Afturelding - 01.01.1987, Blaðsíða 5
1
David du Plessis
Hvernig fékkst þú nafngiftina
Hr. Hvítasunna?
Það var árið 1954, í lllinois, á
fyrsta fundi mínum með Alheims-
kirkjuráðinu. Ég gegndi ekki neinu
embætti, og í Alheimskirkjuráðinu
eru einungis embættismenn, svo
þeir gátu ekki sagt að ég væri full-
trúi eða sendimaður Hvítasunnu-
manna. En vegna þess að ég var
starfsmaður Útvarps i Austurlönd-
um fjcer var ég flokkaður með
blaðamönnum.
Síðan var mér falið að sjá um alla
sendifulltrúana, sem ekki töluðu
ensku, á ráðstefnunni, og aðstoða
þá á fundum með blaðamönnum og
fréttamönnum og leiðbeina þeim í
þessum efnum. Þeir voru að spyrja
mig hvað ég væri, vegna þess að ég
var öðruvísi en aðrir, og þá sagði ég
þeim að ég væri Hvítasunnumaður.
Þá fékk ég nafnið Herra Hvítasunna
— Mr. Pentecost.
Hvað olli því að þú fórst að eiga
Égprédika ekki skírn;
ég prédika Skírara.
viðræður við Rómversk-kaþólsku
kirkjuna?
Árið 1961 var mér boðið að
ávarpa nefnd Alheimskirkjuráðs-
ins, Commission of Faith and
Order. Og í fyrsta sinn í sögunni,
hafði Jóhannes XXIII, páfi, sent
sendimenn sína sem áheyrnarfull-
trúa á þennan fund. Breski fulltrú-
inn kom, heyrði mig ávarpa nefnd-
ina og kynna þá fyrir skíraranum
Jesú Kristi.
Hver var boðskapur þinn til þess-
ara fulltrúa Vatikansins?
Ég prédika ekki skírn; ég prédika
Skírara. Ef maður prédikar skírn,
þá er spurt um hvaða skírn sé að
ræða. Skírn Jóhannesar? Vatns-
skírn? í Fyrra Korintubréfi 12:13
stendur: „í einum anda vorum vér
allir skírðir til að vera einn líkami.“
Þarna er Andinn sá sem skírir; lík-
aminn er skírnþeginn. Ég segi alltaf
„skírn af Jesú í Heilögum anda“ —
skírn Jesú. Lokaorð mín til þeirra
,,Þú ert maður Heilags
anda, þú hlýtur að vera
heilagur. “
þennan dag voru þessi: „Ég er ekki
hér til þess að leita eftir heiðri né
neins konar viðurkenningu fyrir
Hvítasunnuhreyfinguna. Ég spyr
ykkur: Viðurkennið þið Krist sem
höfuð kirkjunnar? Þið lítið enn á
hann sem Frelsarann. Hvers vegna
eruð þið hættir að líta á hann sem
Skírarann?" Hann getur ekki skírt
ungabörn í Heilögum anda. Heilag-
ur andi gjörir mann reiðubúinn til
þjónustu. Driffjöður kirkjunnar og
það sem umsneri veröldinni áður
fyrr tapaðist. Þetta er boðskapur
minn.
Hver urðu viðbrögð kaþólsku
fulltrúanna?
Einn varð fyrir áfalli — Dr. Bern-
ard Leaming. Hann kom til mín og
sagðist hafa verið guðfræðingur í
fjörutíu ár, en hann hefði aldrei
heyrt nokkurn kalla Jesú skírara.
Hann vildi vita hvers vegna. Síðan
fór hann að athuga málið, og komst
Frh. á bls. 26
menn vilja frekarfórna
sannindum Ritningar-
innar en að fórna hefð
sinni.