Valsblaðið - 11.05.1973, Page 62
60
VAL.SBLAÐIÐ
hætta, að mér fannst. Þetta hafði
þau áhrif á mig, að ég varð ragur og
hikandi og það þýddi ekkert að halda
áfram.
Ég stundaði nokkuð handknattleik
hjá Ármanni um skeið.
Eina knattspyrnuferð fór ég til
Færeyja með Val, sem var hin
skemmtilegasta. Keppt var í Klakks-
vík og þar skeði það, að ég varð
strandaglópur! Okkur var skipt nið-
ur á heimili í bænum. Veður var
slæmt og stóð fólkið, sem ég hélt til
hjá, í þeirri meiningu að ekki yrði
farið á milli, svo að það lét mig sofa
eins og mig lysti.
Það virtist enginn hafa saknað mín
um borð í skipinu og var því ekkert
veður gert út af þessu. Ég var svo
þarna í góðu yfirlæti þar til næsta
dag og fór þá með skipinu.
Ég vil svo lýsa ánægju minni yfir
því að hafa gengið í Val, kynnzt
knattspyrnunni og eignast allar þær
skemmtilegu minningar sem við Val
eru bundnar. Með Val átti ég ógleym-
anlegar ferðir og þar eignaðist ég
marga ágæta kunningja.
Ég fylgist nú alltaf með Val og
t. d. horfi ég á flesta leiki sem Valur
leikur. Það eina sem ég er ekki ánægð-
ur með er, að það er alveg eins og
þessum drengjum sé alveg sama hvort
þeir vinna eða tapa. Það vantar alveg
baráttuvilja í þá. Það er eins og svo
margt renni út í sandinn hjá þeim,
ef allt rennur ekki eins og á færi-
bandi, þó að manni finnist einstakl-
ingarnir góðir. Ég vona að þessir pilt-
ar taki upp leikgleði og baráttuvilja
og eigi eftir að vinna marga sigra,
svo að maður hafi eitthvað til að
samgleðjast þeim með.
Þorsteinn Kunólfsson.
Ég er 15 ára og var ekki nema 8
eða 9 ára, þegar ég byrjaði að æfa
inni hjá Val, því að á sumrin fór ég
alltaf í sveit.
Þegar ég var tíu ára fór ég að æfa
á sumrin og það ár keppti ég fyrsta
leikinn. Þetta var úrslitaleikur og
eini leikurinn minn á sumrinu.
í f jórða flokki voru mér sérstaklega
minnisstæðir tveir leikir. Sá fyrri var
gegn Akranesi í íslandsmótinu og fór
hann fram á Framvellinum. Akurnes-
ingar byrja að skora beint úr horn-
spymu. Okkur leizt ekki á blikuna
og vorum smeykir um að tapa leikn-
um, en það fór nú samt svo, að við
unnum leikinn 2:1 og vorum við ákaf-
lega ánægðir.
Hinn leikurinn var gegn Vest-
mannaeyingum og ætluðum við að
hefna ósigurs þar áður, í 5. flokki.
Við byrjuðum að skora, en þeir jafna.
Síðan skorum við aftur. í hálfleik
erum við ákveðnir að vinna leikinn
og vera harðir, en við höfðum á und-
Þorsteinn og Ólafur.
irvitundinni að dómarinn væri ekki
sama sinnis. Það er ekki langt liðið
á síðari hálfleikinn þegar hann dæmdi
víti á okkur, sem að flestra dómi var
talið ósanngjarnt, og þeir skora úr
vítinu. Þetta hefur sennilega hleypt
í okkur enn meiri hörku, því að við
skoruðum síðan tvö mörk og unnum
leikinn og íslandsmeistaratitilinn og
varð ég þar með íslandsmeistari í
fyrsta sinn!
í sumar gekk okkur illa og ég álít
að mest sé um að kenna slæmri æf-
ingasókn. Við unnum þó Haustmótið.
Mér finnst mjög gaman að leika
knattspyrnu, með góðum drengjum.
Ég leik aðallega sem miðvörður eða
bakvörður, en mér finnst miðvarðar-
staðan skemmtilegri. Ég vona að all-
ir æfi vel og standi sig sem bezt.
Það gerir ekkert til þó að ég segi
frá því hér, að ég og Valur eigum
sama afmælisdag, 11. maí, og mér
þykir dálítið gaman að því.
