Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Side 31

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Side 31
Hjálpræðið meðtekið. Þú þekkir e. t. v. einhvern, sem afneit- ar Guði, segir það fulluin fetum, að liann trúi ekki á Guð, og gerir mikið til þess að veikja trú þína og annara, ef verða mætti. Hann færir fram rök sín fyrir því, að Guð sé ekki til, og fer óvirðulegum orðum um hann og allt, sem þér er dýr- mætast og heilagt. Þú hefur e. t. v. oft reynt að telja um fyrir manni þessum, en það liefur ekki orðið til annars en sýna þér enn þá betur, hve hjarta hans er kalt og fullt af viðurstyggð, og gefa honum tæki- færi til þess að svívirða allt það, sem þér er heilagt. E. t. v. hefur þú beðið fyrir honum, en það liefur ekki borið árangur ennþá, og vel getur verið, að þú sért bú- inn að gefa upp alla von. Auðveldara er fyrir úlfalda að ganga gegnum nálaraugað, en þennan mann að ganga inn í Guðs ríki, hugsar þú. — Og þekkir þú engan slíkan mann, þá þekkir þú e. t. v. rnann, sem lifir djúpt í synd. Hann stundar at- vinnu, sem er óheiðarleg, græðir á tá og fingri þrátt fyrir lands lög og rétt. Hann

x

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)
https://timarit.is/publication/407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.