Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Page 34

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Page 34
30 En Guði er ekki nóg, að syndarinn verði hræddur og reyni til að forða sér. Syndar- inn hræðist dauðann, dóminn og glötunina. En syndin væri honum jafn kær og fyr, ef afleiðingin fylgdi ekki. Guð vill sýna mann- inum, live syndin er viðbjóðsleg, svo að hann fari að hata syndina sjálfa og kjósi að frelsast undan sekt hennar og valdi. Enginn mannlegur máttur kemur því til vegar, en Guði eru allir hlutir mögulegir. Þetta er kallað vakning. Hún er einn liðurinn 1 hjálpræði Guðs. Hann grípur inn í líf mannsins og sannfærir hann um synd, réttlæti og dóm. Maðurinn fær að sjá, live verk hans og orð eru ötuð synd, og ekki aðeins ötuð synd, heldur sprottin af synd, þeirri synd, sem bjó í innsta eðli hans, í huga hans, löngunum hans, ákvörðun- um og allri iífsstefnu. Hann finnur, að hann er langt frá Guði og vilja hans, girn- ist, áformar og framkvæmir móti vilja Guðs. Þetta á ekki við þá eina, sem berir eru að ranglæti, siðspillingu eða vantrú. »Allir hafa syndgað*, og þarfnast náðar. Þetta er fyrsta náðin, að maðurinn fær að sjá synd- ina í ljósi Guðs. Þverbrotnir syndarar, sem hafa mikið á samvizkunni, ættu að geta séð það, þótt erfiðlega gangi að snúa hug- arfari þeirra. En miðlungsmenn, sem hafa

x

Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók (Kristilegt bókmenntafélag)
https://timarit.is/publication/407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.