Valsblaðið - 11.05.1973, Page 52
50
VALSBLAÐIÐ
I gegn um markið urðu gestir að fara á „Valsdaginn“.
Guðmundur Björgvinsson og Helga Jóhannsdóttir ásamt sonunum Alberti og Brynjari.
Gunnar Einarsson og kona hans Málfríður Lorange ásamt Fanneyju Jóliannsdóttur.
oft og okkur virðist það afar vinsælt
hjá piltunum ef foreldrarnir mæta
þar, svo' að maður tali nú ekki um
ef eitthvað mikið liggur við.
Gott að vita af sonum
sínum í Val
Á grasvellinum hittum við Ásmund
J. Ásmundsson, en hann á tvo syni
í Val, Magnús Þór í 5. fl. og Ásmund
Pál í 4. flokki.
Það er gott að vita af sonum sín-
um hér í Val og þau kynni, sem ég
hef haft af félaginu, eru eins góð og
frekast verður á kosið. Hér virðist
mér mikið gert fyrir drengina, enda
eru þeir mjög ánægðir í félaginu og
áhuginn er ósvikinn, sagði Ásmund-
ur, þegar við báðum hann um smá
spjall fyrir Valsblaðið.
Ástæðan fyrir því að þeir gengu
í Val er sú, að þeir eiga heima hér
skammt frá og Valur er okkar hverf-
isfélag. Annars tóku þeir þetta upp
hjá sjálfum sér að ganga í Val. Ég
hef aldrei verið í íþróttafélagi og
hvatti þá hvorki né latti.
Og Valsdagurinn?
Hann er til fyrirmyndar og ekki
hefði ég komizt hjá því að líta hing-
að í dag, því sáu synir mínir fyrir.
Ég gæti nú ímyndað mér, að dagur-
inn gæti verið í öðru formi en hann
er og náð þá frekar tilgangi sínum,
en ég hef þó ekki lagt niður fyrir
mér hvernig það ætti að vera.
Finnst þér nóg fyrir syni þína gert
hjá félaginu?
Alveg tvímælalaust. Sem dæmi get
ég nefnt, að það var farið með
þá í ferðalag upp í Borgarfjörð í sum-
ar og annað því um líkt, og allt hef-
ur þetta orðið til að efla áhuga þeirra
fyrir félaginu og íþróttum að mun.
Ég vil þakka félaginu fyrir það sem
það hefur gert fyrir mína syni og
ég hygg að fleiri gætu tekið undir það.
Hér er allt á uppleið
Fullorðinn maður var að fylgjast
með leikjum yngri flokkanna á gras-
vellinum, og við snerum okkur að
honum og spurðum hvort þarna færi
Valsmaður.
Ég hef nú ekki verið skráður félagi
í Val, en ég á einn son í félaginu og
síðan hann hóf að leika með Val hef
ég fylgzt mjög vel með öllu hjá fé-
laginu. Maöurinn sem þetta segir heit-
ir Dagur Hannesson og son hans í
Val þekkja allir, hann heitir Sigurður.
Og ég get með sanni sagt, að öll
kynni mín af Val eru á þá leið, að ekki
verður á betra kosið. Ég hef reynt að
fylgjast eins vel með öllu hjá félag-