Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 8
er fullkominn og alger ósigur þinn, sem er að
nálgast. J*ú hefðir átt að læra af sögunni og minn-
ast þess, að ekkert stórveldi, hversu öflugt sem það
hefur verið, sem barizt hefur á móti Guðs lýð,
Israel, hefur staðizt. Það ætti að vera nóg að
minna þig aðeins á Hitler.
Þao er hugsanlegt að ísrael geri skarpt áhlaup
á Arabana enn einu sinni, áður en þú grípur inn
í leikinn, því að enn erlu harla hrædd við USA
(Tarsiseyjar Vesiursins). liiblían segir, að þegar
þú ræðst inn í ísrael, þá verði bæði Persía og
Klíópía í för með þér, en þau lönd eru ekki ennþá
oruin á valdi kommúnislastefnunnar. En byltingin
virðist ekki langt undan í báðum þessum löndum.
Heyrðu hvað Israels Guð segir um þig, Kreml:
„ETtir langan tíma munt þú ú.boðsskipun hljóta,
á síðustu árunum munt þú koma inn i það land,
sem aflur er unnið undan sverðinu, til þjóðar, sem
sainað hefur verið saman frá mörgum þjóðum á
ísraels fjöll, sem stöðugt hafa í eyði legið, já, frá
þjóðunum var hún flutt og nú búa allir öruggir.
Þá munt þú brjó;ast fram sem þrumuveður,
koma sem óveðurský, til þess að hylja landið, þú
og allir herflokkar þínir og margar þjóðir með
þér.
Svo segir Herrann Drottinn: Á þeim degi munu
illar hugsanir koma upp í hjarta þínu og þú munt
hafa illar fyrirætlanir með höndum og segja: Ég
vil fara í móti bændabýlalandi, ráða á friðsama
menn, sem búa óhultir, þeir búa allir múrveggja-
lausir og hafa hvorki slagbranda né hlið, til þess
að fara með rán og rifs, til þess að leggja hönd
þína á borgarrústir, sem aLur eru byggðar orðn-
ar, og á þjóð, sem saman söfnuð er frá heiðingj-
unum, sem aflar sér búfjár og fjármuna, á menn,
sem búa á nafla jarðarinnar“ (Esek. 38,10—12).
En þegar þú ræðst á Israel, þá mun það, sem
þú óttast, koma yfir þig, Kreml. Bandaríkin og
Vesturveldin, munu rísa móti þér. Biblían kallar
þá þjóðfylkingu „Seba og Dedan og verzlunar-
menn fró Tarsis“ (Esek. 38,13). Þú ættir að vita,
að þessir síðastnefndu standa alltaf sem táknmynd
upp á eyjar hinna vestrænu þjóða. Og „verzlunar-
mennirnir" og „kaupmennirnir" frá Tarsis eru
einmitt hinn svo kallaði „kapitalismi", sem þú ert
alltaf með á vörunum.
Sennilega muntu gera ógnþrungna flugárás á
ísrael, samfara öflugu vígvélaáhlaupi herja þinna
á jörðu, því að svo segir í hinu opna bréfi til þín:
„Þá munt þú brjótast fram, sem þrumuveður, koma
sem óveðurský, til þess að hylja landið, þú og
allir herflokkar þinir og margar þjóðir með þér
(Esek. 38,9).... og fara á móti lýð mínum ísrael
eins og óveðursský, til þess að hylja landið. Á
hinum síðustu dögum mun ég leiða þig móti landi
mínu, til þess að þjóðirnar læri að þekkja mig,
þegar ég auglýsi heilagleik minn á þér, Góg, fyrir
augum þeirra (Esek. 38,16).
í hálfa öld hefur þú, Kreml, afneitað Guði, með
guðleysiskenningum þínum. Til dæmis um það,
sagði fulltrúi þinn í geimferðum, er fyrstur flaug
mönnuðu geimfari umhverfis jörðu, með síorkandi
fyrirlilningu, er hann kom aftur til jarðarinnar,
að hann hefði hvergi orðið var við Guð á ferðum
sínum. Síðar sagði hann með sama storkunaranda:
„Sannur kommúnisti biður ekki til Guðs.“ Eins
og það væri eitt'hvað að hrósa sér af! Einkennilegt,
að Guð hefur valið ísraels fjöll til þess að svara
öllum þessum guðlausu storkunarorðum þínum á,
og láta dóminn falla yfir þig. Því að hann segir
í hinu opna bréfi til þín, Kreml: „En þann dag,
daginn sem Góg fer á móti ísraelslandi, segir
Ilerrann Drottinn: . .. . í minni brennandi heift,
tala ég það.... Á öllum fjöllum minum vil ég
kalla á sverðin í móti honum, segir Herrann Drott-
inn hersveitanna, eins sverð skal vera á móti öðr-
um. Og ég vil ganga í dóm við hann með drepsótt
og blóðsúthellingu, með dynjandi steypiregni og
haglsteinum, eldi og brennisteini vil ég rigna láta
yfir hann og yfir hersveitir hans og yfir margar
þjóðir, sem með honum eru. Og ég vil auglýsa mig
dvrlegan og heilagan og gjöra mig kunnan í aug-
sýn margra þjóða, til þess að þær viðurkenni, að
ég er Drottinn“ (Esek. 38,18—19; 21—23).
Kreml, þú ættir að skilja, að „eldurinn og brenni-
steinninn“, sem hér er talað um, er auðvitað eldur
sá, sem kviknar með kjarnorkustyrjöld, þar sem
beitt er eldflaugum, sem hlaðnar eru kjarnorku.
Og „haglsteinarnir" verða bara endurtekning á
því, sem bar við á Kyrrahafi, þegar Bandaríkja-
menn sprengdu kjarnorkusprengjurnar þar. Er hit-
inn frá sprengjunum sté upp í allt geimloftið,
kældist heit gufan og fraus. Síðan féll hún niður
aftur, umbreytt í stóra haglsteina. Nokkur mann-
8