Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Page 32

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Page 32
28 þekkir bæði lands lög og Guðs lög, en sinnir hvorugum. Hann kemur ekki þangað, sem Guðs orð er um liönd haft, og komi hann, þá er hjarta hans svo harð- læst, að það liefur engin áhrif. Það er eins og öll von sé úti. Eða þú þekkir mann, sem ólst upp við Guðs orð og góða siðu, en leiddist síðar afvega og gengur nú fram hjá Guðs orði, eins og það væri sorp, en veltir sér I spillingu og gjálífi heimsins. Léttúð hans er svo mikil, að alvarleg orð og áminningar megna ekki annað en fram- kalla hræsnissvip á andliti lians. Það virð- ist vonlaust, að slíkur maður snúi sér til Guðs. Þú Jítur yfir landið og athugar þjóð- ina og sérð fyrir þér mildnn fjölda af svona fólki og þér fellur allur ketill í eld. Hvað verður úr þessu? Er nokkurs góðs framar að vænta? Guðleysið, ranglætið og spillingin grípur unga menn í öJlum stétt- um, frá allskonar heimilum og með alls- konar skapgerð. Er ekki úti um kristnina í landi liér? Og er þá ekki úti um þjóð- ina, andlega talað? Hvar lenda þessar dýr- mætu sálir? Yér megum til að minnast þess, að stund- um hefur orðið merkileg breyting á þessu. Yér megum ekki gleyma því, að jafnvel guðlausir menn, sem voru svo sannfærðir

x

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)
https://timarit.is/publication/407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.