Valsblaðið - 11.05.1973, Side 47
VALS BLAÐIÐ
45
mótum og náð þar athyglisverðum
árangri. Hvað getur þú sagt okkur
um þátttöku þína í badminton á liðnu
keppnistímabili, Helgi ?
Mér hefur gengið nokkuð vel í bad-
minton, og má í því sambandi geta
þess að við Ragnar Ragnars urðum
íslandsmeistarar í tvíliðaleik karla í
fyrsta flokki. Einnig varð ég íslands-
meistari í einliða leik karla í fyrsta
flokki og hef nú réttinn til að leika
næsta ár í meistaraflokki.
Þá má geta þess að við Ragnar urð-
um sigursælir í afmælismóti KR.
Ég hef mjög gaman af að leika bad-
minton, og takmarkið er að sjálfsögðu
að komast upp fyrir þá gömlu. Það
er líka að verða meiri breidd í þessu
meðal yngri manna.
Mér finnst Badminton-deildin í Val
alltaf vera að eflast, og hefur verið
reynt að efla unglingastarfið og erum
við að vona að þar myndist kjarni
sem gæti orðið aðaldriffjöður deild-
arinnar í keppni, og sem gæti svolítið
ógnað einræði TBR.
Ég vil svo að lokum þakka Lárusi
góða þjálfun og einnig Guðlaugi fyrir
allt þeirra starf í þágu flokksins. Ég
vil líka f. h. flokksins þakka þeim
Ægi Ferdinandssyni og Elíasi Her-
geirssyni fyrir frábæra fararstjórn,
sem átti sinn þátt í að gera ferðina
ógleymanlega. Ég vil svo skora á þá
sem ganga upp í fyrsta aidursflokk-
inn að halda hópinn með það markmið
í huga að slá út þá fullorðnu, sem
eru í meistaraflokki. Eins vil ég skora
á þá sem eftir verða að slaka ekkert
á og æfa vel, vitandi með vissu að
félagið á eftir að þarfnast þeirra í
framtíðinni.
Kristján
Þorvaldsson
fyrirliði
2. fl. B.
Ég byrjaði nú víst að fást svolítið
við knattspyrnu í KR, en þá áttum
við heima í Vesturbænum, en við flutt-
um fljótlega upp í Hlíðar. í mínum
bekk í skólanum voru margir dreng-
ir úr Val, og fylgdi ég þeim. Ég var
orðinn 12 ára þegar ég fór að keppa,
og það voru aðeins fyrstu leikirnir
á vorin því að ég fór alltaf í sveit á
sumrum á þeim árum, svo að ég gat
ekki æft eins mikið og mig hefði lang-
að til. Þá lék ég fyrst í framlínu, en
þegar ég var á síðasta ári í þriðja
flokki A fluttist ég aftur sem mið-
vörður.
Mér er alltaf minnisstæður leikur
við Víking sem við töpuðum 4:0 í
hellirigningu og leiðindaveðri. Bolt-
anum gleymi ég heldur ekki, hann
var eins og blaðra, sem hoppaði allt
öðruvísi en við áttum að venjast. í
Haustmótinu jöfnuðum við svolítið
um þetta, því þá varð jafntefli 1:1.
Síðasti leikurinn í Haustmótinu
núna var líka spennandi og lengi óviss.
Stigin stóðu þannig að okkur nægði
jafntefli við KR í úrslitaleik. En þetta
byrjaði nú ekki sérlega glæsilega fyr-
ir okkur. í leikhléi stóðu leikar 2:0
KR í hag!
Þá var ákveðið að sýna enga mis-
kunn, vera fljótari á boltann og berj-
ast til síðasta blóðdropa, og með þessu
hugarfari var lagt til atlögu í síðari
hálfleik. Þetta fór nú smátt og smátt
að ganga betur, vorum við farnir að
ná betri tökum á leiknum, og svo kom
að því að við skorum mark, og við
það urðum við ákafari í að ná a. m.
k. jöfnu og bikarnum. Þegar svo all-
langt var liðið á hálfleikinn tókst okk-
ur að jafna 2:2. KR-ingar ætluðu ekki
að gefa sig heldur, og var nú sótt og
varizt á báða bóga, en okkur tókst
að halda jafnteflinu og taka bikarinn
með heim.
