Afturelding - 01.01.1981, Qupperneq 9
a
R KRIST1981 ”
söfnuði hans á íslandi og Keith Parks í Kanada.
Island! Ég gat varla trúað þessu. Þetta gat varla
verið tilviljun — hjá Guði gerast engar tilviljanir. Þó
að hluti af mér segði: „Það er ekki nokkur vegur að
þú getir farið,“ — þá vissi hinn hluti minn án
nokkurs vafa — að ég myndi fara.
Fyrst varð ég að taka trúarskref, sem fólst í því að
hafna vinnu, sem ég hafði hlakkað mikið til að fá.
Og það var erfitt. Það var eins og að stökkva fram af
klettabrún. En slíkt stökk í trausti þess, að Guð
muni grípa okkur, er einmitt það, sem Guð krefst af
okkur, ef við eigum að þjóna honum. Þetta var
aðeins ein barátta af mörgum, sem ég varð að fást
við. Aðrar baráttur fólust í því, að ég varð að yfir-
gefa fjölskyldu mína, eyða fjármunum, — allt vopn,
sem óvinurinn notar til baráttu. En ég var hertygjuð
sverði Andans, hvar sem ég leitaði í Biblíunni, fann
ég sömu boðin: „Farið út til allra þjóða — breiðið út
fagnaðarerindið — játaðu með munni þínum, —
uppskeran er tilbúin, en verkamennirnir eru fáir!“
Og ég sagði með Jesaja: „Hér er ég, send mig!“
Síðan gaf Drottinn mér orð frá Esekíel 3:5: „því
að þú ert ekki sendur til fólks, er mæli á torskilda
tungu, til ísraelsmanna.“ Og vers 9: „Ég gjöri enni
þitt sem demant, harðara en klett. Þú skalt ekki
óttast þá, né skelfast fyrir augliti þeirra, því að þeir
eru þverúðugkynslóð!“ V.l l — „Far síðan til hinna
herleiddu, til samlanda þinna, og tala til þeirra, seg
við þá: Svo segir herrann Drottinn! — Hvort sem
þeir svo hlýða á það eða gefa því engan gaum!“
Enn reyndi Satan að hvísla því að mér, að ég
skyldi ekki fara, — en smám saman gafst mér í
hjarta sá sannleikur, sem er sterkari en allar lygar
óvinarins, og þurrkaði burt allan ótta. Guð sagði:
„Sjá, ég hef látið dyr standa opnar fyrir þér, sem
enginn getur lokað!“ Dyrnar til íslands voru mér
opnar, — dyrnar að landi móður minnar, — og ég
gekk inn um þær í fullu trausti til Guðs. Og ég fékk
að reyna á hverjum degi þann mikla styrk, sem gefst
í nærveru hans. Við fengum að upplifa hann aug-
ljóslega í öllu, sem við tókum okkur fyrir hendur á
hinum ýmsu stöðum,s em við ferðuðumst til, — og í
gegnum blessun þá, sem við meðtókum í gengum
þá trúuðu á íslandi, sem í raun og sannleika þjóna
Guði.
júlí 1980
Rhodanthe (Rhody) Lake
Nokkrum mánuðum eftir að ég hafði meðtekið
Krist sem Frelsara minn og Drottinn í lífi mínu, sá
ég frásögn um ísland, og þann dag talaði andi
Drottins til mín. Síðan hef ég átt neyð fyrir landi
ykkar og þjóð. Ég visai að einhvern tíma myndi ég
fara til íslands til að miðla fagnaðererindinu um
Jesúm Krist.
Ég hef komið til íslands í hlýðni við Heilagan
Anda til að gera þá hugsjón, sem ég þá átti, að
raunveruleika. Hið mikla boð Guðs er: „Farið út
um allan heim og prédikið fagnaðarerindið hverri
skepnu.“
Ég er hreykin yfir að vera hluti af þessari herferð,
sem mun halda áfram þangað til Kristur kemur
aftur.
Ég hef verið heiðruð með því að fá að sjá fólk
verða að nýrri sköpun í Kristi Jesú.
Guð hefur læknað og leyst alla þá, sem voru fúsir
til að taka í móti lausn frá sjúkdómum og því, sem
heimurinn hefur upp á að bjóða.
Ég mun halda áfram að biðja fyrir því, að hinn
mikli kraftur Guðs megi verða enn augljósari á
meðal þjóðar ykkar.
Nettie Hyland