Afturelding - 01.03.1970, Qupperneq 14

Afturelding - 01.03.1970, Qupperneq 14
ræða að bera byrðarnar sameiginlega. Sjálfsögð skylda hvers kristins manns í heimilinu, er að vera fús að rétta alls staðar fram hjálpandi hönd. Kristið heimili getur aðeins orðið algert og þjón- að sínu rétta hlutverki með því að allir vinni þannig að sameiginlegri heill. Aðeins á þessum vegi er heimilið kristið og í sannleika hamingju- ríkt heimili. „Höndin, sem hreyfir vögguna, hreyfir heim- inn“, er þekkt máltæki, þegar um þau áhrif er að ræða, sem heimilið hefur á hina verðandi kyn- slóð. Það er í heimilinu, sem litla barnið fær sín allra fyrstu áhrif til góðs eða ills. Þar fær það sína fyrstu þekkingu um Guð, um Krist og fyrstu reynslu sína í umgengni sinni við bænina og þýð- ingu hennar. Þess vegna megum við heldur ekki gleyma fjölskyldu altarinu. Það er ekki nóg að við höfum eldstóna innbyggða í einhvern vegg heim- ilisins. Við verðum að eiga kristin heimili með bænaaltari á sínum stað. Þegar ég var ofurlítil smátelpa, fór það ekki framhjá mér hvílíkur kraftur bænin var í lífi for- eldra minna. Ég var aðeins fárra ára, þegar ég komst að þessari staðreynd. Mun ég aldrei gleyma þeiin áhrifum, sem snertu mig er ég opnaði kannski dyrnar að svefnherbergi foreldra minna, og sá þau bæði í knéfallandi bæn þar inni. í orðlausri virð- ingu og lotningu, lokaði litla stúlkan hurðinni aftur og gekk burtu. Skilningur minn var ekki svo mikill þá, sem ekki var von, en eitt skildi ég, eitt vissi ég, að þarna hafði ég nálgazt heilagan stað, sem enginn mátti trufla né vanhelga. Ég vissi, að þarna var uppsprettan að þeirri sjálfstjórn og þeim krafti, sem foreldrar mínir áttu yfir að ráða, hvernig sein kringums'æðurnar voru. Aldrei get ég fullþakkað þau áhrif, sem ég tók inn til mín sem barn gegnum það, að ég ólst upp í sann- kristnu heimili. Ég er sannfærð um að þetta er bezti vitnisburð- ur um áhrif hins kristna heimilis. Mætti Guð hjálpa okkur á íslandi til þess að byggja slík kristin heimili. Þetta viljum vi& vita BILLY- 6RAHAM Spurning: Ég er ung stúlka. Og vandamál mitt er þetta: Ég vil vera kristin, en ég vil líka vera aðlaðandi í augum ungra manna, sem mér geðjast að. Er hægt að vera vinsæl og aðlaðandi án þess að slá af kröfum sínum eða miðla málum? Á. M. Svar: Það sem ávallt vekur virðingu í augum annarra, á ungum manni eða ungri stúlku, er föst skap- gcrð og traustvekjandi framkoma. Á milli kristin- dóms og fagurrar skaphafnar þekkjast engir árekstrar. Ef þér þurfið að miðla málum í sam- bandi við hugmynd yðar um vinsældir, hafið þér greitt of hátt verð fyrir vinsældirnar. Það getur verið skemmtilegt að vera vinsæll, en það varir ekki lengi. Og væri ég í yðar sporum, mundi ég sækjast eftir þeim hlutum sem vara. Ég fæ bréf frá ungu fólki í hverri viku, sem er alltaf að miðla málum vegna hugmynda sinna. Og verðið sem það greiðir er óheyrilega hátt. Fátt er það fólk, sem allir tala vel um. öll höfum við dulda hneigð til þess að Iíkjast þeim, sem við um- göngumst. Þér skuluð þvi sýna mikla varkárni, er þér veljið yður vini. Einhver hefur sagt, að það eina sem er verra en að vera einmana, sé að vera saman með skakkri persónu. Vel þér vini með ábyrgðarlilfinningu og ótta. Hin unga, kristna manneskja er kölluð til þess að vera „öðruvísi". Hún er kölluð til þess að ganga á móti straumnum. Þegar hinn rétti, ungi maður hefur kannað hug sinn í alvöru, mun hann leita þig uppi. Hvernig sem allt er, þá liggur hið verð- andi val í hendi Guðs. Treystið forsjón hans fylli- lega. „Haf gát á öllum vegum þínum, þá mun hann leiða þig um rétta vegu.“ 14

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.