Valsblaðið - 11.05.1973, Side 60

Valsblaðið - 11.05.1973, Side 60
58 VALS BLAÐIÐ Fvímann llvltjuson: V alsfjölskyldan Það hefur komið í ljós, að þessi þáttur okkar er orðinn mjög vinsæll, og hafa margir látið að því liggja, að gaman væri að vera þar og eru margir að sjálfsögðu þess verðugir; það er því allt af sami vandinn, sem að ritstjórninni steðjar, að velja rétt, og hverju sinni vonum við, að það höfum við gert, og þó vitum við það aldrei. Við vonum að með árunum komi þetta allt til skila og það þó að við vitum að alltaf eru þessar fjölskyld- ur að verða til og stækka. Það er þessi dásamlega, mannlega þróun, sem bet- ur fer ekkert getur stöðvað, það er í rauninni lífið sjálft. Að þessu sinni eru það tvennir bræður, sem koma fyrst og fremst við sögu, og svo börn og barnabörn. Mörg ár eru á milli þessara bræðra, eða hátt upp í hálf öld. Þeir eldri komu við sögu milli 1920 og ’30, og heita Þorsteinn B. Jónsson málara- meistari og Jón G. S. Jónsson múr- arameistari. Báðir komust þeir í kynni við knattspyrnuna í KFUM, og þá fyrst í Hvat og síðan í Val. Jón var virkari í knattspyrnunni, og var í þeim hópi, sem var að þjappazt saman, um og upp úr 1924, fyrst í þriðja flokki og síðan í öðrum flokki allt til árs- ins 1928, þeim sögufræga flokki, sem lagði til marga þá menn sem sigruðu svo íslandsmótið 1930. Þó að Jón hafi hætt knattspyrnu 1928, hefur hann haldið slíkri tryggð við Val að fátítt er, og gerir það enn þann dag í dag. Þorsteinn var ekki eins virkur í keppni þótt hann æfði framan af, en hugur hans til Vals hefur verið á þann veg, að lengra er tæpast hægt að ganga. Hann hefur líka sýnt að hann telur ekki eftir handtök með pensil í hönd í húsakynnum félagsins. Hann hefur líka verið eggjandi og hvetjandi sitt. fólk til athafna fyrir Val. Sonur hans Sigurður æfði í þriðja flokki og öðrum flokki og erfði frá föður sínum tryggðina við Val, en hann varð að hætta í lok ferils síns í öðrum flokki vegna meiðsla o. fl. Hinir bræðurnir — tvíburar —• eru yngri og leika nú í þriðja flokki og lofa góðu sem framtíðarmenn, enda hvattir af afanum og afabróður, en móðir þeirra er dóttir Þorsteins. Því má skjóta hér inn, að litlu munaði og má nánast kalla það „slysni“, að ein af glæsilegustu handknattleiks- konum íslands var ekki með í „Vals- fjölskyldunni“ að þessu sinni, en það var hin snjalla og geðþekka stúlka, Gerða Jónsdóttir, sem lék með KR, en hún er dóttir Jóns. Hér fer svo á eftir það sem fjöl- skyldan hefur að segja um Val og við- horf sitt til félagsins: Þorsteinn B. Jónsson. Ég er fæddur 1908, og er því orð- inn 64 ára. Ég byrjaði að sparka bolta í Hvat í KFUM. Við drengirnir vorum alltaf að leika okkur með fót- bolta. Ég var mjög ungur þegar ég byrjaði, en svo þegar Hvatur hætti og félögin sameinuðust fylgdist ég með til Vals. Það var víða æft á auð- um svæðum, og má þar nefna ösku- haugana, þar sem Heilsuverndarstöð- in stendur nú. Það fyrsta sem ég man um sigur Vals í leik var um 1925, en þá unnu þeir Víking, og mér er enn í minni hvað mér fannst þetta stór- kostlegur sigur. Vera má að ástæðan til þessarar gleði hafi verið sú, að Valur var alltaf að tapa á þessum árum, og það fannst okkur dálítið ergilegt. Ég varð aldrei nógu góður til að lenda í neinu liði, en það breytti engu, mér fannst alltaf gaman að vera með. Ég byrjaði kornungur að fylgjast með Val, sá t. d. Guðbjörn