Afturelding - 01.04.1985, Qupperneq 8
Vitnisburður:
Fri'ða Jónsdóttir
Sjá, allt er
orðið nýtt!
Þetta hljómar eins og góð aug-
lýsing, eða hvað finnst þér?
Nei, þessi orð Biblíunnar eru
sönn og lifandi, þannig er það
nefnilega þegar þú kynnist Jesú
Kristi sem þínum persónulega
frelsara,
Fyrir þrem árum kynntist ég
honum sem vini mínum og frels-
ara og lífið gjörsamlega snérist
við. Ég hafði eignast eitthvað
sem breytti öllum innri manni
mínum, skoðunum og gjörðum,
eitthvað sem fyllti mig af friði og
gleði oggafmér von um eilíft líf.
Ég er alin upp á kristnu heim-
ili og átti einlæga barnatrú. Þegar
ég var 16 — 17 ára og fórað kynn-
ast heiminum, þá fannst mér að
ef ég ætti að vera gjaldgeng á
markaðnum þá yrði ég að reyna
að vera eins og allar hinar, pínu
töff, það fannst mér alla vega
saklausri sveitastúlkunni. Ég
sagði skilið við Guð, nú ætlaði ég
að ráða ferðinni og lifa mínu lifi.
A meðan geymdi ég Guð niðri í
skúffu, og þegar mér leið eitt-
hvað illa þá opnaði ég skúffuna,
sagði Guði frá hvað ég ætti bágt,
lokaði skúffunni og læsti, og
geymdi svo lykilinn á góðum
stað.
Alltaf urðu ferðirnar i skúff-
una færri og færri og að lokum
geymdi ég lykilinn svo vel að ég
fann hann ekki aftur, þá fór ég að
finna fyrir því að eitthvað vant-
aði.
Hvað vantaði?
Hvað vantar fólkið í dag sem
keppir eftir að eignast hamingj-
una, sjá einhvern tilgang með líf-
inu, í peningum, skemmtunum,
húsgögnum, vídeói, víni og eit-
urlyfjum.
Eða hvar leitar þú hamingj-
unnar?
Getur þú sagt af sannfæringu
við sjálfan þig, ég er hamingju-
samur? Á ég að segja þér hvar ég
fann hana. Ég var búin að leita
vel fyrir mér en fann hana ekki
fyrr en ég gerðist auðmjúk og
beygði mig fyrir Guði og bað
hann að hjálpa mér að finna fyrir
mig lykilinn að lífinu og veistu,
— það gerðist kraftaverk. Ég stóð
upp og var ný manneskja, allt
breyttist. Guð kont mér svo
sannarlega á óvart, tók allt það
gamla í burtu og gaf mér nýtt líf,
líf sem er Jesús Kristur, sannur
vinur bæði í gleði og sorg og sá
vinur sem er ætíð til staðar og
alltaf reiðubúinn að rétta hjálp-
arhönd.
Fríða Jónsdóttir.