Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 11

Afturelding - 01.01.1981, Blaðsíða 11
stöðumaður í Betaníasöfnuðinum í Nyhem. f því starfi stóð hann í 20 ár. 16.—18. júní árið 1917 stofnsetti hann sumarmót, sem síðar þróaðist til þess sem nú er Nyhemsvikan. Mótin þar eru heimsþekkt. Auk þátttöku í starfi á íslandi með byggingu Betel í Vestmannaeyjum þá tók hann þátt í brautryðjendastarfi Hvítasunnumanna í Portúgal og um alla Svíþjóð var hann kunnur sem dugnað- artrúboði og framkvæmdamaður. Viktor Johannsson var fæddur 2. janúar 1866 og dó níræður 25. júlí 1956. Hann fæddist í Harja, Mullsjöl. Viktor var gifur og eignaðist með eigin- konu sinni 10 börn. Þar af tvenna tvíbura. Þegar þetta er skrifað, þá eru 5 börn hans á lífi. Viktor var mjög virkur starfsmaður í Guðs-Ríki og byggði ekki færri en 9 safnaðarhús Hvítasunnumanna. Hann var traustur og mikilvirkur bróðir. Karin dóttir hans var stödd á samkomu í Fal- kjöping 7. desember 1980 og heyrði undirritaðan flytja þar ræðu og meðal annars var faðir hennar nefndur og það að góðu einu, sem þátttakandi í brautryðjendastarfi Hvítasunnumanna á íslandi. Kom hún til mín samkomulok og kynnti sig og urðu þar fagnaðarfundir. Karin er ekkja, en var gift dugmiklum trúboða og eignaðist mörg börn. Karin skrifar mér og greinir frá að þegar faðir hennar kom heini frá íslandi, þá gaf hann henni hvítt lambs- skinn, garvað og fallegt. Þetta skinn var lengi til í eigu fjölskyldunnar, sem minni frá íslandi og síðast fékk dótturbarn Viktors skinnið. „Verið minnugir leiðtoga yðar, sem Guðs Orð hafa til yðar talað. Virðið fyrir yður hvernig ævi þeirra lauk og líkið síðan eftir trú þeirra,“ Hebreabréfið 13:7. Undirritaður tileinkar sér þessi orð Ritninganna og vill sýna það í breytni, að Orðið er virt. Því leiðir af sjálfu sér að samband er haft við þá hreyfingu og lönd, sem brautryðjendurnir komu frá, meira en fjarskylt fólk og lönd og álfur, þegar um starfið hér heima á íslandi er að ræða. Einar J. Gíslason. Viktor Jóhannsson.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.