Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1937, Blaðsíða 30
32
og settust að í grend við Akra N. D. Þar nam Ámi
land suövestur af Akra og bjó þar til 1897, að hann
seldi það og flutti í grend viö Hallock, Minnesota og
dvaldi þar tvö ár, eða þar til hann flutti hingað á
fyrgreint land. Árni sonur hans tók einnig land
(S.V. S 2, 1-6) en dvaldi heima hjá föður sínum.
Árni bjó þar til dauðadags; hann andaðist 1902.
Eftir lát Árna, bjó Árni yngri með móöur sinni á
landi föður síns, en m,un hafa selt sitt land. Eftir
nokkur ár brugðu þau mæðginin búi. Var Ámi ekki
vel hraustur til stritverka, en vel gefinn maður og
greindur vel sem móðir hans og frændur fleiri. Fóru
Iþau vestur að hafi. Eftir tveggja ára bil komu þau
aftur hingað í bygð og dvöldu hér þar til árið 1923,
tók þá Árni land með theimilisrétti í námunda við
Dahlton, Sask., og flutti Árni þangað ásamt móðir
sinni og systir. Valgerður andaðist 9. okt. 1931.
Býr Árni þar síðan. Börn Árna og Valgerðar voru
fimm: 1. Sigríður, gift norskum rnanni í Hallock,
Minn., dáin 1901; 2. Margrét, gift norskum manni
í Hallock, Minn., dáin 1909; 3. Árni Stefán; 4. Guð-
rún Sigurlína, gift norskum manni, James West-
berg, búa þau í grend við Daihlton, Sask.; 5. Rann-
veig Petrína, gift norskum manni, Elmer Eiríksson,
búsett viö Star City, Sask.
Landnemi S.V. % S. 13, 1-6
Ágúst Jónasson
Ágúst var fæddur á Bákka í Öxnadal í Eyja-
f jarðarsýslu, 27. ág. 1854. Foreldrar hans voru þau
hjónin er þar bjuggu, Jónas Egilsson, Tómassonar
bónda á Bægisá, Egilssonar, bónda á Hjálmsstöðum
í Eyjafirði, og Elín Guðmundsdóttir. Egill á Bakka,
afi Ágústar átti fjölda mörg börn, og þar á meöal
Helgur tvær, mæður þeirra iSigtryggs Jónassonar
og B. L. Baldvinssonar, fyrrum ritstjóra Heims
kringlu. Árið 1877 gekk Ágúst að eiga Björgu
Guðnadóttir bónda á Þverbrekku í Öxnadal, Jóns-