Ólafur Runólfsson.
Ég er auðvitað jafngamall og hann
bróðir minn sem þú varst að tala við
og auðvitað byrjuðum við um sama
leyti í Val og þá hlýt ég að eiga sama
afmælisdag og Valur! Ég er raunar
ívið eldri eða nokkrum mínútum.
Ég byrjaði strax í marki og hef
leikið þar síðan. Þegar við vorum á
Lokastígnum var ég þar í drengja-
félagi sem hét Glanni, en þá voru
þar í kring mörg drengjafélög, og þá
var ég alltaf í marki. Eitt félagið hét
„Þruman" og annað „Stjarnan".
Við urðum að „splæsa“ í bolta, og
svo skrifuðu sum félögin drengina
inn, svo að þetta var alveg eins og
alvörufélög. Svo fóru fram leikir rnilli
þessara félaga við og við.
Ég gat nú ekki æft mikið á sumrin
því að ég fór alltaf í sveit, svo að ég
fór ekki að keppa með Val fyrr en ég
var 11 ára og þá lenti ég í C-liðinu.
Það ár unnum við Miðsumarsmótið í
leik gegn Fram 4:0.
I 5. fl. A. næsta ár gekk okkur vel,
þá unnum við Reykjavíkur- og Haust-
mótið og' urðum aðrir í Islandsmót-
inu, svo að eitthvað sé nefnt.
1 fjórða flokki gekk þetta líka
ágætlega, við unnum tvö af þrem
mótum, þar var oft hart barizt og
aukaleikir leiknir til þess að ná úr-
slitum. Úrslitaleikurinn í íslandsmót-
inu í fjórða flokki A var skemmtileg-
ur, við höfðum 2:1 yfir, en þá er
dæmd á okkur vítaspyrna, og þá voru
nú taugarnar heldur illa á sig komn-
ar, og þeir jafna. En svo skorum við
þriðja markið, þá var ekki víst að
það væri gilt og varð dómarinn að
ráðfæra sig við línuvörðinn, en okkur
til mikillar gleði var það mark, og svo
bættum við öðru marki við.
Ég hef farið svolítið í keppnisferða-
lög, t. t. til Sandgerðis. Svo fórum
við að Laugarvatni og vorum þar í
viku; var það mjög skemmtilegt. Ég
þakka dvölinni á Laugarvatni að við
unnum íslandsmótið.
Mér finnst nokkuð gaman að leika
í marki, en það reynir á taugarnar,
en ég hef ekki hugsað mér að breyta
til, ég er búinn að vera þar svo lengi.
Ég vona svo að Valur komi fram
með miklum baráttuvilja og að pilt-
arnir æfi vel, félagslífið verði gott
og þá ætti Valur að vinna marga
leiki og mót.
Magnea Þorsteinsdóttir.
Ég hef nú lítið iðkað íþróttir, þó
hef ég aðeins fengizt við handknatt-
leik og lék þá með ÍR, en það var
nú stuttur tími. Mig hefur víst vant-
að þjálfun, því að ég varð svo fljótt
móð. Þegar ég var pínulítil fór ég
alltaf með pabba á völlinn til að
garga á Val og hrópa: Áfram Valur!
Áfram Valur! Nú svo fóru drengirnir
mínir í Val. Ég þurfti ekkert að eggja
þá til þess, það var eins og það væri
Valsblóð í þeim.
Ég er mjög ánægð yfir því að þeir
skuli vera í knattspyrnufélagi; mér
finnst það gott fyrir unglinga að hafa
einhver áhugamál, þá hafa þeir alla
vega eitthvað um að hugsa á meðan.
Ég veit líka alltaf hvar þeir eru, og
mér þykir þægilegt að verða þess vör,
að þeir hafa fullan áhuga á því sem
þeir eru að gera og sinna engri vit-
leysu ennþá og maður vonar það bezta
hvað það snertir. Ég álít að knatt-
spyrnan sé mjög góð íþrótt og raunar
allar íþróttir.
Ég er eindregið hvetjandi þess, að
þeir haldi áfram að stunda einhverja
íþrótt, hvort sem það er nú fótbolti
eða handbolti.
Hér á heimilinu er mest talað um
íþróttir, fótboltaleiki og æfingar;
þetta virðist fylgja ættinni og ég vona
að áhuginn haldi áfram og að Val
vegni vel.