Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1916, Side 8
2
ÓLAFUR s. thorgeirsson:
Á þessu ári teljast liðin vera:
frá Ki ists fæðingu.....................1916 ár
Arið 1916 sunnudagsbókstafur B.A.
Gyllintal : 17. -
Milli jóla og langaföstu eru 8 vikur.
Árstíðirnar.
I Vestur-Canada er talið að
Vorið byrji .....................21. marz
Sumarið......................... 21. júni
Haustið..........................23. september
Veturinn........................ 22. desember
Myrkvar.
1. Tunglmyrkvi........................19. jan.
2. Sólmyrkvi........... ..............3. febr.
3. Tunglumyrkvi.......................14. júlí
4. Sólmyrkvi..........................29. júlí
5. Só.myrkvi..........................2^. des.
Tunglið.
Fylgisrjarna jarðarinnar er tunglið. Þvermál þess er 2,163
mílur og fjarlægð þess frá jörð vorri 288,000 enskar mílur. Braut
sína umhverfis jorðina gengur það á því tímabili, sem alment er kall-
að tunglmánuður; er það tímabil alment talið 28 dagar,en er í raun
réttri 27 dagar og 8 klukkustundir, eða i étt um það bil.
Um tímatalið.
Forn-Egyptar skiftu degi og nóttu í 12 kl.-stundir hvoru, — og
hafa Gyðingar og Grikkir ef vill lært þá venju af Babýlóníu-mönn-
um. Það er sagt, að deginum hafi fyrst verið skift í klukkustundir
árið 293 f. Kr., þegar sólskífa fyrst var smíðuð og sett upp í Quirin-
us-musterinu í Róm. Þangað til vatnsldukkurnar voru uppfundnar
(árlð 158 f. Kr.), voru kallarar (eða vaktarar) viðhafðir í Róm til að
segja borgarbúum. hvað tímanum liði. A Englandi voru vaxkerta-
Ijós höfð fyrst frameftir, til að segja mönnum, hvað tímanum liði.
Var áætlað, að á hverri klukkustund eyddust 3 þumlungar af kvert-
inu. Hin fyr.-»ta stundaklukka (tímamælir— sigurverk) í líkingu við
þær, sem nú tíðkast, var ekki fundin upp fyr en árið 1250. Forn-
menn á Norðutlöndum töldn flestir, að dagur byrjaði með upprás
sólar. Aþenumenn og Gyðingar töldu hann byrja á sólsetri og
Rómverjar, eins og vér, á miðnætti.