Afturelding - 01.01.1987, Blaðsíða 9
0
Kirkjan á klettinum — The Church on the Rock.
Þannig er livert atriði bænar-
innar íhugað vandlega og með
tilliti til aðstæðna hvers og eins.
Þegar Larry kennir á þennan
hátt uppgötva þúsundir manna
að klukkustundarlöng þæn er
ekki þrældómur, heldur líður
tíminn mjög hratt. Larry segirað
margir hafi orðið vitni að yfir-
náttúrulegum atburðum eftir að
hafa beðið í heila klukkustund.
Jesús sagði við lærisveina sína
í Matteus 26:40: „Þér gátuð þá
ekki vakað með mér eina
stund?“ „Orðin benda til þess að
hann hafi verið að segja: Getið
þið ekki beðið í a.m.k. eina
klukkustund?" segir Larry.
Hann vitnar líka í Postulasög-
una 1:14, „Allir þessir voru með
einum huga stöðugir í bæninni“.
Þannig hóf kirkjan starf sitt.
Larry gætir þess einnig að
gleyma ekki að biðja sjálfur.
Hann og ijölskylda hans biðja
reglulega, og Larry telur það
nauðsynlegan þátt til þess að
bæta hjónabandið.
Auk forstöðumannsstarfs síns
kennir Larry þrjá daga vikunnar
við Oral Roberts háskólann. Þar
heldur hann námskeið, sem eru
einstök. Þau byggjast á kenning-
um um tákn og undur sem
grundvöllinn að vexti kirkjunn-
ar. „Venjulega hefur kirkjuvöxt-
ur verið talinn vera í réttu hlut-
falli við mælsku leiðtoganna,“
segir Larry. „En Postulasagan
kennir okkur ekki að kirkjan
hafi vaxið sökum mælskusnilld-
ar — heldur vegna kraftaverka.
Við viljum endurvekja þessa
hugmynd á grundvelli traustrar
guðfræðilegrar kenningar.“
Jafnframt ætlar Larry að
leggja áherslu á bænastundir
snemma morguns, og hann er
sannfærður um að kirkjan muni
vaxa vegna bæna og vegna tákna
og kraftaverka. „Það verður
mjög spennandi,“ segir hann.
Larry virðist vera sannur
þjónn Guðs, sem hefur þá sér-
stöku náðargjöf að kenna fólki
að biðja. Hann er hæfileikaríkur
og skýr fyrirlesari. En hann ber
mikla ábyrgð og starf hans er
erfitt. Þess vegna skulum við
muna eftir að biðja fyrir honum
og starfi hans.
Þýtt og endursagt úr Charisma okt.
1986 -GM
AKKERIS
KROSSINN
Tákn hins besta i lifinu
TRÚAR, VONAR OG
______KÆRLEIKA__
28 mm 22 mm 16 mm
Krossinn fæst i silfri
og 14k gulli
BERÐU AKKERISKROSSINN
TIL TÁKNS UM TRÚ ÞINA
Sa/a og dreifing
Verslunin Jata