Afturelding - 01.01.1987, Page 31
einni. Ég á aðeins að fyrirgefa þeim.
Drottinn gaf okkur ekki vald til
þess að réttlæta neinn. En liann gaf
okkur vald til þess að fyrirgefa öll-
um. Þetta er fyrsta verkefni okkar.
Við höfum reynt að framfylgja
kristniboðsskipuninni, en við höf-
um ekki hlýtt fyrsta boðinu — að
fyrirgefa þeim. Þess í stað hefur
kirkjan orðið að samfélagi sem
dæmir. Við verðum að losna frá
dæmandi fagnaðarerindi. Heilagur
andi kom til þess að sannfæra
heiminn um synd. Kirkjan hefur þá
hugmynd að við eigum að ásaka
heiminn unt synd. Það er kominn
tími til að við förum að prédika
gleðiboðskapinn, og byrjum á hin-
um látæku.
Ef eining næst ckki með skipu-
lagningu, hvað mun þá gera liana að
veruleika?
Sú eining sem ég álít raunveru-
lega er eining, sem Heilagur andi
skapar. Öll önnur eining er gagns-
laus. Hún er jafn vonlaus og þróun-
arkenningin. Heilagur andi samein-
aði Adam og Evu þegar Guð andaði
á þau. Það var fyrsta sameining
Guðs. Allt sem maður þarl' að gera
til þess að taka á móti einingu
Heilags anda er að viðurkenna
hana. Taka á móti því sem Guð er
að skapa. Jesús sagði: „Ekkert getur
sonurinn gjört af sjálfum sér, nema
það sem hann sér föðurinn gjöra.
hví hvað sem hann gjörir, það gjör-
ir sonurinn einnig." Við verðum að
•ara að liaga verkurn okkar í sam-
ræmi við það sem við sjáum að
Guð er að gera. Sérðu ekki hvað
Guð er að gera? Ef Guð skírir kaþ-
ólska í Heilögum anda, hvaða rétt
höfum við þá til að mótmæla því?
Þar er Guð að verki. Þeir hafa flutt
hvítasunnuboðskapinn til 112
bjóða. Nú eru 50,000,000 kaþólskir
-.hvítasunnumenn" í heiminum. Ef
Guð er þar að verki, höfum við þá
rétt til þess að hafna því? Ef við
elskum þá og fyrirgefum þeim, þá
umbreytir Guð þeim. Við verðum
að fyrirgefa allt.
Flestum söfnuðum hættir til að
efast um velvilja annarra safnaða
begar þeir eru að hvetja til einingar.
Ég veit ekki um neitt samfélag
sem er saklaust af því. Ég hef oft
heyrt að Róm sé nú lilbúin til sam-
starfs vegna þess að hún trúi á ein-
ingu ljónsins og lambsins; Ijónið
gleypir lambið og segir: „Nú erum
við eitt.“ Ég hef ekki enn heyrt neitt
slíkt frá Róm. Og ég hef aldrei heyrt
nokkurn mótmælenda- né Hvíta-
sunnusöfnuð falla fram fyrir Guði
og grátbiðja um einingu. Það hef ég
aðeins heyrt á kaþólskum vakning-
arsamkomum. Ég held að Guð
muni svara bænum þeirra.
mmo
MDÐBG rnm
ÍMIBBG
áskriftasími
91-20735
Ég neita að láta hugfallast. Ég hef
séð hönd Guðs og ég hef séð breyt-
ingarnar sem Guð hefur gert síð-
ustu þrjátíu árin. Ef hreyfing er ekki
af Heilögum anda, með náðargjöf-
um, þá getur hún ekki verið sam-
kirkjuleg. En ef hún er ekki sam-
kirkjuleg, þá getur hún ekki haldið
áfram að vera náðargjafavakning.
Drottinn er að starfa, og það besta
er enn ókomið!
Húsnæði óskast!
Starfsmann Aftureldingar
vantar litla íbúð til
leigu í Reykjavík.
Upplýsingar veitir:
Guðn'm Markúsdóttir,
sími 91-20735/25155.
AFTURELDING
54. árgangur 1. tbl. 1987
Útgefandi: Filadelfia-Forlag, Hátúni 2,105 Reykjavik.
Sími: 91-20735/25155. Ritstjóri og ábyrgðarmaöur: Einar J.
Gíslason, simi 91-21111. Setning og prentun: Prentstofa G.
Benediktssonar. Uppsagnir miðast við áramót. Vinsamlegast til-
kynnið breytingar á heimilisföngum og áskriftum til skrifstofunn-
ar. Árgjaldið er 850 krónur.