Afturelding - 01.01.1987, Blaðsíða 7

Afturelding - 01.01.1987, Blaðsíða 7
Annað sameiginlegt einkenni meðal þeirra sem biðja mest er að þeir finna svo greinilega fyrir hinum andlegu átökunum sem eiga sér stað þegar þeir biðja. (Sbr. Daníelsbók 10, þarsegirfrá því er Daníel var búinn að biðja lengi, og fékk bænasvar, en því hafði seinkað vegna baráttu í andaheiminum. Hins vegar var bæn hans heyrð á fyrsta degi). Nú biðja menn sérstaklega gegn eindreginni efnishyggju, öfug- uggahætti, hjónaskilnuðum, lög- leysu og misnotkun eiturlylja. Ray Bringham hefur stjórnað morgunbænastundum í sex ár. Hann segir: „Síðustu tvö árin hefur þessi hreyfing vaxið. Guð var viðbúinn allan tímann. Nú er fólkið tilbúið og kirkjurnar.“ B.J. Willhite í Church on the Rock tekur í sama streng: „Þetta breiðist ört út og meðal margra kirkjudeilda." Það sem gaf frumkirkjunni kraft var sameining í bæn. „Ef Guð ætlar að endurreisa kirkj- una í allri sinni dýrð, og ef dýrð þeirrar seinni á að verða jafnvel meiri en hinnar fyrri, þá verðum við að hverfa aftur til grundvall- aratriðanna,“ segir Tilton frá Word of Faith kirkjunni. „Til þess að ná þeim árangri sem Jes- ús og frumkirkjan náði verðum við einfaldlega að gera það sem Jesús sagði og það sem frum- kirkjan gerði: Iðka einhuga bæn í sameiningu. Þegar frumkirkjan sameinaðist á einum stað og hóf upp einróma raust sína, þá öðl- aðist hún kraft. Þegar við biðjum saman erum við miklu öflugri heldur en þeg- ar við biðjum sitt í hverju lagi. í fimmtu ’ 'ósebók 32:30 segir að einn maður reki þúsund á flótta, en tveir reki tíu þúsundir á flótta 'leildarárangur þeirra sem vinna saman er meiri en heildarárangur þeirra sem vinna sitt í hverju lagi.“ Jeanne Halsey, ritstjóri frétta- blaðsins Arrow, sem Word of Faith gefur út, segist hafa undir höndum þykkan bunka af bréf- um frá fólki, sem hefur séð líf sitt taka stórkostlegum breytingum eftir að hafa stundað reglulegar morgunbænir. Sumir segja frá velgengni í viðskiptum, aðrir vitna um lækningu og a.m.k. ein Oölskylda sanieinaðist á stór- kostlegan hátt. Flestir segjast vera líkamlega sterkari frekar en slappari eða þreyttari, eftir að hafa sótt bænastundir á morgn- ana. Derek Prince segir um bæna- vakninguna: „Ég hef verið krist- inn í 45 ár og hcf aldrei upplifað neitt þessu líkt.“ Derek er einn af leiðtogum Good News Fell- owship í Bandaríkjunum. I apríl á síðasta ári ákvað stjórn safnað- arins að hvetja fólk til að fasta og biðja samfellt í þrjár vikur til þess að kalla fram auðmýkt og iðrun. Enginn fastaði alla dag- ana, en allir tóku að sér að fasta einhverja daga. Jafnframt voru haldnar bænasamkomur í kirkj- unni klukkan fimm á morgnana. Fyrsta morguninn komu þrettán. Næsta dag sjö. Þriðja morguninn komu aðeins fjórir. En þeir sem komu báðu ákaft. Einn maður grét bókstaflega í þrjá daga þegar hann var að biðja fyrir söfnuðinum. Fimmta morguninn komu Oörutíu, næsta morgun sjötíu. Aður en þrjár vikur voru liðnar voru meira en 250 manns farnir að stunda bænasamkomurnar á hverjum morgni klukkan fimm, þar á meðal heilar fjölskyldur með lítil börn. Aðalmarkmiðið var iðrun. „Við gerðum okkur grein fyrir Derek Prince. því að við höfðum komið fram við Guð eins og hann væri þjónn okkar,“ viðurkennir Derek. Fólk iðraðist frammi fyrir Guði og játaði syndir sínar; hroka, eigin- hagsmunasemi og sjálfselsku. Þegar tuttugasti og fyrsti dag- urinn nálgaðist fylltist fólk eftir- væntingu. Það fann að Guð vildi gera eitthvað sérstakt fyrir söfn- uðinn. „Við höfðum látið stjórn- ast af löngunum okkar,“ segir Derek. „En við höfðum ekki kraft til að breyta okkur sjálf. Aðeins Guð gat gert það, og til þess þurftum við að iðrast. Á síðsta degi föstunnar gerðist eitthvað; Guð skapaði eitthvað nýtt í söfnuðinum." Og morgun- bænastundirnar, sem einungis voru skipulagðar í tuttugu og einn dag, halda áfram og að- sóknin eykst stöðugt. Derek segir að lokum: „Djöfl- inum er alveg sama hvað við gerurn, svo lengi sem við gerum ekki það sem skiptir máli.“ Samantekt úr Buckingham Report og Charisma

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.