Valsblaðið - 11.05.1973, Page 56

Valsblaðið - 11.05.1973, Page 56
54 VALS BLAÐIÐ Fremsta röð: f. v.: Hafliði Loftsson, Einar Kjartansson, Grímur Sæmundsen, Birgir Jónsson og Itagnar Haraldsson. Önnur röð: f. v.: Guðlaugur Björgvinsson, Lárus Loftsson, Ægir Ferdinandsson, Elías Hergeirsson. Aftasta röð: Jón Guðmundsson. Sigurður Harðarson, Magnús Magnússon, Halldór Sigurðsson, Kristján Guðjónsson, Anton Einarsson, Helgi Benediktsson, Kristinn Björnsson, Hannes Lárusson, Ólaful Magnússon, Guðjón Harðarson, Jón Þór Einarsson, Sverrir Ögmundsson, Þórhallur Björnsson, Friðgeir Kristinsson og Jón Gíslason. fádæma góðar viðtökur, enda náði Silli sér alltaf vel á strik. Einn daginn hékk uppi eftirfarandi tilkynning á einhverju hrognamáli: „Hvis du hedder Jon skal du se paa det her. Klokken 2,55 begynder et show her i huset, er det bare for os som bor her i huset. Andre skal gaa ud og have fulstendig ro i skoven. Med venlig hilsen, Manden som laver tryllekunster." Þetta var tilkynningin fyrir það show sem hvað mesta frægð hefur hlotið. Þrátt fyrir það sem stóð í til- kynningunni kom nokkur f jöldi Norð- manna til að fylgjast með þessum einstaka atburði, og auðvitað lét eng- inn okkar sig vanta. Svo um klukkan tvö birtist Silli íklæddur kvenmanns- fötum, vippar sér upp á borð og síð- an hefst sú æðisgengnasta sýning sem sögur fara af í Brummunddal. Þriðja daginn tók svo alvaran við, en þá áttum við að keppa fyrsta leik í ferðinni. Hann átti að vera gegn liði, sem er frá bæ sem heitir Stange, og er um 20 km frá Brummunddal. Á leiðinni komum við í Hamar og skoð- uðum þar helztu söfn og aðra merka staði, svo sem ævafornar dómkirkju- rústir o. fl. Við vorum komnir til Stange um sexleytið og notuðum tím- ann fram að leiknum til að hvíla okk- ur, því að þetta labb um söfnin hafði verið nokkuð þreytandi. Á vellinum voru mættir smástrák- ar til að biðja um eiginhandaráritanir okkar. Við vorum auðvitað hinir hressustu yfir þessu, enda óvanir slíkum móttökum. Leikurinn byrjaði svo klukkan sjö. Við stilltum upp ágætu liði með Helga Ben. í farar- broddi. Þrátt fyrir hitann, og að Stange-menn væru með mun eldri pilta, náðum við nokkuð góðum tök- um á leiknum og skoruðum tvö fyrstu mörkin, en fyrir mikla óheppni misst- um við það niður í 2—2. í seinni hálf- leik gerði svo hvort lið eitt mark þannig að leikurinn endaði 3—3. í blöðunum daginn eftir var leiksins getið og sagt að við hefðum verið góðir, einnig var sérstaklega minnzt á Þórhall og Guðjón, en að blaðanna dómi var Helgi bezti maðurinn á vell- inum, sá varð ekki lítið montinn þeg- ar hann las þetta. Þeir, sem skipulögðu dvöl okkar í Brummunddal, stofnuðu til margra skemmtiferða um nágrenni bæjarins, t. d. fórum við í hraðbátasiglingu á Mjösa, ánni sem Brummunddal stend- ur við, einnig fórum við í um 300 km langan bíltúr upp hinn svokallaða Birkibeinaveg, sem er leið sem vík- ingar fóru forðum, og síðan niður í Guðbrandsdalinn. Það þurfti endi- lega að hittast svo á, að þegar við fórum í okkar aðra siglingu á Mjösa kom fyrsti rigningardagurinn. Að þessu sinni sigldum við á elzta gang- færa skipi í heiminum og var ferð- inni heitið til Lillehammers. Ferðin tók um tvo tíma, en eins og áður segir, setti veðrið mikið strik í reikninginn. Þegar dagurinn var frjáls, þ. e. a. s. þegar engar ferðir voru skipulagðar, notuðum við tímann til æfinga, og oft kom það fyrir, að þær urðu tvær á dag, enda ekki vanþörf á, því að eitt- hvað varð að vega upp á móti hinu mikla sældarlífi sem við lifðum. Einn- ig var aðalleikurinn við gestgjafana sjálfa framundan. í sambandi við þennan leik ríkti töluverð eftirvænt- ing, því að allir vildu vera með. Við vissum að þeir voru með sterkt lið, þannig að við vorum aldrei þessu vant ekki búnir að bóka sigur fyrirfram. Þegar liðið hafði verið birt kom í ljós, að það voru sömu menn og skip- uðu hið venjulega A-lið, sem áttu að fá að vera þess heiðurs aðnjótandi að keppa þennan þýðingarmikla leik. Leikurinn átti að fara fram þann 6. júlí, við sem áttum að keppa, vor- um nokkuð taugaóstyrkir, því að fjöldi fólks myndi horfa á, og það er alltaf leiðinlegt þegar áhorfendur verða fyrir vonbrigðum, það reið því á að standa sig vel. Rétt áður en leikurinn átti að byrja gerðum við allt til að reyna að róa okkur, því að spenningurinn var mik- ill. Rétt áður en að við hlupum inn á völlinn, sungum við eða réttara sagt öskruðum hið ágæta lag Valsmenn léttir í lund, og það var eins og söng- urinn losaði aðeins um spennuna, því að það var einhuga og samstillt lið sem hljóp út á völlinn. Leikurinn byrjaði ekki beint sannfærandi af okkar hálfu, því að Brummunddal náði strax að ógna okkur töluvert, en fljótlega áttuðum við okkur á ástand- inu og náðum öllum tökum á vellin- um, það er ekkert efamál, að þetta var lang bezti leikur okkar í sumar, og oft sáust frábærir kaflar. Þrátt fyrir yfirburði voru tvö fyrstu mörk- in hálfgerð klaufamörk, án þess að nokkuð sé verið að gera lítið úr af- reki Þórhalls, sem skoraði þau bæði. Eftir fyrri hálfleik var staðan sem sagt 2—0 fyrir okkur, en í þeim seinni byrjar Kiddi á því að skora og síðan kom Þórhallur svo með það fjórða. Þegar nokkrar mínútur voru eftir fá andstæðingarnir dæmda vítaspyrnu á okkur, sem þeir skora úr, þannig að lokastaðan verður 4—1. Að leik lokn- um hrósuðu menn okkur fyrir mjög góða frammistöðu. Ég vil einnig geta þess að Brummunddal-drengirnir sýndu mjög góðan leik og var sérlega ánægjulegt að leika gegn þeim. Við vorum í sigurvímu lengi á eftir, og ekki að ástæðulausu, því að hver mað- ur stóð sig eins og hetja. í einu dag- blaðanna stóð orðlétt: „Valurs lag bestár av unge, teknisk gode og meg- et hurtige spillere". Síðan var þess getið í þessari sömu grein að í lið- inu væru Helgi og Guðjón beztir,

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.