Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1909, Blaðsíða 60
38
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
Settust menn þá aö á innflytjendahúsinu, fyrst. Ýmsra á-
stæðna.veg'na dvöldu innflytjendur í Calgary nokkra daga.
Mjög var þá ráð á reiki, og ýmsar voru þá ráðagjörðir
manna. Viidu sumir setjast að í Calgary-bæ, og sæta at-
virin'u, sent þá var nokkur í bænum; hinivoru þó fleit i,
sem fýstu að flytja norður til fyrirheitna landsins; það
urðu líka úrslit þeirra mála, að þeir, sem enn höfðu dá-
litla peninga, bjuggust til norðurferðar, en til allrar
óhamingju, sneru að því ráði sumir af þeim, sem varla
höfðu til næsta dags, og sem betur höfðu ráðið, að sitja
kyrrir, og búa í haginn fyrir seinni tímann, og til þess
rjeði Ólafur Goodman fastlega. Betur hefði farið, hefði
ráðum hans verið hlýtað, og máttu hinir fátækari gjalda
þeirrar glópsku sinnar leitgi síðan. Allir flutningar norð-
ur um, voru þá torsóttir. Engin járnbraut var þá norður
um landið, frá Calgary; en loforð um, að hún vrði byggð
innan skamms, og gefið í skyn, að hún rynni um það land-
i svæði, sent Islendingar ætluðu að nema. Til Red Deer
árinnar erú frá Calgary nær 80 mílur vegar, serri þá varð
að fará á hestavögnum. Þegar rigningartíð stóð yfir, var
vegur þessi lítt fær. -— Þeir sem norður ætluðu áð flytja,
urðu að leigja mann, til að flytja allan farangur sinn,
norður að Red Deer á, og kostaði það ærna peninga, sem
þá um sinn, hefðu verið til annars betur brúkaðir. En
svo var það þó ef til vill minnsti kostnaðurinn við þessa
ferð. Fyrir þessa menn, var eigi um annað. að gjöra, en
kaupa fleiri pör.af hestum, til að geta bæði komið fram
ferðinni, og svo var fyrirsjáanlega ókleyft fyrir þessa ný-
byggja, ;tð eiga engin akdýr. Rjeðist það þá, að þeir af
flokknum, sem helzt höfðu dálítil peningaráð, keyptu þrjú
eða fjögur hestapör, aktygi á þau og tilsvarandi vagna,
og áþeim skyldi svo flytja fólk, sængurklæði og nauðsyn-
legan klæðnað til ferðarinnar. Hestar þessir vortt smáir,