Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1937, Qupperneq 55
57
Vilhelm Alex Finney er fæddur í Winnipeg 21.
jan. 1892. Faðir hans var Friðfinnur Jcijiannesson,
Eyfirðingur að ætt; en móðir hans var Þórdís, systir
Páls Kernesteds, bónda við Narrows, sem getið er í
þætti þeirrar bygðar. Kon,a Alex er Guðný Halls-
dóttir, Hallssonar frá Sleðbrjót og er hans getið í
þætti Narrows-búa. Alex flutti í þessa bygð 1909
og nam land á S.W. 13-26-12, og S.E. 14 í sama
section. Hann hefir stundað hér jöfnum höndum
fiskveiðar og gripabúskap og f'arnast vel. Börn
hans eru: Lárus Kristján, Hallur Friðfinnur, Alex,
Þorbjörg, gift Sigurði Bjarnasyni, nágranna Iþeirra.
'Guðjón, Óli, Marinó, Sigurður, Þórdís og Sigurlaug.
Öll eru börn þeirra heima nema Þorbjörg.
Bjarni SigurSsson er fæddur á Svínafelli í
Öræfum 1874. Faðir hans var Sigurður Jónsson
bóndi á Svínafelli en móðir hans var Sigríður Jóns-
dóttir frá Maríubakka í Fljótsdalshverfii. Kona
Bjarna er Björg Einarsdóttir Jónssonar, ættuð úr
Lóni í Skaftafellssýslu, fædd 1884. Hingað til lands
fluttust þau 1903. Voru fyrst nokkur ár í Siglunes
bygð en fluttu hingað 1910, og tóku land á 12-26-12,
og hafa búið þar síðan. Börn þeirra eru: Stefán
Sigurður, giftur Þorbjörgu, dóttur Alex Finney, Sig-
ríður Steinunn, Þóra, Árni og Anna.
Alfred Klein er þýzkur að ætt, en því er hans
hér getiið að hann hefir kvænst íslenzkri konu, og
hefir samið sig að öllu að háttum íslendinga, og tal-
ar furðu vel íslenzku. Kona hans er Helga Ingi-
mundardóttir Erlendssonar, sem getið er fyrst í
þáttum þessum. Hún er fædd hér í landi 6. feb.
1898. Land hefir hann numið á 19-25-11 og býr þar
snotru búi. Börn þeirra eru: Alfred og Valgerður.