og varð markatalan sú sama.
Næsta ár lék ég svo í marki til að
byrja með eða fjóra leiki. í fyrsta
leiknum, sem var við Fram urðum
við fyrri til að skora, en svo er dæmd
á okkur óbein aukaspyrna. Framar-
inn spyrnir beint á markið og ég í
einhverju fáti ætla að verja og kom
aðeins við boltann, en það hefði ég
ekki átt að gera, bara láta hann eiga
sig. Ég nagaði mig í handarbökin á
eftir.
Svo byrjaði ég aftur að leika úti á
vellinum. Árið 1971 æfði ég lítið sem
ekkert og lék aldrei, en fylgdist með
liðinu. Svo byrjaði ég aftur 1972, og
æfði vel, og fyrir fyrsta leikinn, eftir
meira en árs hvíld, var ég ákaflega
taugaóstyrkur, ég þekkti ekkert getu
Víkings. Þetta fór þó betur en á
horfðist, því að við unnum þá, 3:0.
Reykjavíkurmótið í sumar var dá-
lítið skrýtið. Þróttur vann Fram 6:1,
en við gerðum jafntefli við Fram 3:3,
þó Fram ætti fremur skilið að vinna
þann leik. Svo unnum við Þrótt 5:1.
Fyrir leikinn við Þrótt ákváðum
við að berjast til síðasta manns. Það
fór þó svo að Þróttur skorar fyrsta
markið, og þá var sem við misstum
allan móð. Fljótlega tókst okkur þó
að jafna, og fengum þá trúna á okk-
ur aftur. Bættum við síðan tveim
mörkum við fyrir leikhlé. 1 síðari hálf-
leik bættum við enn við tveim mörk-
um og urðum Reykjavíkurmeistarar.
Eins og ég gat um hér að framan
áttu Framarar að vinna þennan leik.
Við byrjuðum á því að skora, en þeir
jafna, og enn skorum við, og svo
komast þeir yfir 3:2. Þegar aðeins fá-
ar mínútur voru til leiksloka, kemur
löng sending fyrir Fram-markið. Tveir
varnarmenn Fram hoppa upp til að
skalla frá, en ég stend þar nærri og
skima eftir boltanum, og er kominn
úr jafnvægi. Veit ég þó ekki fyrr en
knötturinn skellur á hendina á mér,
sem ég hafði þétt við brjóstið, og
flaug þaðan beint í markið! Jafntefli
3:3.
Ég er mjög ánægður með árangur-
inn hjá okkur í sumar, enda unnum
við öll mót sem við tókum þátt í.
Ég var mjög ánægður með Laugar-
vatnsdvölina í sumar, hún var lær-
dómsrík og skemmtileg, og hefðu
flestir viljað vera þar lengur. Ég mæli
því eindregið með því, að þetta verði
endurtekið á komandi sumri, og að
sem flestir flokkar gætu farið þangað.
Þjálfararnir, Róbert og Björn, voru
mjög góðir, og hvöttu okkur til dáða.
Félagsandinn í flokknum var mjög
góður, og er það mikið Róbert að
þakka, og vonandi að sá andi haldist
þegar í þriðja flokk kemur.
Svo er eitt, sem ég vil vekja athygli
á, við ættum að nota félagsheimilið
miklu meira en við gerum. Halda
fundi, ræða um leiki og æfingar o. fl.
Og svo skaðar ekki að koma með
mjólk og kökur!
Ég hef fylgzt nokkuð með meist-
araflokki á s.l. sumri og er ekki
ánægður með árangurinn. Ég held að
þeir hafi ekki æft nóg, þetta er ungt
lið og góðir einstaklingar, sem ættu
að geta náð lengra en þeir gerðu.
Að lokum vil ég svo óska öllum
flokkum góðs gengis á komandi ári,
og þakka stjórn deildarinnar og þjálf-
urum starfið í sumar.
