Afturelding - 01.01.1981, Side 28
ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDA*
Nýverið söfnuðusl þúsundir hvítasunnumanna saman í Sao
Paulo, Brasilíu, til að vígja samkomuhús Congregacao Crista do
Brasil. í húsinu eru sæti fyrir 25.000 manns, og er það hluti stærri
byggingar, sem hýsir aðalstöðvar safnaðarins í landinu. Öll
byggingin er næstum jafn löng og fótboltavöllur. Hún er talin
vera stærsta kirkjubygging evangelískra í heiminum.
Meðal viðstaddra við vígsluna voru Paulo Evaristo Arns kardí-
náli og Philip Potter ritari Heimsráðs kirknanna.
Þessi aðalgrein hvítasunnumanna í Brasílíu var stofnuð 1910 á
meðal ítalskra innflytjenda, af Luigi Francescon frá Chicago. Um
árabil fóru samkomur safnaðarins fram á ítölsku.
Þrátt fyrir að þessar brasilisku kirkjur séu fjölmargar og fjölgi
hratt, þá auglýsa þær ekki samkomur sínar, hvorki í blöðum né
útvarpi. Þær hafa ekki fastráðna forstöðumenn, þótt sumir stærri
safnaðanna hafa bókara á launum. öldungar og djáknar annast
predíkun orðsins.
ÍPPA 181
Rúmeni skrifar nýlega í blað breskra hvitasunnumanna og segir
þar að kristnir söfnuðir njóti meira frelsis til starfa nú, en nokkru
sinni fyrr, frá því er kommúnistar tóku völd í Rúmeníu.
800 hvítasunnusöfnuðir eru skráðir hjá stjórnvöldum og 300 bíða
skráningar. í mörgum þessara safnaða eru meira en 1,000 manns
og í sumum yfir 2,000.
f sumum rúmenskum bæjum sækja meira en 75% bæjarbúa
Hvítasunnukirkjuna. Dóttir bæjarstjórans í einu þorpi læknaðist
fyrir kraftaverk. Nú tilheyra allir 400 íbúar þorpsins Hvíta-
sunnukirkjunni.
Hann segir enn fremur: „Þar til fyrir sjö árum fengu Rúmenar
aðeins að halda eina vikulega samkomu. Nú megum við hafa
þrjár og að auki koma saman til kóræfinga og hljómsveitaræf-
inga. Þessar stundir verða að samfélags og bænastundum — og
það eru undravert hversu margir leika í hljómsveitinni! Ekki má
dreifa lesmáli, né auglýsa samkomur og sækja verður um leyfi ef
gestir eiga að predíka. Engu að síður eru kirkjurnar setnar til
þrengsla og stöðugt streyma inn beiðnir um skírn og inngöngu í
söfnuðina."
IPPA 181
Hvítasunnuhreyfingin í Kanada hefur aðalþing á tveggja ára
fresti, nú síðast í haust. Þarkom fram að 135 söfnuðir hafa bæst
við á síðustu 5 árum, og eru nú 1099 Hvítasunnukirkjur í Kanada.
IPPA 181
Árið 1981 fagna Hvítasunnumenn í Burma 50 ára starfsafmæli.
Strax frá byrjun árið 1931 uxu kirkjurnarmjög hratt. Árið 1966
voru 12,688 í Hvítasúnnuhreyfingunni í Burma, og það ár var
starf erlendra kristniboða bannað í landinu. Vöxturinn hélt
áfram, þótt kristniboðarnir væru viðs fjarri og nú er talið að um
50,000 manns tilheyri söfnuðunum.
IPPA 181
Þrátt fyrir stjómmálalegan óróa í E1 Salvador. er kristilegt starf í
blóma. I nóvember 1980 var haldin tveggja vikna samkomuher-
ferð á þjóðarleikvanginum í San Salvador. Við leikvanginn eru
60,000 sæti og leikvangurinn troðfylltist kvöld eflir kvöld, svo
færri komust að en vildu. Þúsundir manna þjöppuðust saman á
leikvanginum sjálfum svo og í heyrnarfæri utan hans.
IPPA 181
Frank Holder. brautryðjandi hvítasunnustarfs í Kunming, Kína,
heimsótti borgina nýlega eftir 31 árs fjarveru. Kirkjan sem hann
predikaði í fyrir valdatöku kómmúnista er nú notuð sem verk-
smiðja, en 450 trúaðir koma saman 1 heimahúsum. Þeir sögðu
honum að 150 hefðu verið skírðir 1980. Maður og kona fluttu til
annarar borgar, stuttu eftir að þau höfðu tekið skím í Kumning.
Nú hafa þau heimakirkju í nýju borginni og 85 trúaðir koma
saman.
IPPA 181
Um 4,000 kristnir komu saman til 20. ársmóts Þýska Evangelíska
Sambandsins. Aðalumræðuefnið var samskipti við Hvítasunnu-
menn. Mikil skoðanamunur var á hversu langt ætti að ganga í
samstarfi við Hvítasunnumenn heima í héraði. Fulltrúar sumra
staðbundinna deilda voru jákvæðir gagnvart samvinnu við
„hófsama Hvítasunnumenn", meðan aðrir fulltrúar tjáðu nei- >
kvætt álit sitt á Hvítasunnuhreyfingunni í Vestur-Þýskalandi, en
hún hefur um 70,000 meðlimi.
IPPA 181
Trúarleg áhrif verða vart merkjanleg í Svíþjóð árið 2000 ef svo
fer sem horfir, segir prófessor Göran Gustafsson við Háskólann
í Lundi. Hann kennir um að kristindómsfræðsla hefur næstum
verið afnumin í skólum og þjóðfélagið sniðgengur kristilega
starfsemi. Kirkjusókn er nú áætluð um 4 af hundraði og minnk-
ar.
CAW 581
Náðargjafahreyfingin meðal kaþólskra hefur nú náð til 102
landa og breiðist enn út. Þetta er haft eftir föður Tom Forrest, en
hann er yfirmaður á skrifstofu kaþólsku kirkjunnar í Brussel,
sem fylgist með náðargjafahreyfingunni.
Mótmælendur hafa nú óskorað starfsfrelsi á Spáni. Sam-
kvæmt nýrri stjómarskrá er fullt trúfrelsi gefið. Rómversk
kaþólska kirkjan krefst nú ekki lengur ríkisstyrks þar í landi.
CAW381
ERLENDAR FRETTIR
ERLENDAR FRETTIR
ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDA*