Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 59

Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 59
VAL.S B LAÐIÐ 57 Síðasta blaðaviðtal Frímanns Helgasonar Viðtal við fyrrverandi formann Vals, Ægi Ferdinandsson, sem var fararstjóri II. fl. knattspyrnumanna til Noregs sl. sumar. Þetta viðtal er margra liluta vegna atliyglisvert, en þó er það atliyglisverðast að einu leyti og það er að þetta er síðasta við- talið, sein Frímann lieitinn Helgason átti fyrir Valsblaðið. Á þessum árum fóru allir kapp- leikir fram á Melavellinum og var því stutt að skreppa í kaffisopa til Einars og Sigrúnar á Ljósvallagöt- unni, eftir leiki. Þau hjón eiga 4 dætur og 1 son, Halldór, sem eins og kunnugt er hef- ur fetað í fótspor föður síns í Val. Þeir eru margir, sem halda því fram að piltar utan af landi hafi fengið meiri reynslu og herzlu í uppeldi en við höfuðstaðarpiltarnir. Víst er um það, að þeir eru sprækir „peyjarnir" úr Vestmannaeyjum, Akranesi, Kefla- vík og víðar. Ég hef þá skoðun að fólk úr þessum byggðalögum fylgi sínum mönnum miklum mun betur eftir, bæði með því að hvetja þá til æfinga og mæta dyggilega með þeim til keppni. Dæmi nú hver sem vill. Athafnir og störf. Einar er nú skrifstofustjóri hjá Björgun h.f. Þótt knattspyrnan hafi tekið mikið af frítíma Einars hefur hann alla tíð síðan hann kom til Reykjavíkur átt trillubát og róið með handfæri vor og sumar með félögum sínum á „Sæ- björgu“ og haft af því gagn og gam- an. Til gamans má geta þess, að eitt sinn, er hann átti að leika með úr- valsliði Reykjavíkur gegn dönsku úr- valsliði, er hér var statt, var hringt til hans rétt áður en leikurinn átti að hefjast og sagt að trillan væri komin að því að sökkva í höfninni. Nú voru góð ráð dýr, trillunni varð að bjarga og Danina varð að vinna, og voru því höfð snör handtök allt í réttri röð, trillan ausin og síðan haldið til leiks við Dani, sem „land- inn“ sigraði með miklum glæsibrag og með góðri aðstoð trillukarlsins úr Val. Sterk lið og leikmenn. Einar minnist „Lokomotiv“ hins rússneska, sem eins af hinum beztu liðum, er hann mætti á leikvelli, og eru honum sjálfsagt margir sammála um það. Hinn minnist Þórðar Þórðarsonar af Akranesi sérstaklega sem drengi- legs og jafnframt harðsnúins mót- herja, sem honum bar á löngum knatt- spyrnuferli að hafa nánar gætur á fremur öðrum mótherjum sökum stöðu sinnar sem miðvörður bæði í Reykjavíkurúrvali og í Valsliði. Auð- vitað lék hann með fjölmörgum stór- spilurum og mun nafn Alberts Guð- mundssonar þar að sjálfsögðu bera hæst. Einar lauk knattspyrnuferli sínum árið 1957, kominn vel á fertugsaldur- inn og var þó þá mikil eftirsjá í hon- um úr fallegu Valspeysunni, sem allt- af klæddi hann svo vel. Var þetta sterkt lið sem Valur sendi til Brumunddalen? Ef miðað er við 2. flokk Vals i langan tíma. var þetta lið miðlungs- sterkt. Þess ber þó að geta, að liðið hefði getað verið sterkara, ef allir hefðu farið, sem það máttu. Varst þú ánægður með íþrótta- árangurinn í ferðinni? Það skal tekið fram, að keppnis- ferðalag þetta skiptist í tvennt. Ann- ars vegar endurgjald heimsóknar Brumunddalen hingað, og hinsvegar þátttaka í alþjóðlegu móti unglinga í Osló. Það má segja að íþróttaárang- ur hafi orðið all góður. Annars er ekki gott að setja mælistiku á árang- ur liðsins, því að liðið lék aðeins einn leik við, það sem segja má eðlilegar aðstæður, en þá á ég við leikinn við lið Brumunddalen, sem Valur vann. Á þeim árstíma sem við vorum í Noregi, er erfitt fyrir félögin að ná saman liði sem tilheyrir þessum ald- ursflokki. Þess vegna urðu tvö félög að grípa til þess ráðs að nota eldri meðlimi til að hafa fullt lið. í Oslóar- keppninni gilti hámarksaldur þátt- takenda, sem þýddi það, að við gátum ekki notað 6 af okkar leikmönnum. Hvernig var félagslega hliðin á ferðinni: Andinn í hópnum og fram- koman yfirleitt? Félagsandinn í hópnum var mjög góður, enda hafði undirbúningur all- ur staðið lengi, undir góðri forystu þeirra þjálfaranna Lárusar Loftssonar og Guðlaugs Björgvinssonar. Fram- koma piltanna var ágæt- Kurteisir og prúðir þegar það átti við, og léttir og kátir þegar það átti við. Hvernig voru móttölcurnar? Móttökurnar voru mjög góðár. Við fundum það strax þegar á móti okkur var tekið á flugvellinum, að við vorum hjartanlega velkomnir, og alla ferð- ina fundum við það, að reynt var að gera okkur dvölina eins skemmtilega og hægt var. Hjá almenningi fund- um við að það er gott að vera Islend- ingur í Noregi. Varst þú var við áhuga hjá Bru- munddalen að halda þessu samstarfi áfram? í viðræðum okkar við forystumenn Brumunddalen kom fram áhugi þeira á frekari samskiptum félag- anna. Þeir virtust ánægðir með sam- skiptin við Val, og sérstaklega voru þátttakendur þeirra til æfintýraeyj- unnar í boði Vals ánægðir. Ert þú meðmæltur því, að samvinna milli Vals og Brumundalen haldi á- fram ? Ég hef ávallt verið meðmæltur sam- skiptum við félög annarra þjóða, og þó sérstaklega Norðurlandaþjóða. Vil ég í því sambandi benda á ágætt sam- starf okkar við Lyngby Boldklub í Danmörku, og ekki sízt þetta sam- band okkar við Brumunddalen. Ég er eindreginn stuðningsmaður áfram- haldandi samvinnu við Brumunddalen og vona að forystumenn félagsins taki strax upp þráðinn, um nánari samvinnu félaganna. Hvað vildir þú segja meira um þetta ferðalag? Skömmu áður en ferðin skyldi hefjast, var þess farið á leit við mig að ég tæki að mér fararstjórn ásamt Elíasi Hergeirssyni. Það er mjög æskilegt, að fararstjórar taki þátt í öllum undirbúningi, svo að ég var heldur tregur til. En þegar ég nú lít til baka úr huga minninganna, er ég mjög þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að vera með í þessari ferð, sem verður mér lengi minnis- stæð. Ekki sízt fyrir það, hve góð samvinna var við piltana, og gagn- kvæmur skilningur á hlutverkum okk- ar. Ég álít að slíkt ferðalag sé bæði gagnlegt fyrir þátttakendur og Val. Þátttakendur þroskast félagslega, kynnast erlendri frændþjóð og ekki sízt bindast Val sterkari böndum. Valur stækkar starfsemi sína og gefur félögum sínum kost á skemmti- legu ferðalagi, kynnir sig á erlendri grund, og ekki sízt má félagið eiga von á því að ná betri árangri hér heima bæði félagslega og íþróttalega.

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.