Valsblaðið - 11.05.1973, Page 46

Valsblaðið - 11.05.1973, Page 46
44 VALSBLAÐIÐ tJlfar Másson 3. flokkur B Ég var eitthvað 6—7 ára þegar ég gekk í Val, og var ástæðan sú að ég held að Valssvæðið var næst. Svo var það líka að bróðir vinar míns æfði í Val, og við eltum hann á æf- ingar. Ég var 8 ára þegar ég keppti fyrst, og þá í 5. fl. B. Ég man nú ekki eftir fyrsta leiknum, en við vorum mjög sigursælir þetta sumar, töpuðum ekki nema einum leik, svo við höfum hlotið að vinna þann fyrsta. Til að byrja með var ég vinstri út- herji, en síðari árin hef ég verið fram- vörður. Annars hef ég verið úti á landi langdvölum á sumrin síðan ég var 10 ára, en komið í bæinn við og við, og þá æft eins og ég hef getað. Ég hef reynt að hafa bolta með mér, og notað hann eftir því sem tíminn hefur leyft. Eftir að ég kom í 4. fl. var ég í B-liðinu, og alltaf varamaður hjá A- liðinu. Það var dálítið skrýtinn að- dragandi að fyrsta markinu sem ég skoraði, en það var í leik við KR. Það var mikil þröng við mark þeirra, og mikið hamast, en ég stóð svolítið utanvið, og sá þá boltann þar sem hann lá milli manna, sem höm- uðust við að leita að honum. Hljóp ég þá til og náði að sparka, með þeim árangri að hann fór í markið. Eftirminnilegasti leikurinn sem ég hef leikið var úrslitaleikurinn í Haust- mótinu við KR. Þegar þrjár mínútur voru til leiks- loka hafði ekkert mark verið skorað, en þá fáum við hornspyrnu. Knöttur- inn kom vel fyrir, og einum okkar tókst að skora. Á næstu mínútu er dæmd aukaspyrna á KR, langt úti á velli. KR-ingarnir raða sér upp í ,,vegg“ nærri vítateigslínunni, og markmaður hafði einnig fært sig nær „veggnum“, en þá skeður það að sá sem tók spyrnuna sparkaði yfir „vegg- inn“ og markmanninn og beint í mark- ið, og var þetta eina mótið sem þriðji flokkurinn vann í sumar. Þrátt fyrir þennan sigur er ég ekki ánægður með árangurinn í sumar, og ég held að ástasðan sé sú, að æf- ingar voru ekki nógu vel stundaðar. Ég vona því að þetta verði ekki svona næsta sumar. Það er mín skoðun að það þyrfti að koma oftar saman á fundi til að ræða um leiki sem fara í hönd, og einnig þá sem síðast voru leiknir. Ég fylgdist nokkuð með meistara- flokki í sumar og var ekki ánægður með hann. Mér fannst eins og þeir hefðu ekki þann áhuga sem þarf til að ná langt. Ég álít að þessir menn hver og einn hafi það mikið í sér af knattspyrnu, að þeir hefðu átt að geta unnið íslandsmótið, ef þeir hefðu lagt hart að sér. Ég hef trú á því að 3. fl. haldi sam- an á næsta ári, því að nú sameinast fjórði flokkurinn frá því í fyrra, sem var svo sigursæll. Þá vil ég geta þess hér, að við komumst ekki til dvalar að Laugavatni eins og okkur hafði verið lofað. Þetta átti svo að bæta upp með ísafjarðar- eða Akureyrar- ferð, sem ekkert varð svo úr. I sumar var svo farið til Norðf jarðar, en vegna utanfarar handknattleiksflokkanna var ekki hægt að fá nema 12 leik- menn til fararinnar, sem var sam- bland af A og B. Ferðin var skemmtileg en þátttaka allt of lítil. Ég vil svo að lokum segja, að ég er mjög ánægður með lífið í Val. Mér hefur alltaf þótt gaman að vera þar með og æfa. Ég vil því hvetja dreng- ina til að halda áfram, og leggja sig alla fram. Helgi Benediktsson fyrirliði 2. fl. Þetta gekk nú