Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 61

Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 61
VALS BLAÐIÐ 59 Valsfjölskyldan. — Aftari röð frá vinstri: Jón G. S. Jónsson, Sigurður Þorsteinsson, Þorsteinn B. Jónsson. — Fremri röð: Ólafur Runólfsson, Magnea Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Runólfsson. Að lokum vona ég svo að framtíð Vals verði björt og maður eigi eftir að sjá meistaraflokk á toppnum og það sem oftast. Jón G. S. Jónsson. Ég er fæddur árið 1909, og ætli það sé ekki svona 55 ár síðan ég byrj- aði að æfa í Hvat, en Valur og Hvat- ur fylgdust að, það var nær alveg það sama, þetta voru hópar í kring- um séra Friðrik Friðriksson. Maður fylgdist með öllu sem gerðist innan Vals og ég man vel sigur annars flokks 1919. Maður dáði þessa menn meðan þeir voru og kepptu. Svo þeg- ar ég var 12 eða 13 ára komst ég í þriðja flokk og keppti í þeim flokki meðan aldur leyfði. Á þessum árum gekk þetta heldur erfiðlega í þriðja flokki. Alltaf var reynt að gera sitt bezta, en það náðist aldrei sá árang- ur sem dygði til sigurs í leik. Aftur á móti, þegar við komum upp í annan flokk varð árangurinn mun betri. Ég man alltaf eftir leik í öðr- um flokki 1925, en þá kom ég inn í kapplið flokksins. Það skeði þannig, að breytt er um menn í liði Vals, en gengið hafði illa í leiknum á undan. Markmaðurinn er tekinn út af, en annar bakvörðurinn settur í markið, og ég held að það hafi verið Þorsteinn Jónsson. Þá er ég settur inn á við hliðina á Ólafi Sigurðssyni. Þetta er dálítið eftirminnilegur leikur, verulegur jafnteflisleikur við KR, og komu þeir oft fyrir. Ég minn- ist t. d. eins leiks, sem við lékum á sunnudegi, að það var komið held- ur tæpt fyrir okkur, að við mundum nú tapa. Þá skeður sá einkennilegi hlutur að Steingrímur Jónatansson, sem lék hægri framvörð, tekur bolt- ann við vítateig okkar og einleikur fram allan völlinn og leikur á KR- ingana og kemst upp að vítateig þeirra, þar missir hann aðeins af bolt- anum en nær honum aftur og skorar og það varð jafntefli. Nú varð að fram- lengja og enn varð jafntefli og engin úrslit fengust. Þá var það, að við vorum kallaðir út um hádegi á sunnu- degi, og þá átti að leika þangað til annar hvor sigraði. En það varð ekki fyrr en klukkan nærri þrjú að úrslit fengust og vorum það við sem skor- uðum! Annað er mér sérstaklega minnisstætt frá þessum degi. Axel Gunnarsson bauð okkur í dýrindis- veizlu heima hjá systur sinni á eftir. Þetta var á þeim tíma mikill við- burður. Svona veizla var óþekkt á þeim árum og sýnir að sigurinn var kær- kominn. Síðari árin sem ég var í öðr- um flokki, sem var til 1928, minnist ég ekki að við höfum tapað leik. Ég hætti sem sagt 1928, og ég man nú ekki að það væri af neinu sérstöku, að vísu fór ég einmitt þá að leggja stund á sundknattleik í Armanm og keppti þar um skeið. Þess má ef til vill geta, að ég æfði mikið undir hóp- sýninguna á Þingvöllum 1930, og var gaman að taka þátt í henni. Hvað er þér minnisstæðast sem áhorfandi? Það var nú svo, um langt skeið eftir að maður hætti, að það fór eng- inn leikur fram hjá manni, sama í hvaða flokki var. Allmörg síðari árin, eftir að annir lífsins fóru að ná tökum á manni, hefur áhuginn heldur minnkað, en það er æði ríkt í manni enn að fylgj- ast með gangi Vals. Og það gleður mig, að mér finnst sem miklu oftar sé um góðar fréttir að ræða. Af viðburðum á vellinum ber sig- urinn 1930 lang hæst, hann er mér alltaf ógleymanlegur. Mér er líka minnisstætt hvað markmenn okkar hafa oft varið vel markið, og minnist ég þar fyrst Jóns heitins Kristbjörns- sonar, og sama var þegar Hermann Hermannsson kom til sögunnar. Þú spyrð um mína niðja, og hvort þeir séu í Val, dóttir mín lék um langt skeið með KR, í meistaraflokki, og var þar mjög sterk, og hún lék líka með landsliðinu um árabil. Hún heitir Gerða Jónsdóttir og kannast þú vafa- laust við hana. Það má segja, að hún hafi farið fyrir mín orð í Val fyrst, en henni fannst hún sett til hliðar þar, fékk ekki að vera með, svo að hún fór yfir í KR, og var hún ekki nema 15 ára þegar hún var valin í aðalliðið þar. Við þetta réði ég ekki því miður. Að lokum vildi ég óska þess, að Val heppnaðist að fá góða þjálfara í öllum greinum, sem tækist að byggja liðin vel upp þannig að góður árang- ur næðist á komandi árum. Sigurður Þorsteinsson. Ég er orðinn 37 ára gamall og byrj- aði að mig minnir 10 ára að sparka bolta hjá Val og fljótlega upp úr því fór ég að keppa og keppti svo áfram í þriðja og öðrum flokki. í þriðja flokki valdist saman mjög sterkt lið. Við vorum heppnir, því að við unnum flesta leikina í þriðja flokki á meðan við lékum þar. í þessum flokki voru margir ágætir og efnilegir leikmenn, og má þar nefna: Helga Daníelsson og Árna Njálsson, sem mjög hafa komiö við sögu félagsins. Þetta hélt áfram í öðrum flokki og ég man, að árin sem við vorum að undirbúa Þýzkalandsferðina 1954, unnum við öll mót, sem við tókum þátt í. Sú ferð var mjög skemmtileg og við vorum sigursælir þar. Eftir að annars flokks aldrinum lauk iðkaði ég lítið knattspyrnu, aðal- lega vegna mikillar vinnu og við bætt- ist svo, að síðasta árið mitt í öðrum flokki meiddist ég á fæti, en þau meiðsli vildu ekki batna, svo að það var ekki um annað að gera en að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.