Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1937, Síða 38
r
34
urinn réttlætist af trú án lögmálsverka«,
Rómv. 3, 28.
Hér er þó ekki um trú alinennt að ræða.
Það er ekki sama, hverju trúað er. Það
réttlætist enginn af trú á annað líf, hversu
sterk og heit sem hún er. Og enginn rétt-
lætist af trúnni á tilveru Guðs. Það er trú-
in á Jesúm Krist, Guðs son og frelsara, sem
réttlætir. >Honum bera«, eins og Pétur
postuli sagði, »allir spámennirnir vitni, að
sérhver, sem á hanu trúir, fái fyrir hans
nafn synda-fyrirgefning«, Post. 10, 43.
En hvernig stendur á því? Er það þá
betur gert að trúa þessu en öðru? Nei, trú-
in er ekki verðleiki, sem benda megi á
oss til réttlætingar. Það eina, sem vér get-
um bent á oss til réttlætingar, er réttlætis-
verk hans, sem fullnægði öllu réttlæti við
Guð fyrir oss, endurlausnarverk Jesú Krists,
eins og Páll postuli segir: »Þeir réttlætast
af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í
Kristi Jesú«, Rómv. 3, 24. Trúin er aðeins
tóm hönd, er tekur við gjöf Guðs í Jesú
Kristi.
»En öllum, sem tóku við honum, gaf
hann rétt tli að verða Guðs börn: þeim sem
trúa á nafn hans«, Jóhs. 1, 12. Það er dá-
samlegt, að börn óhlýðninnar og reiðinnar
frelsast frá óhlýðni sinni og reiði Guðs og