Annars gekk okkur í 2. fl. B vel í
sumar, við unnum öll mótin sem við
tókum þátt í, töpuðum einum leik og
einn varð jafntefli.
Ég æfi einnig handknattleik hjá
Val og hef gert það síðan ég var 11
ára. Ég tók þátt í ferð handknatt-
leiksmanna Vals til Norðurlanda í
sumar og var hún sérlega skemmtileg.
Tókum við þátt í tveim stórum mót-
um. Var annað í Danmörku en hitt
í Svíþjóð.
Ef ég ætti að reyna að gera sam-
anburð á okkar fólki og því sem þarna
var, get ég sagt að hvað þrek snertir
vorum við sízt lakari. Hvað leikinn
snertir þá lékum við frjálst án þess
að fella hann í „kerfi“, þó að mörg
liðanna gerðu það. Beztu liðin sýndu
meiri snerpu og betri boltameðferð.
Þetta var því mjög mikil reynsla
fyrir okkur að sjá hvar við stöndum
í samanburði við jafnaldra okkar frá
öðrum löndum. Það verður svo að
ráðast hvernig okkur tekst að virkja
þessa reynslu okkar.
Okkur þóttu Danir ekki sérlega gest-
risnir, og kom það sérstaklega fram
varðandi fæðið, bæði gæði og magn.
í Svíþjóð var þetta alveg öfugt.
Mér finnst ástæða til að endurtaka
slíka ferð.
Og svo ég snúi mér nú aítur að
knattspyrnunni, að þá fannst mér
andinn góður, eins og ég kynntist hon-
um. Áður en farið var út voru haldn-
ir kökufundir reglulega, þá var rætt
um ferðina og fjáröflun. Samstaðan
milli piltanna var góð og félagslífið
í heild.
Ég vil svo að lokum þakka Lárusi
og Guðlaugi fyrir gott samstarf. Ég
er bjartsýnn með 2. fl. á næsta keppn-
istímabili ef drengirnir standa sam-
an og æfa vel.
Handknattleikur
Martin
Barðason
5. flokkur
Ég var nú orðinn 9 ára er ég byrj-
aði að iðka handknattleik og um það
leyti gekk ég í Val. Pabbi vildi að ég
gengi í Val, hann æfði þar þegar hann
var ungur. Ég lék nú aðeins einn leik
þetta fyrsta ár mitt í félaginu, og ég
held að við höfum tapað honum.
Þegar ég var 10 ára fór ég með
pabba mínum og mömmu til Englands
og var fjölskyldan þar í hálft ár. Ég
átti heima rétt hjá knattspyrnuvelli
Christal Palace, og fórum við pabbi
nokkuð oft að horfa á leiki þar, ann-
ars er Chelsea mitt uppáhaldsfélag.
Nú er ég byrjaður aftur að æfa
handknattleik með Val, og drengirnir
mæta sæmilega vel á æfingarnar, en
við erum ekki farnir að keppa ennþá,
en byrjum bráðum. Ég er nú heldur
bjartsýnn með keppnistímabilið sem
er að byrja. Við höfum líka góða
þjálfara, en það eru Davíð Lúðvíks-
son, Jón Leví Hilmarsson og ívar
Eysteinsson. Ef við æfum vel getum
við náð góðum árangri.
Ég er bakvörður, oftast vinstra
megin, en við og við hægra megin.
Ég á heima suður í Garðahreppi, og
lék því knattspyrnu með „Stjörnunni"
í sumar og urðum við í öðru sæti í
okkar riðli. Hins vegar finnst mér
handknattleikurinn fjörlegri og
skemmtilegri.
Ég hef nú ekki haft aðstöðu til að
stunda félagslífið hjá Val að undan-
förnu, en verði fundir og spjall um
handknattleik fyrir okkur, ætla ég
að sækja þá. Ég hef mjög gaman af
handboltanum og æfingunum, og svo
hlakkar maður til að fara að keppa.
Mér hefur alltaf þótt gott að vera
í Val, og mér finnst Valur eigi oftast
beztu mennina.
Ég vil svo segja það að lokum, að
ég er ákveðinn að æfa vel í vetur og
ég vona að allir drengirnir í flokkn-
um geri það líka.