Guðmundsson, Jón Guðmundsson og það lið, sem mun hafa verið um 1917—’18. Einnig fylgdist ég með sigurveg- urunum 1919 í öðrum flokki. Mikið var um drengjafélög á þeim árum og man ég vel eftir félaginu í Skuggahverfinu eins og það var kall- að (neðanverð Lindargata) og gengu margir þaðan í Val. Ég hafði gaman af að fylgjast með öðrum flokki á árunum 1925 til ’30, þá var Valur að verða sigursæll í þessum flokki; svo kom árið 1930, það er mér ákaflega minnisstætt. Það var á takmörkum að ég fengi frí til að horfa á úrslitaleikinn. Það var þá verið að æfa stóran fimleikaflokk, sem sýna átti listir sínar á þjóðhá- tíðinni á Þingvöllum. Jón Þorsteins- son stjórnaði æfingunum með sínum alkunna dugnaði og áhuga, og vildi nota hvert kvöld sem bezt, en það fór þó svo að ég fékk leyfið. Úr þeim leik er mér minnisstæðast þegar síðara markið kom, þá stóðu leikar jafnir 1:1. Það var nokkuð langt liðið á leik- inn þegar Jóhannesi Bergsteinssyni tekst mjög laglega að leika á varnar- menn og skora. Þetta var stórkostlegt fannst mér, of stórkostlegt til að geta verið satt, þó var það staðreynd. En það var undarlegt hvað mínúturnar voru lengi að líða, mér fannst sem þær ætluðu aldrei að líða, hver og ein var heil eilífð. Loksins lauk þó leikn- um með dásamlegasta sigri, sem ég hef horft á! En síðustu mínúturnar voru ægileg martröð. Fyrir okkur Vals-áhugamenn voru mörg næstu árin skemmtileg, liðið var sigursælt, þó innan um kæmu svartir blettir. Einu sinni man ég, að við vorum ergilegir, Valur var að leika gegn KR, og í tvö skipti vill svo til að boltinn fer í stöng og Hermann nær boltan- um á niðurleið, en dómarinn, sem stóð úti á miðjum velli, dæmdi mark. Þetta atvik er mér ógleymanlegt. Tveir skemmtilegustu leikir, sem ég hef séð Val leika, eru við erlend lið. Sá fyrri var leikur Vals við þýzkt úrval sem hingað kom árið 1938, ef ég man rétt; en jafntefli varð 1:1, en þetta þýzka lið var ákaflega sterkt. Það var skemmtilegur leikur og vel leikinn. Hinn leikurinn fór svo fram 30 ár- um síðar, en það var leikur Vals við Benfica frá Portúgal og þá varð einn- ig jafntefli. Annars horfi ég á flesta leiki Vals og hef gert frá upphafi, eða síðan ég gekk í félagið. Ég horfi einnig nokkuð mikið á handknattleik og hef gaman af hon- um. Ég man þegar þið voruð að byrja í handboltanum og keppt var í húsi Jóns Þorsteinssonar, og ykkur tókst að sigra í þrem fyrstu mótunum í röð. Hafðir þú áhrif á það, að börn þín iðkuðu íþróttir? Ég hafði mestan áhuga á að koma þeim í val, Guðmundur lék nú eitt- hvað með yngstu flokkunum, en hann hætti fljótt og tók að iðka körfu- knattleik. (Því má skjóta hér inn að Guðmundur Þorsteinsson var einn bezti körfuknattleiksmaður sem við höfum átt). Nú Sigurður lék með yngri flokkunum, en varð fyrir meiðslum í 2. fl. og hætti þá. Sem ættfaðir og Valsmaður, hvað vildir þú segja svona að lokum? Það er fyrst og fremst að gefast aldrei upp, og svo má ekki alltaf segja við piltana, ef ekki gengur allt að óskum: Þið getið ekki neitt. Það á að leita að göllunum, laga þá og örfa drengina. Svo er það annað, sem ég vil benda á. Á árunum milli 1930 og 1940, að þá kom það oft fyrir að Valur gat unnið leiki, þó að manni fyndist liðið ekki sterkt. Það er þetta sem mér finnst vanta í dag, það er eins og drengina vanti vilja til að leggja hart að sér.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.