Afturelding - 01.03.1970, Síða 22

Afturelding - 01.03.1970, Síða 22
Nokkrar mínútur með Lewi Pethrus Hef upp raust þína til Drottins 1 „Ljóðaljóðunum“ talar Drottinn um hversu kær brúðurin er brúðgumanum: „Lát mig sjá aug- lit þitt, lát mig heyra rödd þína! Því að rödd þín er sæt og auglit þitt yndislegt.“ Hann á ekki aðeins stað fyrir liana í klettaskor- unni, hann á líka stað fyrir hana í hjarta sínu. Við hugsum okkur bænina oftast þannig, að brúð- urin biður til brúðgumans, en hér höfum við dæmi um það, að brúðguminn biður til brúðurinnar. Hann biður og segir: „Lát mig heyra rödd þina, því rödd þín er svo sæt.“ Hugsið ykkur, vinir, að Jesús beygir sig niður og biður okkur. Dúfan hef- ur orðið hrædd og flogið langt, langt inn í fylgsni fjallshnjúksins. Þá hrópar brúðguminn til hennar: „Lát mig sjá auglit þitt, lát mig heyra rödd þina. Lát þér ekki koma til hugar að þú þurfir að vera hrædd við mig, þó að þú sért hrædd við óvininn, sem eltir þig. Ég þrái að sjá auglit þitt og heyra rödd þína.“ Ó, hversu dýrmæt hugsun er þetta ekki, systir og bróðir! Ó, að öll Guðs börn vildu svara honum. Hann svarar bænum okkar svo oft. Hann þráir að ég og þú talir við sig. Hin mesta þörf í Guðsríki í dag er bænin. Það er nóg til af félagskerfum, góðum prédikurum og margir góðir söngvarar eru til og mikið er gefið til kristniboðs. En það er nokkuð sem vantar. Það er hin innilega trúarbæn. Ef hún er á sínum stað meðal hinna kristnu, munum við sjá volduga hluti gerast. Drottinn þráir að við séum biðjandi fólk og að hann fái að heyra rödd hvers og eins okkar. Ef við gætum skilið þetta orð Drottins rétt, mundum við verða meira bænafólk en við erum. Við freistumst oft til að hugsa, þegar við komum með áhyggjur okkar aftur og aftur fram fyrir hann, að hann þreytist á okkur. En það gerir hann ekki, heldur segir hann: „Rödd þín er sæt.“ Hann þráir að heyra rödd þína, sem blður til hans. Hvort sem það er barnið sem biður með veikri rödd kvöldbænina sína, eða hinn grófi syndari, sem hrópar í neyð sinni undan þunga syndarinnar: Guð miskunna þig yfir mig, frelsaðu mig“. Raddir þeirra beggja óma sem yndisleg hljómlist í eyr- um hans. Það eru menn og konur í dag, sem bera þungar bænabyrðar. Mörg okkar hafa bænabyrðar sem ætla að þrýsta okkur til jarðar. Þeir eru á meðal okkar, sem vildu gefa sitt líf til þess að fá bænum sínum svarað. Þeir segja við Guð: „Ef þú ennþá vildir heyra til mín, ef þú ennþá einu sinni vildir heyra rödd mína.“ Bróðir minn og systir, þegar þú í einrúmi striðir í bænaherberginu þínu, þá minnztu þess að hann segir: „Lát mig heyra rödd þína, þvi að rödd þín er sæt.“ Hún er sem hljómlist fyrir honum. — Já, segir þú, það hljómar ekki vel. Þið ættuð að heyra þegar angistaróp sálar minnar þrýstast fram! Ó, kæri bróðir minn, það er einmitt þetta sem er hljómlist fyrir Jesúm. „Lát mig heyra rödd þína,“ segir hann. Hversu oft og mörgum sinnum freistumst við að láta aðra heyra rödd okkar, t.d. er við biðjum um hluti, sem við vitum að aðrir geta hjálpað okkur með. Setjum svo að þú værir á bænasamkomu og þyrftir á pen- ingaupphæð að halda til starfa í Guðsríki, og þú vissir af ríkri persónu sem væri í samkomunni, 22

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.