Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 19

Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 19
DIKAUMUtt. OPAADI AlCiU IIAMS „Þegar ég sé blóðið mun ég ganga framhjá yður, og engin skæð plága skal yfir yður koma.“ Þetta var sagt við ísraelsþjóðina. Til þess að forðast hina skæðu plágu, sem koma átti yfir Egypta, áttu þeir að fórna lambi. Björgunin var fólgin i þessu trúarskrefi. Hið slátraða lamb var fyrirmyndin upp á Krist, sem varð að gefa lif sitt til launsargjalds fyrir sálir okkar. í Jóhannesarbréfi stendur: „ef við játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og blóð Jesú Krists Guðs sonar, hreinsar oss af allri synd.“ Og i Hebrea- bréfinu stendur, að „án úthellingar blóðs er engin fyrirgefning.“ Enn fremur lesum við í Opinberun- arbókinni, að „hann, Jesús, hafi leyst oss frá synd- um vorum með blóði sínu.“ Óviðjafnanlegur sann- leikur fyrir hvern þann, sem vill taka á móti boð- skap hjálpræðisins! í Opinberunarbókinni lesum við, að þeir hafi þvegið skykkjur sinar og hvítfágað þær í „blóði lambsins“. Þetta ber að skilja þannig, að þeir hafi fengið hreinsun hjartna sinna frá syndinni. Þess vegna stóðu þeir frammi fyrir hásæti Guðs. Það var maður nokkur i byggðarlagi okkar, sem dreymdi draum. Hann dreymdi, að hann fengi reikning, sem sýndi allar syndir hans. Reikningur- mn var ofboðslega hár, svo honum fannst eng- inn möguleiki fyrir sig að greiða hann. Meðan hann var að hugsa um þetta, að þetta væri sér með ollu ákleyft, þykir honum Jesús opinberast rétt hjá sér. „Ég skal hjálpa þér með þessar skuldir þínar og kvitta reikninginn,“ sagði Jesús. Maður- inn fór að reyna að útvega honitm blek og penna, en þá sagði Jesús við hann: „Þess þarftu ekki, því að ég sé um þetta.“ Maðurinn tók þá eftir því að Jesús var með flösku með vökva í sem bar rauðan vökva. Því næst dýfði frelsarinn penna niður í flöskttna og skrifaði nafn sitt á reikninginn. Nafnið var sem það væri skrifað með blóði. Þá snýr Krist- ur sér að manninum og segir: „Það eina sem ég skrifa, skrifa ég með mínu eigin blóði.“ Augnaaráð hans var fullt af miskunn og skilningi. Til að byrja með skildi maðurinn ekki merkingu þessa draums. En þegar ég útskýrði fyrir honutn, hvaða þýðingu blóðið hefði vegna endurlausnar okkar, fylhist hjarta mannsins af ósegjanlegri gleði. Og þegar í stað fór hann að segja vinum sínum og grönnum hvað sig hefði dreymt og hvað draum- urinn þýddi. Samkvæmt Guðs orði hefur Jesús keypt okkur frjáls með blóði sínu. Og þetta er lykillinn að því að öðlast friðþægingu, sem Jesús ávann okkur á Golgata. En með þvi að gera það öðlumst við hjálpræðið í nafni Jesú Krists. N. N. Sáliiiur eftir GUÐRÍÐI S. ÞÓRODDSDÓTTUR Jcsús clskar þig Blessuð eru börn Guðs þ\egin blóði lambsins hreinu í. Á himnum verða hægra megin. Hér veit Guð ég keppi að því. Þótt það kosti þraut að líða, það er mjói vegurinn. Vaka, biðja, vilja stríða. Vís þá trúarsigurinn. Tár og þrenging þeirra stunda, það mun ekki reynast neitt. Samanborið sælla funda Son Guðs við. Hann elskar heitt. Hann vill breyta hjarta þínu, helga það til eignar sér. Elskunnar með Orði sínu, er hann hefur gefið þér. 19

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.