Afturelding - 01.01.1987, Síða 28
Fagnaðarerindið til á 4,386
tungumálum
Nú eru til prentaðir ritningar-
hlutar á nærri 1,700 tungumálum
auk þess sem fagnaðarerindinu er
útvarpað og sjónvarpað á mörgum
þessara sömu tungumála. Fagnað-
arerindið er boðað munnlega með
hjálp hljóðritana og útvarpssend-
inga, til nærri 4,000 tungumála-
hópa. Fyrirtækið Gospel Record-
ings gaf nýverið út fjórar nýjar
hljóðritanir af fagnaðarerindinu og
var þá tilkynnt að kristniboðar
gætu fengið hljómplötur og snældur
með upplestri á 4,386 tungumál-
um.
MNS 1/34
Breytt viðhorf til kristniboðs
Margir Þjóðverjar telja kristni-
boð heyra sögunni til. Jafnvel
margir trúaðir þar í landi halda því
fram að félagsleg hjálp sé eina
kristniboðsstarfið, sem vinna eigi í
dag.
Engu að síður hefur tjöldi
evangelískra kristniboða tvöfaldast
á síðustu sautján árum. Samband
evangelískra kristniboðsfélaga
heldur skóla fyrir kristniboðaefni.
Margir nemenda þessa skóla hafa
farið til kennslu í biblíuskólum í
Þýskalandi og vakið þar áhuga á
kristniboði.
MNS 1/34
Fleiri kristniboðar frá Asíu
en Vesturlöndum
Nú telja vestrænir kristniboðar
rétt um 10,000 en 141 kristniboðs-
félag í Asíu hafa 10,200 kristniboða
á sínum snærum. Staða kristninnar
í Asíu er mjög sterk. A síðasta ára-
tug hefur kristnum fjölgað um 37%.
Það er aðeins einu hundraðsstigi
lakara en Afríka, sem hingað til
hefur verið talin sú heimsálfa þar
sem kristni á mestum framgangi að
fagna.
KS 13/87
Fimmti hver Svíi guðleysingi
Samtímis örum framgangi
meðal kristinna í Svíþjóð, fer
Yfir 750,000 komu í
sýningarbásinn á EXPO ’86
Það voru 750,000 gestir sem
fengu að heyra fagnaðarerindið í
,,Höll fyrirheitanna" á heimssýn-
ingunni EXPO ’86, sem haldin var
mikil alkristnun fram í landinu.
Aðeins öðrum hverjum Svía
þykir Biblían skipta nokkru
máli, tíundi hver Svíi telur sig
hafa mikinn áhuga á trúmálum,
þó ekki endilega kristinni trú.
Það að fimmti hver Svíi segist
vera guðleysingi og að biblíulest-
ur er helmingi fátíðari nú en
fyrir 35 árum segir sína döpru
sögu.
Þetta eru niðurstöður rann-
sóknar sem Thorleif Petterson
gerði fyrir trúarfélagsfræðistofn-
un sænska biblíufélagsins.
KS 13/87
í Vancouver í fyrra. Yfir 9,000
manns lóku afstöðu með Jesú
Kristi, eða áttu samtöl við sálusorg-
ara, segir í fréttum frá sjónvarpsfé-
laginu 100 Huntley Street.
KS 12/87
Erlendar f réttir Erlendar f réttir Erlendar fréttir