ekki alveg nógu vel í sumar hjá okkur. Eins og byrjunin var gátum við verið bjartsýnir, því að við vorum í öðru sæti eftir Reykja- víkurmótið, og satt að segja gátum við alveg eins unnið og Víkingur. Piltarnir voru áhugasamir og var það fyrst og fremst Noregsferðin sem skapaði þann áhuga. Islandsmótið gekk vel framan af, en svo glopruðum við því niður með tveim jafnteflum í leikjum sem við hefðum átt að geta unnið. Töpuðum fyrir Vestmannaeyingum í miklum rokleik, og einkenndist allt spil af veðrinu. Svo fórum við í keppnisferðina til Noregs, og tókst hún í alla staði mjög vel. Við lékum þrjá leiki og unnum 1, gerðum 1 jafntefli og töpuðum 1. Við vorum óheppnir að tapa fyrir Stange, en þess má geta að við lékum þar við nokkuð eldri menn en við vorum. í Osló tókum við svo þátt í svo- nefndum Norway-Cup, en þar máttu vera með piltar sem voru á fyrsta og öðru ári í 2. fl. Voru keppendur frá Norðurlöndunum og Þýzkalandi. Töp- uðu okkar drengir í 16 liða úrslitun- um. Þess má þó geta, að þeir töpuðu aðeins með 3:1 fyrir liðinu sem varð endanlega í úrslitunum í keppninni, en tapaði. Okkar piltar áttu í fullu tré við mótherja sína. Það sem helzt var áfátt hjá þeim í samanburði við erlendu lið- in yfirleitt, var vöntun á leikni, þar voru þeir lakari. Baráttuviljinn var sízt lakari né krafturinn hjá okkar drengjum. Þetta virðist mér benda til þess, að það verði að taka strax í fimmta flokki til við að kenna þeim undir- stöðuatriðin sem nákvæmast. Mér finnst að skilyrðislaust verði dreng- irnir að hafa lært þetta þegar þeir koma í 2. flokk. Ég held að ekki eigi að leggja mikið upp úr þrekæfingum fyrr en á síðara árinu í þriðja flokki, og svo herða verulega á þrekþjálfun- inni í 2. flokki. Svo komum við heim eftir gott ferðalag, og þá byrjar allt að ganga á afturfótunum. Þá var yfirleitt slak- að á öllum æfingum, eins og allur áhugi væri búinn. Svo alvarlegt var þetta, að í haustmótinu móti KR hafði Valur ekki fullt lið og urðum við að leika 9! Smalað var í lið fram á síð- ustu stundu til að ná í drengi. Við tókum þann kostinn að rýra ekki B- liðið, og væri ekki hægt að smala í lið lékum við þá aðeins 9, eins og fyrr sagði. Það eina sem hægt væri að gera, væri að reyna að ná betur saman og hittast utan vallar á fundum og skemmtifundum, rabba saman um leiki og félagsmálin, eins og gert var áður en við fórum í ferðina, en þegar við komum heim féllu þessir fundir niður. Það virðist vera, að aðalmark- miðið með æfingunum hafi verið för- in út og þar með væri þeirra hlut- verki lokið að kalla. Maður hélt þó að svona för ætti að auka samheldn- ina innan liðsins í nútíð og framtíð, en það varð sem sagt eitthvað annað. Á þá að leggja svona ferðir niður? Þó svona hafi tekizt til í þetta sinn, þá er ég hvetjandi þess að unnið verði að svona ferðum í öðrum flokki, til að keppa í öðrum löndum. Með tilliti til þessarar reynslu í sumar og fram- komu piltanna eftir heimkomuna, finnst mér eðlilegt að gerðar séu kröf- ur til þeirra sem komast í svona ferð, þannig að þeir séu ekki lausir allra mála þegar heim er komið. Þessi ungi maður hefur komið víðar við innan Vals en í knattspyrnunni. Hann hefur tekið þátt í badminton-

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.