Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Page 33

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Page 33
29 í vantrú sinni og guðleysi, sem unt er, því að sannfæring þeirra er harla veik, sneru sér til Guðs og urðu kristnir menn af al- hug. Tökum til dæmis Pál postula. Hann var ekki guðleysingi, en hann var þó án Guðs, þegar hann var óvinur Krists og of- sótti söfnuð Guðs, »óð inn í hvert hús og dró þaðan hæði karla og konur og seldi í varðhald« (Post. 8, 3). En Guð greip í taum- ana og sneri Páli og gerði hann að post- ula sínum, þeim er erfiðaði mest þeirra allra. Jesús sagði: »Sannlega segi ég yður: auðveldara er l'yrir úllalda að ganga gegn- um nálarauga, en fyrir ríkan mann að ganga inn í himnaríkið*. En er lærisvein- arnir heyrðu þetta, urðu þeir forviða og sögðu: »Hver getur þá orðið hólpinn*? En Jesús leit til þeirra og sagði: »Fyrir mönn- um er þetta ómögulegt, en fyrir Guði eru allir hlutir mögulegir* (Matt. 19, 23—26). Guð getur vakið hinn versta mann af synda- svefninum og sýnt honum þær ægilegu af- leiðingar, sem syndin hefur. Þá fer einnig þessi maður, hve illur sem hann er, að spyrja um Guð og um hjálp lians. Lífið er oss kært, og enginn vill glatast. Þegar synd- arinn sér, að hann á það á hættu, þá fer hann að biðja og lesa Guðs orð, og þá vill liann hlusta á boðskapinn.

x

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)
https://timarit.is/publication/407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.