Karl
Björnsson
3. fl. A
Ég byrjaði víst að leika mér að
knetti þegar ég var 6 ára gamall, og
þegar ég var 7 ára gekk ég í Val og
æfði og lék mér þar. Svo hætti ég
öllum æfingum þar, vegna þess að
félagar mínir voru ekkert í fótbolta.
Áhuginn kom samt aftur, og 12 ára
byrjaði ég á ný og fór þá strax að
leika með B-sveit 5. flokks. Fyrsti
leikurinn var við KR og töpuðum við
2:1. Á þessu sumri skoraði ég 4 mörk,
og var þá miðherji. Fyrsta markið var
nú ekki sérlega glæsilegt hjá mér.
Ég fékk boltann fyrir og rak hnéð í
hann og það dugði, það varð mark.
Næsta ár lék ég í 4. fl. B, og byrj-
aði sem miðvörður en var svo settur
miðherji og hef verið þar síðan í leikj-
um Vals í þessum flokki, skoraði ég 18
mörk það sumar.
Síðara árið mitt í 4. fl., eða 1971,
urðum við íslandsmeistarar. Það sum-
ar var ég markheppinn, því að ég
skoraði 42 mörk. Mér er að sjálfsögðu
minnisstæður úrslitaleikurinn í Is-
landsmótinu það ár. Leikar stóðu 2:2,
og þótti okkur sem mikil tvísýna væri
komin í leikinn, en þá hafði ég heppn-
ina með mér og tókst að skora. Þeg-
ar ég hafði skorað hikaði dómarinn
við, og fór til línuvarðarins og ráð-
færði sig eitthvað við hann. Á meðan
stóðum við hljóðir og fölir og þorðum
ekkert að segja.
Svo kom úrskurðurinn: Það var
mark, og þá losnaði svo um munaði
um raddböndin hjá okkur. Nokkru
áður en leik lauk heppnaðist mér að
bæta einu marki við. Annar leikur er
mér einnig minnisstæður, en það var
leikurinn við ÍR í 4. fl. í fyrra, þar
sem við unnum 18:0.
Þetta ÍR-lið var ungt og alveg byrj-
endur og því óvant að keppa, og varð
ég til þess að skora 11 mörk í leikn-
um. Ég gat þess að ég hefði leikið
sem miðherji með Val, en því má
skjóta hér inn, að ég lék með Reykja-
víkurúrvali í sumar (Reykjavík 1956),
en þá var ég útherji. Þrír aðrir Vals-
menn voru einnig í þessum leik. Þessi
leikur var nokkurs konar undirbún-
ingsleikur fyrir næsta Faxaflóaúrval.
Ég er nú ekki ánægður með árang-
urinn í sumar, þó komumst við í úr-
slit í Reykjavíkurmótinu í aukaleik,
en töpuðum 1:0 fyrir Fram.
Það var eins og við slökuðum á
eftir þetta mót, og æfðum því ekki
nóg, og ég held að það hafi verið aðal-
orsökin fyrir því hve illa gekk. Ég
hef mikla trú á því að þetta gangi
betur næsta sumar. Þá verður hópur-
inn úr f jórða flokki, sem varð íslands-
meistari, aftur sameinaður. Við höf-
um okkar í milli heitstrengt að gera
allt sem við getum til að vinna sem
flesta leiki næsta sumar.
Ég er þeirrar skoðunar að það
mætti bæta félagsandann með fleiri
fundum og ferðalögum. Ég er líka
viss um, að dvölin á Laugavatni hafði
mikið að segja til að sameina flokk-
inn.
Mér finnst mjög æskilegt að geta
æft meira á grasi, en mögulegt er nú,
en vonandi stendur það til bóta þeg-
ar nýi grasvöllurinn verður tekinn í
notkun.
Ég vil að lokum endurtaka, að ég
hef trú á því að þetta gangi betur
næsta sumar ef allir æfa og standa vel
saman innan vallar sem utan.