Afturelding - 01.01.1987, Blaðsíða 16

Afturelding - 01.01.1987, Blaðsíða 16
Óratorían MESSÍAS Lítt þekktar staðreyndir um tilurð „Messíasar, “ elskuðustu óratoríu páskanna. m ]WIL /lc ~H/aetiftn^ Íídijttijtfí?U< 1 JÍaKl Handrit Hándels. Kæfandi hiti og lognmolla reyndi á taugar íbúa Lundúna 22. ágúst 1741. Þrátt fyrir hitann þetta kvöld, ráfaði maður nokk- ur þreytulega um dimm strætin. Hann var lotinn og farinn að eldast. Þetta var Georg Friedrich Hándel, enn einu sinni á eirðar- lausu rápi um göturnar. Þessar göngur voru orðnar að vana, og meðan hann gekk hvarflaði þreyttur hugur hans ýmist til minninga um forna frægð eða fylltist vonleysi og örvæntingu um framtíðina. í Ijóra áratugi hafði Hándel samið tónverk, sem höfðu unnið aðdáun yfirstéttarinnar bæði í Englandi og á meginlandinu. Hann var uppáhald konungsíjöl- skyldunnar og hafði oft verið heiðraður, m.a. settur skólastjóri við Konunglegu tónlistaraka- demíuna. Síðan var honum skyndilega útskúfað úr félags- skap aðalins. Óróaseggir gerðu uppþot á óperusýningum hans. Á fáum mánuðum var Hándel sokkinn í sárustu fátækt og gjald- þrot blasti við honum. Hann dró sig í hlé úr opinberu lífi, sigraður maður. Samt voru erfiðleikar hans rétt að byrja. Hann fékk heilablóð- fall og líkami hans lamaðist hægra megin. Hann gat hvorki gengið, hreyft hægri höndina né skrifað nótur. Læknarnir gátu ekki gefið honum neina von um bata. Tónskáldið aldna ferðaðist til Aix-la-Chapelle til að stunda böð. Læknir hans varaði hann við að vera lengur en þrjá tíma í brennheitu vatninu, en Hándel var níu tíma samfleytt. Smám saman tóku máttlausir vöðvarn- ir við sér og öðluðust kraft. Hann gat farið að ganga og lömunin hvarf úr hendinni. Þegar heilsan batnaði hóf Hándel störf á ný. Sköpunar- gleðin gagntók hann og hann skrifaði Ijórar óperur í röð á skömmum tíma. Hann var heiðraður margvíslega á ný, en örlögin gripu aftur grimmilega í taumana. Karólína drotting, sem hafði lengi verið traustur vemdari hans, lést. Tekjur Hándels minnkuðu jafnskjótt. Þessi vetur var óvenjuharður í Englandi, svo ekki þótti fært að eyða eldsneyti til að hita upp leikhúsin. Öllum uppfærslum var frestað. Um tíma lifði Hándel á lánum frá vinum sínum. Mánuðir liðu. Hann sökk dýpra í skuldir og smám saman dofnaði neisti sköpunargleðinnar. Honum fannst hann vera gamall, þreytt- ur, vonlaus og sigraður. Þessa nótt, þegar hann þrammaði eirðarlaus um auðar göturnar, nam hann staðar um stund fyrir framan kirkju, sem grillti í gegnum húmið. Hann hugleiddi stöðu sína í biturri sjálfsvorkunn. Hvers vegna hafði Guð veitt sköpunargáfu hans viðreisn, til þess eins að láta rífa hana burt aftur? Úr djúpi ör- væntingarinnar hrópaði hann: „Guð minn, Guð minn, hví hef- ur þú yfirgefið mig?“ Hann laut höfði í sálarkvöl, og hélt heim á leið til fátæklegra herbergja sinna. Þegar hann opnaði dyrnar sá hann að gestur

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.