Afturelding - 01.01.1987, Blaðsíða 6
nemma morguns
Guörún
Markúsdóttir
Merkileg
bænavakning vestanhafs
Víða um Bandaríkin eru
kristnir menn farnir að stunda
bcenasamkomur alla daga vik-
unnar klukkan fimm á morgn-
ana. Þessi bœnavakning hófst i
tveimur kirkjum i Texas, en nú
breiðist hún ört lit. Það sem ein-
kennir þessar bænasamkomur
er ákafinn í bœninni og áhersla
á iðrun, auk þess hve snemma
morguns samkomurnar eru
haldnar.
Hvers vegna er fólk farið að
leggja sig fram við að biðja?
Barry Burton frá Hillcrest
Church í Dallas svarar þessu á
dæmigerðan hátt: „Þessir mán-
uðir eru þeir bestu sem ég hef átt
með Drottni síðan ég gafst hon-
um fyrir fimmtán árum,“ segir
hann. „Eg finn greinilegar fyrir
nærveru Drottins í lífi mínu.“
Enginn einn söfnuður eða
maður hefur leitt eða stjórnað
bænavakningunni. Hún er það
sem hinar ýmsu kirkjur og ein-
staklingar hafa verið að leita eftir
í mörg ár. Hins vegar eru nokkrir
menn sem hafa lagt sig fram
meira en aðrir við að kenna og
leiðbeina fólki við að biðja.
Þ.á.m. eru Derek Prince, Dick
Eastman, Larry Lea, Dick
Simmons og Ray Bringham.
Víðast hvar er bænin Faðir vor
höfð til fyrirmyndar.