Afturelding - 01.01.1981, Page 21
Eftir Denys W. Collins,
skipherra á trúboðsskipinu Logos
fimm ár og hafði það einnig valdið dóttur hans ama.
Eftir að hafa lesið um mátt lofgerðarinnar, ákvað
hún, að í stað þess að biðja fyrir því að lofa Guð
fyrir það, eins og bent var á í bókinni. Og nú var
þetta vandamál alveg úr sögunni, sagði hún.
Það er raunverulegur kraftur í lofgerðinni. Hef-
urðu reynt hana? Ef ekki, þá ferðu á mis við þann
farveg máttar Guðs sem hann vill gefa lífi þínu.
Annað atvik á sjóferðinni sýnir leið Guðs í því að
snúa augljóslega neikvæðum hlutum í jákvæða
niðurstöðu. Maður sem vann á dekki slasaðist af
kaðalenda sem slóst í andlit hans. Á leiðinni inn til
læknisins hélt hann stórri gólfþvögu yfir augum sér.
Eg náði til hans, lagði hönd mína á öxl hans og
sagði: „Guð blessi þig.“
Síðar sagði hann svo frá, að þegar hann heyrði
þessi orð mín, hefði hann ekki getað tára bundist.
Hann var rúmfastur um vikutíma og eyddi miklum
tíma í lestur Biblíunnar. Hann fékk leiðbeiningar í
lestri Ritningarinnar í gegnum hjálparkver er hann
þáði með þökkum. Ég trúi því, að Guð hafi notað
þetta atvik til að blessa hann og kenna honum
marga hluti.
Það fer vel á því, að ég endi þetta með atviki sem
gerðist rétt áður en sjóferðin byrjaði. Ég var gest-
komandi á heimili þar sem trúboði nokkur og fjöl-
skylda hans — þar með talin 10 ára dóttir hans —
voru komin til að dvelja á. Þau höfðu lagt bifreið-
inni við húsið, og nær því strax og þau voru flutt inn
hafði þjófur brotist inn í húsið og stolið ferðatösk-
unum er innihéldu fatnað þeirra. Um leið og ég
heyrði þetta varð mér að orði: „Þetta var ljóta
óheppnin.“ Litla hnátan sneri sér við og sagði: „Ó,
ég trúi ekki á tilviljun. Ég trúi á Jesúm.“ „En hvað
um fötin ykkar sem var stolið?“ spurði ég.
„Veistu ekki,“ svaraði hún „að það stendur í
Biblíunni, að þeim sem Guð elskar samverkar allt
til góðs.“
Þýtt og stytt úr Living Links