Afturelding - 01.04.1985, Blaðsíða 22
INNLENDAR FRÉTTIR — INNLENDAR FRÉTTIR — INNLENDAR FRÉTTIR — INNLENDAR
Celebrant Singers
Dagana 26. júní til 2. júlí verður
hér á landi sönghópurinn CELE-
BRANT SINGERS, ásamt upphal's-
manni sínum og stjómanda, Jon
Stemkoski. Hópur þessi er skipaður
ungu fólki frá Bandaríkjunum og
Kanada, tíu söngvurum og tólf
hljóðfæraleikurum, sem hafa það
markmið, að útbreiða fagnaðarer-
indið með söng og vitnisburði.
CELEBRANT SINGERS var
stofnað fyrir rúmum átta árum síðan
og á þessum árum hafa þau ferðast
og sungið víða í Norður-Ameríku, í
flestum löndum Evrópu, Guate-
mala, E1 Salvador, íran, Egypta-
landi, Indlandi, Sri Lanka, og víðar.
Nýlega sungu Celebrant Singers í
Róm fyrir Jóhannes Pál II páfa, og
einnig eru þau nýkomin úr vel
heppnaðri ferð til Póllands.
Hingað til lands koma þau á leið
sinni til Ziírich, þarsem þau syngja á
alheimsmóti Hvítasunnumanna.
Jon Stemkoski, stjómandi kórsins,
er uppalinn í Kaþólsku kirkjunni, en
meðlimir kórsins koma úr mörgum
kristnum söfnuðum. Hér á landi
munu Celebrant Singers koma fram í
hinum ýmsu söfnuðum á Reykjavík-
ursvæðinu. Þau syngja m.a. í Fíla-
delfíukirkjunni, Bústaðakirkju,
Landakotskirkju, og síðan rnunu
þau enda veru sína hér með hljóm-
leikasamkomu í Broadway.
Skálinn í Kirkjulækjar-
koti — Dagskrá
Æskulýðsmót 14,—17. júní
Landsmót ungra Hvítasunnu-
manna verðurað venju Ijölbreytt. Á
dagskrá eru biblíulestrar, samkom-
ur, útivist, mállundur, varðeldur,
kvöldvökur og ýmislegt annað. Mat-
ur er seldur á staðnum og er reynt að
halda kostnaði í lágmarki.
Barnavika 29.júní — ó.júlí
í barnavikunni verður margt gert
til ánægju og uppbyggingar börnum
á aldrinum 8—12 ára. Þessi aldurs-
mörk eru ekki einhlít. Farið verður í
leiki, föndrað, haldnar kvöldvökur
og samverustundir auk gönguferða
og varðelds. Þátttakendur þurfa að
hafa sængurföt og snyrtidót meðferð-
is. Kostnaður er 2800 krónur fyrir
hvern þátttakanda og er þá allt inni-
falið, gisting, matur og dagskrá.
Veittur er afsláttur komi fleiri en
einn f'rá sama heimili. Umsjónar-
menn barnavikunnar eru Svanur
Magnússon og Carina Brengesjö.
Hvíldarvika 13.—20. júlí
Þessi vika er ætluð þeim, sem
þarfnasl hvíldar í sveitasælunni.
Daglega verða andagtir, auk þess
kvöldvökur, stuttar skoðunarferðir á
markverða staði í nágrenninu og
ýmislegt fleira til dægrastyttingar.
Þátttaka í hvíldarvikunni kostar
2800 krónur fyrir hvern þátttakanda
og fylgir í því fullt fæði og húsnæði.
Þátttakendur þurfa að koma með
sængurföt og snyrtiáhöld. Umsjónar-
menn hvíldarvikunnar verða Hinrik
Þorsteinsson forstöðumaður og
Kristinn Oskarsson skálavörður.
Kotmótið 1.—5. ágúst
Kotmótið er líklega fjölsóttasta
kristilega mótið sem haldið er reglu-
lega hér á landi. Mótið er haldið um
verslunarmannahelgina og er því
kærkomin tilbreyting frá ölteitum og
skrallgjörnum útisamkomum, sem
víða er stefnt til um þessa helgi. Fæði
verður selt á staðnum, fólki er vel-
komið að koma með skrínukost.
Vægt gjald er innheimt fyrir gistingu
í Skálanum og tjaldstæðagjald til að
mæta kostnaði vegna þjónustunnar,
sem veitt er á staðnum. Þeim, sent
hafa hug á gistingu í Skálanum er
bent á að panta rými hið fyrsta.
Biblíuvikaó. —11. ágúst
Að loknu kotmótinu verður lögð
áhersla á biblíufræðslu í eina viku.
Sérstakur gestur vikunnar verður dr.
Ronald Kydd, frá Kanada, en hann
er íslenskur í móðurætt. Auk hans
munu íslenskir Biblíukennarar
leggja sitt af mörkum. Hægt verður
að kaupa fast fæði, eða einstakar
máltíðir. Einnig má hafa skrínukost.
INNLENDAR FRÉTTIR - INNLENDAR FRÉTTIR — INNLENDAR FRÉTTIR - INNLENDAR