Afturelding - 01.03.1970, Qupperneq 28
llanua Ujarnadóttir syngur: MFaðir vor“. Árni Arinbjarnarson leikur undir.
ert þú með sanni“. Með því lauk þessari vígsluguðs-
þjónustu.
Eftir að síðustu tónarnir dóu út og fólkið rýmdi
salinn, því áfram var svo haldið eftir IV2 klukku-
stund með aðra samkomu, — þá stóð og stendur
eitt nafn gulli letrað á ræðustól Fíladelfíu, NAFNIÐ
JESÚS.
Það er kærasta nafn allra kristinna manna. Til
þess hafa Hvítasunnumenn á Islandi reist þetta
hús, að Jesú nafn verði boðað á „ástkæru ylhýru
máli“ og trú okkar er að „helzt mun það blessun
valda“ fyrir islenzka þjóð, yngri og eldri.
Guð gefi að svo verði.
Einar J. Gíslason.
ES. I vígsluræðu sinni sagði Ásmundur Eiríksson
frá því, að það hefði gerzt með nokkuð einkenni-
legum hætti, að þeir fengu þá ágætu lóð undir
kirkjuna, sem raun ber vitni. Þeir voru búnir að
leita mikið að heppilegri lóð, en engin lausn fékkst.
Eitt sinn, er Ásmundur var búinn að biðja all-
mikið fyrir þessu vandamáli, vitraðist honum sýn.
Hann sá yfir nokkurn hluta Reykjavíkur, og á
því svæði var grænn túnblettur. Upp úr þessum
túnbletti sá hann bjartan loga teigja sig til hæða.
Hvað merkir þetta? hugsaði hann með sér.
Enn líður nokkur tími og ekkert gerist í lóðar-
málinu. Og enn er beðið. Þá vitraðist Ásmundi
önnur sýn. Hann sér aflur yfir sama hluta Reykja-
víkur, og þarna er græni túnbletturinn á sínum
stað. En nú sér hann þétt regnský falla af himni
28