Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1937, Blaðsíða 54
56
Lundberg Ragnar. Bergur er dugnaðarmaður, ©ins
og hann á kyn til, og með efnilegustu bændum í
þessari bygð.
Guðmundur ólafsson er fæddur 19. marz 1899.
Faðir hans er Ingimundur Ólafssonar frá Brekku
í Neshreppi í DaJasýslu, og þar bjó faðir hans. Móðir
Ingimundar var Valgerður Björnsdóttir bónda í
Bjarnarnesi í Suðursveit. Rona Ingimundar, móðir
Guðmundar var Katrín Tómasdóttir Ingimundar-
son frá Efstadal í Laugárdal. Kona Guðmundar
er Ragnheiður Guðmundsdóttir Kjartanssonar, sem
getið er hér að framan. Guðmundur nam land á
N.E. 27-25-11, en seldi það land Árna Björnssyni; en
keypti aftur lönd þau er Ágúst Johnson bjó á áður,
N.E. 6-26-10 og iS.E. 12-26-11 og býr þar nú. Börn
þeirra eru: Sigríður, Katrín Lillian, Margrét og
Valdína.
Óli Walter Ólafsson er fæddur á Big Point, 10.
júlí 1900. Hann 'er albróðir Guðmundar þess, er
getið er í næsta þætti hér á undan. Kona hans er
Þorbjörg Kristín Guðjónsdóttir Erlendssonar, sem
getéð er hér að framan. Óli hetfir e'kki numið land.
en keypti 1-önd Ingimundar Erlendssonar, sem áður
er getið, og býr á þeim. Börn iþeirra eru: Guðjón
Guðlaugur, Kári Ingimundur og Valdína Jóhanna.
Þá eru taldir þeir sem nú búa í Reykjavíkur
pósthéraði, eftir þeim upplýsingum, sem eg hefi
getað fengið.
II. Þáttur. — Asham Point-pósthús
Þetta pósthérað er aðskilið frá Reykjavíkur
pósthéraðé af vík þeirri er áður er getið. Þar voru
um eitt skeið allmargir íslendingar, en sumir Iþeirra
fluttu burtu, áður en þeir náðu eignarrétti á lönd-
unum, en aðrir seldu lönd sín eða leigðu þau. —
Reyndist Iþví örðugt að fá áreiðanlegar fréttir um
suma þeirra.