Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 51

Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 51
VALSBLAÐIÐ 49 Sigurdói' Sigurdórsson: Valsdagurinn 1972 Valsdagurinn í sumar tókst að flestu leyti vel miðað við Valsdaga næstu árin á undan, en þó eru komn- ar upp háværar raddir um að dagskrá og formi þessa dags verði að breyta nokkuð, ef hann á að ná þeim til- gangi, sem ætlazt er til. Sannleikur- inn er sá, að allt of fáir foreldrar, miðað við þann fjölda barna sem iðka íþróttir í Val, koma að Hlíðarenda þennan dag. Hvernig við eigum að fara að því að laða fleiri foreldra að, er ekki gott að segja um, en þessi síð- asti Valsdagur sýndi það greinilega að eitthvað verður að gera. Veðurguðirnir höfðu greinilega vel- þóknun á Val þennan dag, því að hann var einn af örfáum sólardögum sumarsins, þótt ekki liti allt of vel út í byrjun. Þungbúið og heldur kalt var fyrir hádegi, en svo létti til með sól og hlýjum andvara eftir hádegi, svo að ekkert var því til fyrirstöðu að allt mætti takast sem allra bezt sem og varð. Að vanda löbbuðum við um svæðið að Hlíðarenda og tókum gesti tali og fer rabb við gesti hér á eftir. Þökkum fyrir okkur Við hittum fyrst að máli hjónin Gunnar Einarsson og Málfríði Lor- ange og sögðu þau okkur að þau ættu tvo syni í Val. Annar þeirra er nú, þegar þetta blað kemur út, orðinn landsfrægur handknattleiksmaður og hafa fáir ungir menn komið fram á sjónarsviðið sem efnilegri hafa þótt, en hann, Jóhann Ingi Gunnarsson, var ekki orðinn svona frægur, þegar þetta viðtal átti sér stað í sumar. Hinn sonurinn heitir Steindór og leik- ur með 3. fl. Við spurðum þau hjónin fyrst að því, hvers vegna synir þeirra hefðu gengið í Val. Það er nú sjálfsagt hverfið sem við búum í, sem réði því að þeir gengu í Val, það var stytzt að fara þangað til æfinga. En hvorki við né þeir sjá eftir því að Valur varð fyrir valinu. Iþróttirnar eru þeirra líf og yndi og hér virðist okkur að allt sé gert fyrir unga fólkið sem hægt er og í valdi félagsins stendur. Nú, áhuginn hjá þeim Jóhanni Inga og Steindóri er slíkur að það er vart talað um ann- að heima, til að mynda við matborðið, en íþróttir og aftur íþróttir. — Og ef þau heima þreytast á að ræða þessi áhugamál, þá er komið til ömmu og málin rædd þar, segir Fanney Jó- hannsdóttir, amma þeirra Jóhanns og Steindórs, sem er þarna viðstödd. Þá segja þau okkur, Gunnar og Málfríður, að synir þeirra hafi farið utan með flokkum Vals í sumar og ekki hafi áhuginn minnkað við það. Við spurðum þau, hvort ekki væri dýrt að gera út tvo syni til íþrótta- iðkana ? Jú, íþróttafatnaður er dýr, en þeir vinna á sumrin, piltarnir, og sjá fyr- ir þessum hlutum sjálfir yfir vetur- inn, okkur finnst að þeir verji sum- arkaupinu sínu ekki betur en á þenn- an hátt. Farið þið oft á leiki þar sem synir ykkar eru þátttakendur ? Við gerðum það meira, þegar þeir voru yngri. Þá fórum við alltaf þeg- ar við komum því við. En eftir að þeir stækkuðu hefur það minnkað, enda virðist okkur sem áhugi þeirra fyrir því að við komum og fylgjumst með leikjum þeirra hafi minnkað eftir að þeir stækkuðu. Hafið þið komið hingað áður á Valsdaginn ? Já, það höfum við gert. Annars lík- ar okkur alveg sérstaklega vel þessi Valsdagur. Að vísu væri meira gam- an ef fleiri foreldrar, en raun ber vitni, kæmu hingað og kynntu sér það sem fram fer hjá félaginu. En við höfum nú þá reynslu, að við vit- um næstum allt sem hér gerist, það er ekki talað um annað heima en Val og það sem þar gerist og eflaust er þetta þannig hjá flestum öðrum for- eldrum sem eiga börn sín í Val. Þeir vita allt sem máli skiptir. V egalengdin skiptir ekki máli Hjónin Helga Jóhannsdóttir og Guðmundur Björgvinsson eru úr Kópavogi, en tveir synir þeirra eru í Val, og láta sig ekki muna um vega- lengdina til að stunda æfingar og annað félagslíf. Jón Sigurðsson borgarlæknir og Halldór Pétursson listamaður rabba saman á Valsdeginum 1962. Við spurðum þau fyrst hvers vegna Breiðablik í Kópavogi hefði ekki orð- ið fyrir valinu hjá sonum þeirra? Ja, þeir voru nú fyrst í Breiða- bliki, en líkaði það einhverra hluta vegna ekki og fóru í Val, og ég má fullyrða að enginn gæti fengið þá til að breyta aftur. Þau kynni sem við höfum haft af þessu félagi í gegn- um syni okkar eru á þann veg, að á betra verður ekki kosið. Okkur virð- ist sem mjög mikið sé fyrir drengina gert hjá félaginu og áhuginn er líka eftir því. Fótbolti og aftur fótbolti er það eina sem hugurinn snýst um yfir sumarið og um annað er ekki rætt heima. Þá viljum við lýsa velþóknun okk- ar á Valsdeginum. Það er mjög gam- an að geta komið hingað og séð það sem fram fer hjá félaginu. Við erum alveg viss um það, að ekkert tóm- stundalíf er hollara fyrir ungt fólk en íþróttaiökun og félagslíf á borð við það sem Valur skapar því. Við höfum afar góða reynslu af þessu og þökkum fyrir okkur. Er ekki erfitt fyrir drengina að stunda æfingar með skólanum yfir veturinn ? Jú, vissulega er það nokkuð stremb- ið, en þeir vilja allt leggja á sig til að geta stundað hér æfingar og ekki drögum við úr því, ef þeir vanrækja ekki lærdóminn og það hafa þeir ekki gert. Farið þið á leiki þar sem synir ykkar eru þátttakendur? Já, við gerum nú töluvert að því. Ekki kannski á hvern leik, en nokkuð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.