Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 58
56
VALS B LAÐIÐ
flermann llermannsson:
Hver er Valsmaðurinn
Margir munu þeir vera, er minnast
Einars Halldórssonar, sem lék knatt-
spyrnu með m.íl. Vals á árunum 1947
—1957, oft sem fyrirliði og einnig lék
hann í landsliði íslands á þeim árum.
Einar er fæddur í Vestmannaeyj-
um 2. júní 1923. Ungur að árum byrj-
aði hann að æfa knattspyrnu, sem
átti eftir að verða hans uppáhalds
íþrótt, því hann tók jafnframt nokk-
urn þátt í frjálsum íþróttum svo sem
hlaupum, kringlukasti og stangar-
stökki, sem á þeim árum var oft
nefnd „þjóðaríþrótt" Vestmannaey-
inga. Naut hann þá m. a. tilsagnar
Friðriks Jessonar hins frábæra
íþróttamanns og íþróttaleiðtoga.
Árið 1935 kom Einar sem mark-
maður með III. fl. K.V. (úrvalslið úr
Tý og Þór) til Reykjavíkur þá aðeins
12 ára gamall. Háðu þeir 3 leiki við
lið úr Víkingi og KR. Unnu þeir 2
og töpuðu einum, og þótti allgott. En
bezt í þeirri ferð var e. t. v. að þá
gafst þeim tækifæri til að sjá þýzkt
úrvalslið sem lék nokkra leiki við
Reykjavíkurfélögin og úrvalslið
þeirra. Voru þetta framúrskarandi
leikmenn, sem margir áttu eftir að
verða landsliðsmenn. Var þetta góð
reynsla fyrir hina ungu og áhuga-
sömu Eyjaskeggja, sem komu reynsl-
unni ríkari heim.
Upp frá þessari heimsókn urðu
ferðir Eyjamanna til þátttöku í knatt-
spyrnumótum í höfuðstaðnum tíðari.
Einar var þátttakandi í mörgum slík-
um ferðum með II. og I. fl., sem þá
var raunar meistaraflokkur Eyja-
manna. En þá hafði Einar hætt mark-
vörzlunni og lék ýmist sem miðvörð-
ur eða innherji.
Árið 1945 fer Einar til náms í Verzl-
unarskóla íslands og lýkur þaðan
prófi eftir tvo vetur. Haustið 1946
flytur hann til Reykjavíkur og ger-
ist þegar félagi í Val. Vorið 1947 lék
Einar nokkra leiki með m.fl. Vals en
fór um sumarið norður á síld, en kom
um haustið aftur í m.fl. Svo var frami
hans skjótur, undir handleiðslu hins
ágæta þjálfara Vals, Joe Devine, að
1948 er hann landsliðsmaður gegn
Finnlandi og var þar með leikmaður
í fyrsta sigurliði íslands í knatt-
spyrnulandsleik. Lék hann v. inn-
herja. Landsleikir Einars urðu 9 auk
B-landsleikja og fjölda úrvalsleikja,
sem leiknir voru á þessum árum.
Minnisstæðir leikir.
Sigurinn yfir Svíum í Reykjavik
1951 (4:3) er Ríkharður skoraði sín
4 mörk með miklum glæsibrag mun
lengi í minnum hafður. En leikurinn
við Svía í Kalmar 1954 þegar Svíar
ætluðu virkilega að borga fyrir sig,
var ekki síður eftirminnilegur fyrir
Einar Halldórsson (í hvítri peysu) og
Hans Andersen.
þátttakendurna, því að Svíar skoruðu
sigurmark sitt á síðustu sekúndum
leiksins, en úrslitin urðu (3:2). Einar
lég í þessum leikjum í vörninni.
Finnar fengu líka að kynnast Ein-
ari betur 1956, þegar landsliðið ís-
lenzka lék á Olympíuleikvanginum í
Helsinki við finnska landsliðið í til-
efni af 50 ára afmæli finnska íþrótta-
sambandsins. Að leik loknum hlaut
Einar bikar sem bezti leikmaður síns
liðs. Tveir aðrir eftirminnilegir leik-
ir fóru fram í Finnlandi í þessari
sömu för.
Landsleikur í Þrándheimi 1951 við
norska landsliðið, (3:1) fyrir Noreg,
er eftirminnilegur. Einnig landsleik-
ir í Reykjavík við Noreg, Danmörku
og U.S.A.
Minningin um Færeyjaför Vals
1957 vekur ætíð hlýjar hugsanir í
garð vina okkar þar.
Ferðin til Bandaríkjanna 1956 og
þrír leikir þar m. a. við ísraelsmeist-
arana „Maccabi“ frá Tel-Aviv er
ógleymanleg.
Einar getur um þann skemmtilega
leik, er hann og Hreiðar Ársælsson
léku, sem lánsmenn með Akraneslið-
inu, sem vann danska landsliðið á
Melavellinum við gífurleg fagnaðar-
læti áhorfenda.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
stóru í knattspyrnuferli Einars Hall-
dórssonar, því að svo litríkum knatt-
spyrnuferil fylgir að sjálfsögðu fjöld-
inn allur af eftirminnilegum atvikum
innan vallar sem utan.
Stjórn og félagslíf.
Ekki stóð á Einari að taka að sér
erilssöm nefnda- og stjórnarstörf fyr-
ir knattspyrnufélagið Val, allt frá
hinni frægu „jarðskjálftatombólu" í
Skátaheimilinu upp í kappliðsnefnd
og síðar í aðalstjórn félagsins í nokk-
ur ár.
Iieykjavíkurmeistarar 1951.
Aftari röð: John Finch þjálfari, Bragi Jónsson, Gunnar Gunnarsson, Sigurður Ólafs-
son, Sveinn Helgason, Einar Halldórsson, Hafsteinn Guðmundsson, Ægir Ferdinands-
son og Jóhann Eyjólfsson, formaður Vals. — Fremri röð f. v.: Halldór Halldórsson,
Sigurhans Hjartarson, Helgi Daníelsson, Guðbrandur Jakobsson og
Gunnar Sigurjónsson.