Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 43

Afturelding - 01.03.1970, Blaðsíða 43
• • Sumum heimska - Oðrum kraftur Guðs Ágrip úr rœðu Ásm. Eiríkssonar á föstudaginn langa sl.« í Austurbœjarbíói. Rvík. Texti: 1. Kor. 1.18: «.Þvi að orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss sem hólpnir verðum. er það kraftur Guðs". — Kól. 1.20: .. og að koma fyrir hann öllu í sátt við sig, hvort heldur er það sem er á jörðunni eða það sem er í himnunum. eftir að hafa samið frið með blóðinu, úthelltu á krossi hans.” Þegar Guð réði það við sjálfan sig, hvaða leið hann skyldi fara til að koma föllnu mannkyni til hjálpar, ákvað hann, að það skyldi verða leið krossins. Þetta er því óskiljanlegra í augum flestra, af því að sú leið hefur orðið fjöldanum óaðgengi- legust allra leiða. 1 nær 2000 ár hefur hún raunverulega orðið það, sem Pál'l sagði við Korintumenn: „Því að orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs.“ (1. Kor. 1,18). Önnur þverstæðan á þessari leið mann- anna, hefur sú orðið, þegar Guð ákvað í leyndar- fáði sínu, hverja liann skyldi velja út til þess að Þytja fagnaðarerindið um krossinn, þá velur hann ómcnn'.aða fiskimenn. Þetta hefur orðið jafnmikið hneyksli og sjálfur krossinn. í gegnum aldirnar hefur það verið kannað, að það eru sára fá pró- sent af stórgáfumönnum og lærðum, þó að þeir nafi fundizt þar líka, sem kallaðir hafa verið út af Guði sem boðberar fagnaðarerindisins. Á þessa staðreynd bendir guðsmaðurinn, sem talinn hefur verið mestur boðberi orðs krossins, fyrir al'la tíma, ef hann segir: „Því að lítið, bræður, til köllunar yðar: Þér eruð ekki margir vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir, heldur hefur Guð útvalið það, sem heimurinn tel- Helgi biður kærlega að heilsa. Verið öll blessuð °g sæl og góðum Guði falin. Þinn bróðir í Kristi. Einar G. Þorsteinsson. ur hcimsku, til þess að gjöra hinum vitru kinn- roða, og Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur veikleika, til þess að gjöra hinu volduga kinn- roða. Og hið ógöfuga í heiminum og hið fyrir- litna hefur Guð útvalið, og það sem ekkert er, til þess að gera það að engu, sem er, til þess að ekki skuli neitt hold hrósa sér fyrir Guði.“ (1. Kor. 1, 26—28). Þá hefur hneykslið ekki minnkað við það, að hjartablaðið í þessurn blessaða boðskap krossins, er endurlausn mannanna fyrir blóð Jesú Krists. „Því að í honum þóknaðist Guði að láta alla fyll- inguna búa, og að koma fyrir hann öllu í sátt við sig, hvort heldur er það sem er á jörðunni eða það sem er í himnunum, eftir að hafa samið frið með blóðinu, úthelltu á krossi hans“ (Kól.1,19-20). Nei, þetta með hjálpræðið fyrir blóð Jesú Krists, kórónar nú allt hneykslið, og svo snúa menn sér frá Guðs vegi, og velja sinn eiginn veg. Svo tæpi- tungulaust hafa menn talað um þetta hneyksli, að jafnvol prestar í íslenzku þjóðkirkjunni, hafa skrif- að um það, að þetta varði við guðlast, að blóð Jesú Krists hreinsi manninn af syndurn hans. I augum ótrúlega mikrls fjölda manna er blóð Krists ekkert öðruvísi en blóðið sem rennur um æðar allra manna, því að liann sé af feðrunum kom- inn eins og allir aðrir, sé ekki eingetinn sonur Guðs. Fyrsti maðurinn, sem freistaðist í þessu sama efni, mætir okkur á fyrstu blaðsíðu Nýja testa- mentisins. Það er enginn annar en Jósef, sem var heitbundinn Maríu, móður frelsarans. Meðan þau voru aðeins heitbundin uppgötvaði hann það, sem 43

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.