Afturelding - 01.01.1987, Page 20
Fjöldinn kann
að hafa á röngu að standa
Adam nokkur Thompson var
fyrsti maður í Vesturheimi sem
fyllti baðker með vatni. Læknar
sem heyrðu um þetta uppátæki
mannsins spáðu því að gikt og
lungnabólga myndu fylgja í kjöl-
farið. Sumar borgir bönnuðu
þessar nýju „baðkersæfingar“. í
dag er baðker eða sturta talin
ómissandi hlutur á hverju nú-
tímaheimili.
Fjöldinn hafði á röngu að
standa.
Eitt sinn giltu lög á Englandi
sem bönnuðu að aka faratæki
hraðar en 15 knr á klukkustund
án þess að maður færi fyrir því
með rauða veifu. I dag eigum við
farartæki sem fara sem fara með
100 sinnum meiri hraða og bet-
ur það.
Fjöldinn hafði á röngu að
standa.
Tónlistarmenn og gagnrýn-
endur veltust um af hlátri yfir
tónsmíðum Richards Wagner.
En tónverk hans ollu byltingu í
heimi tónlistarinnar. Fjöldinn
hafði á röngu að standa.
Westinghouse var kallaður
heimskingi fyrir að dirfast að
halda því fram að hann gæti
stöðvað járnbrautarlest með
vindinum. En nú í dag eru
Westinghouse-lofthemlar í
notkun um víða veröld. Enn á
ný hafði fjöldinn á röngu að
standa.
„Hvað er radíum?“ hrópaði
mannfjöldinn í hæðnistón að
vísindakonunni Maríu Curie. I
dag er radíum öflugur banda-
maður í baráttunni við sjúk-
dóma. Fjöldinn hafði á röngu að
standa.
Goodyear og eiginkona hans
unnu að því í ellefu ár að með-
höndla gúmmí með brenni-
steinssamböndum við hita til að
herða það og gera fjaðurmagn-
aðra. Allir hlógu að þeim þá —
en í dag aka milljónir manna á
Goodyear hjólbörðum.
Fjöldinn hafði rangt fyrir sér.
Við brosum oft að viðbrögð-
um manna við einhverjum nýj-
ungum. En það getur haft alvar-
legar afleiðingar í för með sér að
hafa á röngu að standa.
Þegar kemur að samskiptum
okkar við Guð má ekkert okkar
við því að hafa á röngu að
standa. Alltof mikið er í húfi.
Sökum þess að þú og ég höfum
syndgað gegn Guði og mönnum,
verðskuldum við eilífa refsingu
Guðs. Biblían segir: „Laun synd-
arinnar er dauði,“ eilífur að-
skilnaður frá Guði og dýrð hans.
(Rómverjabréfið 6:23).
En Guð býður okkur — þér og
niér — „eilíft líf í Kristi Jesú,
Drottni vorum.“ (Rómverjabréf-
ið 6:23).
Hafa nokkru sinni fallið dá-
samlegri orð á mannleg eyru en
þessi: „Því að svo elskaði Guð
heiminn, að hann gaf son sinn
eingetinn, til þess að hver sem á
hann trúir, glatist ekki, heldur
hefi eilíft líf.“ (Jóh. 3:16).
Fjölmargir taka „trúarbrögð"
í misgripum fyrir hjálpræði
Guðs. En trúarbrögð er ekki það
sem málið snýst um. Það sem
skiptir höfuðmáli er hvernig við
bregðumst við og svörum Jesú
Kristi.
Það má vera að þú hafir á
röngu að standa varðandi marga
hluti, en gættu þess vel að þú
sért ekki skakkur í afstöðu þinni
til Jesú Krists. Fyrir trú á hann
getur þú frelsast eins og þú ert.
Þú getur fengið syndir þínar fyr-
irgefnar og friður Guðs getur
fyllt líf þitt.
„En öllum þeim sem tóku við
honum (Jesú) gaf hann rétt til að
verða Guðs börn — þeim sem
trúa á nafn hans.“ (Jóh. 1:12).
Hvorn viltu velja, ijöldann eða
Jesú Krist?
Þýtt - HG