Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 7

Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 7
Esekiels spámann í kaflanum 29, versunum 1—6 og 9—14. Þar er þér gefin viðvörun um það, að Guð ætli einmitt að slá „Faraó, Egyplalands kon- ung, (hinn mikla krókódíl), sem liggur á milli arkvíslanna (Súesskurðurinn og Akabaflóinn). Þar segir: „Fljótið er mitt (Súes), ég hef sjálfur búið það til.“ Þú vissir það ekki, að einmitt vegna þessa sló ísraels Guð Faraó, Egyptalands konung, °g lét Egypta falla í eyðimörkinni. Vegna þess, að þú þekklir ekkert af þessu, gafstu Faraó Egypta- lands konungi aftur loforð um það, að þú skyldir vernda hann og styrkja, í maí 1967, þegar hann lokaði Akabaflóanum fyrir Guðs fólki, ísrael. En 'þú sveikst hann einu sinni enn. í sex daga stríð- tnu knosaði Israel Arabana á þann veg, að það var kraftaverki líkast, bæði á Sínaí, Gólanhæðum og vesturbökkum Jórdanar. Kreml, þá þorðir þú ekki að hjálpa þeim — Aröbunum, af ótta við „kon- ungana frá Tarsis“ (hervald Vesturveldanna). Og nú ertu enn á ný farinn að æsa upp þína arabisku vini. I þetta skipti verður það erfitt fyrir þig að svíkja þá, því að það yrði of mikill álits- hnekkir fyrir þig í augum heimsins. Því er nú svo komið, að „krókarnir“ í kjálkum þínum“ eru orðnir fastir, og á þeim verður þú dreginn og „lciddur út, ásamt öllu herliði þínu.“ En þú veizt það ekki, Kreml, að á bak við allt þetta stendur ísraels Guð, Skapari himins og jarð- ar, og hann fer þannig með þig, til þess að þú og allir herskarar þínir hljóti dóm ykkar á Israels- fjöllum fyrir sjónum allrar heimsbyggðarinnar. Þú hefur þegar sent þúsundir liðsforingja og herfræðinga til Mið-Austurlanda, til hinna ýmissu Arabalanda. Þú hefur byggt stórar flotastöðvar í Alexandríu í Egyptalandi og í Aleppó í Sýrlandi. Tæknifræðingar þinir eru orðnir eins og mý í Egyptalandi, Sýrlandi og írak. Og floti þinn er orðinn öflugri og stærri á austanverðu Miðjarð- arhafi, en dæmi eru til áður. Þessi floti á að ógna ísraelsmönnum, enda eru sum herskipin í þeim flota meira nýtízkuleg en áður hefur þekkzt. Þenn- an flota þinn þar, muntu halda áfram að efla hvað mest. En þú ættir að hugleiða það, Kreml, að það er ísraels Guð, sem stendur á bak við þetta. Það 7

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.