Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1919, Side 6
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Á þessu ári teljast liSin vera :
frá Krists fæöingu - - - - - 1919 ár
Áriö 1919 sunnudagsbókstafur E; Gyllintal 1.
Milli jóla og langaföstu eru 9 vikur og 4 dagar.
Myrkvar.
Ariö 1918 verÖa þrír myrkvar, tveir á sólu og einn á
tungli.
1. Sólmyrkvi 29. mai.
2. Tunglmyrkvi 7. nóv,
3. Sólmyrkvi 22. nóv.
TungliS.
Fylgistjarna jarðarinnar er tungliö. Þvermál þess
er 2,163 mílur og fjarlægð þess frájörð vorri 288,000 ensk-
ar mílur. Braut sína umhverfis jörðina gengur það á því
tímabili, sem alment er kallaö tunglmánuöur ; er þaö
tímabil alment taliö 28 dagar, en í raun réttri 27 dagar og
8 klukklustundir, eöa rétt um það bil.
Um tímatalið.
Forn-Egyptar skiptu degi og nóttu i 12 kl.-stundir
hvoru,---og hafa Gyöingar og Grikkir ef vill lært þá venju
af Babýlóníu mönnum. Þaö er sagt, að deginum hafi
fyrst veriö veriö skift í klukkustundir árið 293 f, Kr., þeg-
ar sólskífa fyrst var smíðuð og sett upp í Quirinus-muster-
inu í Róm. ÞangaÖ til vatnsklukkurnar voru uppfundnar
(árið 158 f. Kr.) voru kallarar (eða vaktarar) viðhafðir í
Róm tll að segja borgarbúum hvað tímanum liði. Á Eng-
landi voru vaxkertaljós höfð fyrst frameftir, til að segja
mönnum, hvað tímanum liði. Var áætlað, að á hverri
klukkustund eyddust 3 þumlungar af kertinu. Hin fyrsta
stundaklukka (tímamælir—sigurverk) í líkingu við þær,
sem nú tíðkast, var ekki fundin upp fyr en árið 1250.
F'ornmenn á Norðurlöndum töldu flestir, að dagur byrjaði
með upprás sólar. Aþenumenn og Gyöingar töldu hann
byrja á sólsetri og Rómerjar, eins og vér, á miðnætti.