Valsblaðið - 11.05.1973, Qupperneq 65

Valsblaðið - 11.05.1973, Qupperneq 65
VALS BLAÐIÐ 63 Frímann Hvlqason: V alsekkjurnar Eins og venjulega undanfarin ár heimsóttum við „Valsekkjurnar", til þess að fræðast um athafnir þeirra á liðnu ári. Sitthvað hafði staðið til, ef allt færi að óskum, og ekkert kæmi þversum í þær ráðagerðir. Að vísu er það svo að hin óvæntu atvik eru að koma fram, atvik sem ekkert spyrja um það sem áður var búið að ákveða. Þar eru víst örlögin að verki, eða þetta sem enginn veit fyrir, og allir verða að beygja sig undir. Stundum verða þau blákaldur raunveruleiki sem geta ruglað allan gang mála og stundum koma þau yfir mann eins og hjálpandi hönd til að afsaka eitt og annað, sem hefði getað verið öðru vísi, og þannig getur maður raðað þessu þægilega upp. Lúmskur grunur um það, að von í fréttum frá ,,ekkjunum“, góðum kaffisopa með ljúffengum kökum og nýjustu fréttum úr borgarlífinu, hafi ekki verið aðalástæðan til heimsókn- arinnar, heldur hitt, að fregna hjá þeim hvers vegna bændur þeirra stóðu sig ekki betur í leikjum í sumar en raun varð, og hvar mundi ástæðunn- ar að leita. Að sjálfsögðu var farið gætilega með allar slíkar spurning- ar, til þess að æsa nú engan upp að óþörfu og gera málið ekki flóknara en nauðsynlegt var. Það var glaðlegur hópur sem sat við sauma sína að Sæviðarsundi 33, þegar fréttamann Valsblaðsins bar þar að garði. Angan af rjúkandi kaffi og ilmur af kökum lagði að vitum manns og fékk munnvatnskirtlana til að hamast, og við þetta bættist svo mjúklegur kliður margra radda, sem allar þurftu að segja sína sögu. Þarna voru sem sagt saman komnar flest- ar ,,ekkjurnar“, sem okkur finnst vera orðnar ein af deildunum í Val. Þennan hóp mætti líka allt eins vel kalla „heimavarnarliðið". í öllu falli er þetta góði hópurinn bak við bar- áttumenn félagsins í meistaraflokki. (Andlit félagsins). Hópurinn sem hefur verið staðinn að því að eggja og hvetja þá sem bezt má, hver svo sem árangurinn hefur orðið. Enganveginn verður þeim kennt um þó að menn þeirra séu ekki móttækilegir fyrir hvatn- ingarnar. Þetta var hinn þolinmóði hópur sem gætir barnanna og bíður fréttanna um unnin afrek. Þetta er hópurinn sem átti sína drauma um Mallorkaferð svona í leið- inni með bændum sínum, þegar þeir færu í einhverja Evrópukeppnina. Þetta var hópurinn, sem alltaf tek- ur á móti fagnandi og fyrirgefandi, þótt þeir standi sig ekki eins og ósk- að var og ,,ordra“ var gefin um, eða voru það ef til vill „örlögin" sem komu þversum eða afsakandi inn í þetta? En hversu mörg ,,ordran“ hefur ekki verið gefin í þessum heimi og sigurs krafizt, sem ekki hefur náð fram að ganga, og þótt hún hafi verið sett fram af öllu hjarta. Þetta er þó hópurinn sem vonar fyrir Val og með hjarta sem slær fyrir Val. Okkur, sem stöndum utan við, finnst það fjári hart að standa menn að því að berjast ekki til síðasta blóð- dropa, þegar svona heitt er beðið. Þegar fréttamaðurinn hafði komið sér fyrir í þægilegum stól og virt fyrir sér þennan glæsilega hóp, spurði hann hvernig þetta hefði gengið á liðnu ári. Og það stóð ekki á svar- inu: Þetta hefur gengið alveg skín- andi vel, það hafa fimm börn fæðst síðan þú vart hérna síðast. Svo þú sérð að það hefur verið mikið að gera í sængurgjöfum á árinu. Við höfum komið saman tvisvar í mánuði yfir veturinn og mikið að gera, og manni skildist að mikill tími hefði farið í að sauma í og klæða rokokko-stóla og fleira í þeim dúr, alls konar dúkar og veggskraut var meðal verkefna. Talað var um fjölda- framleiðslu, en ekki fékkst þó úr því skorið hvort hér væri alltaf um sama stykkið að ræða eða stöðugt nýtt og nýtt. Eitt voru þær allar þó sammála um og það var að það væri gaman að koma saman, hittast, spjalla, hlæja, hryggjast yfir strákunum og gleðjast þegar vel gengi. Segja frá honum „lilla“ eða henni „lillu“. „Lokadagurinn“ s.l. vor, þegar „sjóðurinn“ var lagður á borðið og allir: frúr og bændur komu saman og skemmtu sér í sólarhring, var dá- samlegur. Fyrst var komið saman á heimili einnar, síðan farið á hótel og „djammað" eins lengi og hægt var og síðan haldið áfram heima aftur. Þetta var dásamlegur sólarhringur, sögðu þær einum munni. Því miður gat ekki orðið af úti- legu í sumar eins og í fyrra, það var svo gaman að komast svona í lifandi samband við náttúruna. Með svona margar „hindraðar" var ekki hægt að koma þessu í kring. Þarna voru það vafalaust örlögin sem komu þversum, og þá fer sem fer. Næsta ár vonum við að þetta verði auðveldara, a. m. k. vitum við ekki af nema einni ,,hindrun“. Við erum farnar að hlakka til „Lokadagsins", og við erum smeykar um að þær ógiftu í liðinu öfundi okk- ur af þessu, hvort sem það hefur þau áhrif að þeir geri sínar „ráðstaf- anir“, vitum við ekki, en þetta er nú víst ekki lengi gert! Okkur er að detta í hug að draga það fram á vorið eða sumarið og leggjast út uppi í Valsskála ef hann væri tiltækur. Þá er vorbjört nótt og álfar stíga léttan dans í döggvotu grasi og við mundum dansa. Væri það ekki dásamlegt? Ýmsar fleiri hugrenningar höfum við í kollinum, en víst varla tíma- Birna Oskarsdóttir, Margrét Steingrímsdóttir, Þura Sölvadóttir, Ragnheiður Lárus- dóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir, Helga Hafsteinsdóttir. (Á myndina vantar Jóhönnu B. Hauksdóttur og Ester Magnúsdóttur).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.