Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 37

Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 37
eins og áður segir. Einhvern messudag stóð svo a að enginn virtist ætla til guðsþjónustu frá heim- ili hennar, Keykjum. Hún eggjaði vinnukonur sín- ar mjög að íara, en þær íæroust undan og báru hinu og þessu við. Einhver þóttist eiga eitthvað ógert, sem hún þyrfli að ljúka við, aðra vantaði skó, þriðja sagði að það væri orðið of seint að hefja ferðina. Þá slendur Guðrún upp og býr sig til ferðar og kastar fram þessari stöku: Mörgu að þjóna, mörgu að svara, margt, sem hindra kynni. Eg á skóna. Eg skal fara. Ég næ blessuninni. Til er lýsing á Guðrúnu í vísum, sem ortar voru um stúlkur í Laugardalnum. Þá var Guðrún gjaf- vaxta í föðurgarði. Þar segir svo: Guðrún alla, friðsöm, fróm, forðast galla lasta. Það má kalla kvennablóm, kvendið fallegasta. Um fegurð hennar kemst Magnús Andrésson svo að orði í grafskrift er hann setti þeim hjónum: Var hún svo fögur á vori æsku, að fáar slikar á Fróni sáust. En ofan á yndisþokkann og fríðleikann kom sjálf kórónan, sem sómdi þessari merku konu bezt: Hún óttaðist Drottin sinn og setti alla krislilega siði nijög hátt. 1 næsta kafla sömu bókar segir séra Árni frá eftirfarandi, sem hér er tekið orðrétt upp eftir honum: Annars er mér flest úr minni liðið, sem á daga •nina dreif í Götu. Ég var þá svo ungur að aldri. Það eru aðeins nokkur atvik á stangli, sem ennþá niara hér og þar upp úr tómi gleymskunnar. Svo er tildæmis um einn sunnudag á köldum vetri. £g fór til kirkju að Hrepphólum með móður minni. En meðan við vorum í burtu, gerðist sá dapur- legi atburður heima í Götu, að Þórunn systir min fékk slag í fyrsta sinn. Þá var hún tveggja ára. Upp frá því þjáðist hún af slagaveiki, fékk dag- lega slag og stundum mörg á dag, varð aumingi, gat ekkert unnið, en hélt þó viti fullu. Þegar hún Var tólf eða þrettán ára, var hún send til Edin- borgar til lækninga. Hjaltalínshjónin tóku á móti henni og komu henni á framfæri. En hún fékk enga bót meina sinna. Þrált fyrir þessa megnu niðurfallssýki virtist henni alltaf líða vel. Hún var jafnan glöð í skapi. Eftir að hún lærði að lesa, las hún alla daga Passíusálmana og Nýja testamentið. Margt í þessu kunni hún orðrétt utanbókar. Hún lifði mikið i bæn og ástundaði að breyta alveg eftir Jesú. Ef 'hún heyrði mann blóta eða einhver gerði eitt- hvað á hluta hcnnar, gekk hún afsíðis til að biðja fyrir honum. Einn morgun, þegar hún vaknaði, sagði hún við mömmu: „Ósköp leið mér vel í nótt, mamma! — Mig dreymdi, að það væri afmælisdagurinn minn. Ég þóttist vera einhvers staðar á gangi og koma að stóru húsi, sem ég hef aldrei séð áður. Það var lokað, en ég óskaði þess með sjálfri mér, að það væri opnað og ég mætti koma inn í það. Þá opn- aðist húsið, eins og ósk mín hefði verið heyrð inni fyrir, og Frelsarinn kemur til dyra og tekur mig í faðm sinn og ber mig upp að hásæti Guðs almáltugs og réttir mig honum. Og ég var svo óskaplega sæl. En þá vaknaði ég.“ Nú liðu eitthvað fjórir mánuðir. Þá var það á afmælisdag Jórunnar 1882, þegar hún var 28 ára, að hún fékk 28 slög í lotu og andaðist í síðasta slaginu. Þá var hún flutt heim í dýrðina. HJÁLPIÐ OKKUR! Afturelding; hefur fenpið mikla útbrciðzlu. Fyrir það eru útgefendur mjöfi; þakklátir. En einn er galli á gjöf Njarðar. Sá, að kaupendur skipta um bústaði eins off annað fólk. Ó, aðeins að þið, sem g;erið það, vilduð láta afgrciðslu blaðsins vita um það. — Ef þið sæuð búnkana af blaðinu, sem koma til baka mcð póstinum, ineð þennan leiðinlcga ci- lífðar stimpil ,,Fluttur“, þá munduð þið vilja hjálpa okkur undan þessu fargi, að þurfa að tala í síma, skrifa, spyrjast fyrir og: fá stundum engan botn í neitt. Og það sem verst er, að með þcssu verður stakasta órcffla á afgrciðslu blaðsins, sem við g:et- um ekki að ffert, en okkur oft kennt uin. — Viljið þið hjálpið okkur og: láta okkur vita, er þið skiptið um heimilisfang:? 37

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.